10.06.1985
Neðri deild: 91. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6174 í B-deild Alþingistíðinda. (5617)
Um þingsköp
Forseti (Ingvar Gíslason):
Eins og upplýst hefur verið þegar var það hugmyndin að tekin yrðu fyrir þau þrjú mál sem skýrt var frá. Það eru 8. og 9. dagskrármál og hið 11. Hversu lengi verður haldið áfram, það verður að ráðast. En ég var að vonast til þess að við gætum haldið áfram að ræða um Byggðastofnun, 9. dagskrármálið, enn um stund. Það er einn hv. þm. þar á mælendaskrá. Svo sjáum við til hverju fram vindur.