10.06.1985
Neðri deild: 91. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6174 í B-deild Alþingistíðinda. (5616)
Um þingsköp
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Eins og hér hefur komið fram er ég einn af þeim sem hef látið mig skipta það mál sem hér er á dagskránni, frv. til l. um selveiðar, og hef haft verulegar áhyggjur af því máli, kannske fremur að þar yrði fram haldið að ráðum ríkisstj. Ég ætla annars ekki að ræða það mál hér efnislega. Ég er alveg sammála hæstv. forseta, ég tel óskynsamlegt að ætla hæstv. formanni Framsfl. og forsrh. fyrir hönd sjútvrh. að flytja þar eitthvað á milli og tel því mjög skynsamlegt af forseta að ákvarða að frv. þetta bíði heimkomu hæstv. sjútvrh., enda sé ég ekki að það liggi neitt á í rauninni að hraða umr. um þetta mál þegar ljóst er að við höfum sumarið fyrir okkur til þingstarfa og getum rætt væntanlega til nokkurrar hlítar þau vandamál sem tengjast selastofnunum við Ísland.
Ég hef orðið var við það að þetta mál leitar á hugi fleiri þm. en okkar hv. 4. landsk. þm. Það eru nokkrir á mælendaskrá að ég veit í þessu mikilsverða máli, sem sitja þennan þingfund og hefðu þess vegna getað tekið þátt í umr., en ég tel óskynsamlegt að ætla hæstv. forsrh. það, ofan á allt það erfiði sem á honum mæðir daglega, að flytja á milli í þessu mjög flókna máli sem selveiðimálin og tengslin við hringorminn eru og allt það samhengi sem hér hefur verið gerð nokkur grein fyrir.
Ég kvaddi mér hér hljóðs um þingsköp aðallega vegna ummæla hæstv. forseta um kvöldfund. Hæstv. forseti lýsti þeirri ætlan sinni að ræða hér til hlítar það mál sem var og er hér á dagskránni, frv. til l. um Byggðastofnun, en auk þess tvö önnur mál. Ég tók eftir því að hv. 3. þm. Reykv. innti hæstv. forseta eftir því hversu lengi hann hygðist halda fundi fram og við því komu ekki svör að ég heyrði, en aðeins rætt um kvöldfund. Nú lít ég svo til að kominn sé nýr dagur í rauninni. Er það stundum kallað næturfundur. Það er þó tæpast ástæða til að gera of mikið úr því á þessum tíma árs. En í öllu falli er hér hafinn nýr dagur og þá ber ég fram og ítreka þá fsp. sem hv. 3. þm. Reykv. bar fram: Hversu lengi fram á þennan dag nýbyrjaða ætlar hæstv. forseti að halda fram fundi? Það er m. a. með tilliti til þess hvaða næringu menn eiga að taka til sín, enn er kostur á því hér í matstofu þingsins, að æskilegt væri að fá þetta upplýst.