10.06.1985
Efri deild: 94. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6191 í B-deild Alþingistíðinda. (5645)

280. mál, rétt skil afurðasölufyrirtækja til bænda

Frsm. minni hl. (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti minni hl. fjh.- og viðskn. um till. til þál. um rétt skil afurðasölufyrirtækja til bænda. Ég er einn á báti í þessu nál. og vil fara örfáum orðum um ástæður þess, en þó mun ég ekki tala langt mál. Ég skila áliti sem er svohljóðandi, með leyfi forseta:

„Á undanförnum árum hafa viðskipti afurðasölufyrirtækja við bændur verið rekin á grundvelli umboðssölu. Afurðafyrirtækin hafa skilað bændum því verði sem fæst við sölu vörunnar að frádregnum vinnslu- og dreifingarkostnaði. Nú á síðustu árum hefur vantað upp á hjá þorra afurðasölufyrirtækja að endanlegt verð til bænda næði grundvallarverði sem ákveðið er af sexmannanefnd. Þó er það ekki einhlítt og sum afurðasölufyrirtæki hafa náð að greiða fullt verð eða yfirverð.

Umboðssölufyrirkomulagið er með fullu samkomulagi bænda og afurðasölufyrirtækja, enda eru bændurnir í flestum tilfellum eigendur þeirra þar sem þorri þeirra er rekinn á samvinnugrundvelli.

Málarekstur af því tagi, sem í þáltill. felst, er því óþarfur og leggur minni hl. til að till. verði felld.“

Ég vil taka það fram, láta það koma skýrt fram, að hér á ég við það sem liðið er. Markmiðið að bændur fái greitt fullt verð er í fullu gildi og ég lýsi heils hugar stuðningi mínum við það, enda er ákvæði þess efnis í frv. til l. um Framleiðsluráð landbúnaðarins sem er í umfjöllun hér í hv. Alþingi. Ég vil lýsa eindregnum stuðningi mínum við það ákvæði sem kveður á um að bændur fái greitt út fullt verð fyrir sínar afurðir og tel sjálfsagt að breyta því.

Hins vegar verður að tryggja fjármögnun í því sambandi, að tryggja það í gegnum afurðalánakerfið að afurðasölufyrirtækin hafi fjármagn til að greiða vöruna út og er brýnt að ganga svo frá. Í umræðum um þessi mál hefur oft verið gert æðimikið úr því að afurðasölufyrirtækin hafi peninga af bændum og menn hafa ekki dregið fram í dagsljósið þá staðreynd eða viðurkennt hana að umboðssölufyrirkomulag hefur verið í gildi. Ég tel að það eigi að viðurkenna og þessi málarekstur sé því ekki rökréttur, enda eru bændur sem félagar í afurðasölufyrirtækjum, sem rekin eru á samvinnugrundvelli, eru langsamlega flest afurðasölufyrirtæki landsins, eigendur að þeim fyrirtækjum og hafa samþykkt þennan hátt mála á félagslegum grundvelli.

Ég vil að lokum endurtaka að að sjálfsögðu styð ég það heils hugar að þessum málum verði breytt og nú verði tekið upp það fyrirkomulag að greiða bændum út fullt verð fyrir afurðir sínar.