10.06.1985
Efri deild: 94. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6216 í B-deild Alþingistíðinda. (5677)
86. mál, áfengislög
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Í upphafi máls langar mig að víkja að því að til þess var vitnað áðan að þegar Alþingi var lagt niður á Þingvöllum hafi það m. a. verið vegna þess að þar voru orðin drykkjuólæti mikil. Og af því að farið var aftur í söguna er kannske ekki úr vegi að víkja stuttlega enn þá lengra aftur í tímann því öl var ekki nýtt á þingi þó kannske hafi keyrt úr hófi þegar færðist nær aldamótunum 1800. En einn Íslendingaþáttur hefst á þessum orðum — og ég skal nú segja hv. dm. að ég ætla ekki að fara að lesa allar Íslendingasögurnar hér, ég ætla að lesa eina mgr. úr Ölkofraþætti:
„Þórhallur hét maður. Hann bjó í Bláskógum á Þórhallsstöðum“ — sem eru þar nálægt sem nú er kallað Ölkofradalur á Þingvöllum, skammt frá Skógarkoti inni í miðju hrauninu. „Hann var vel fjáreigandi og heldur við aldur, er saga sú gerðist. Lítill var hann og ljótur. Enginn var hann íþróttamaður, en þó var hann hagur við járn og tré. Hann hafði þá iðju að gera öl á þingum til fjár sér, en af þessari iðn varð hann brátt málkunnugur öllu stórmenni, því að þeir keyptu mest mungát. Var þá sem oft kann verða, að mungátin eru misjafnt vinsæl og svo þeir, er seldu. Enginn var Þórhallur veifiskati kallaður og heldur sínkur. Honum voru augu þung. Oftlega var það siður hans að hafa kofra á höfði og jafnan á þingum, en af því að hann var maður ekki nafnfrægur, þá gáfu þingmenn honum það nafn, er við hann festist, að þeir kölluðu hann Ölkofra.“
En til dagsins í dag. Það mál sem hér er til umræðu hefur verið blásið upp og umræðan sem átt hefur sér stað um þetta mál og sú athygli sem að því hefur beinst í þjóðfélaginu er ekki í neinu samræmi eða neinu hlutfalli við mikilvægi málsins. Það er næstum því sama, hygg ég að flestir þm. geti tekið undir, hvar maður hefur komið á undanförnum vikum, það er jafnaðarlega ekki spurt um gang annarra mála en bjórmálsins. Það gæti verið áhugavert athugunarefni hvers vegna þetta er, en út í þá sálma skal ég ekki nánar fara hér.
Ég hef skrifað undir þetta nál. með fyrirvara, þ. e. álit meiri hl. n. sem mælir með samþykkt frv. Fyrirvari minn er fólginn í því að ég hef áskilið mér rétt til að flytja og fylgja þeirri brtt. sem hv. þm. Ragnar Arnalds gerði hér grein fyrir áðan, þ. e. að fram fari atkvgr. meðal kosningabærra manna um hvort leyfa skuli innflutning og framleiðslu á áfengu öli. Ég get tekið undir margar af þeim röksemdum sem hann flutti í sínu máli. Í fyrsta lagi er það svo að hefð er fyrir því að ákvarðanir í áfengismálum á borð við þessa, sem á að fara að taka hér, séu ekki teknar af Alþingi einu, heldur fái almenningur að tjá hug sinn til málsins. Það nægir að geta þess að í hvert einasta skipti sem uppi eru áform um að opna áfengisútsölu — það er ekki verið að bæta við einu eða neinu — í einhverjum þéttbýlisstað, þá er það aldrei gert öðruvísi en að undangenginni allsherjar atkvgr. íbúanna á staðnum. Þessu er stundum hafnað og stundum hefur þetta verið samþykkt. Þetta er mál þar sem heitar tilfinningar og ákveðnar skoðanir skipta mönnum í tvo hópa.
Fari svo að ekki verði efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta mál og það samþykkt eins og það liggur fyrir hygg ég að andstæðingar ölsins muni eiga mjög erfitt með að una þeim úrslitum að hér skuli fáir taka ákvörðun í þessu máli en almenningur ekki fá að segja sína skoðun með því að taka þátt í almennri atkvgr. um málið. Ég hygg sem sagt, jafnvel þó að þetta verði samþykkt með miklum meiri hluta í þjóðaratkvæðagreiðslu, sem ég er næsta viss um að yrði ef sú atkvgr. færi fram, og er næsta viss um það, að samt sem áður mundu andstæðingar málsins una því tapi betur en ef málið væri einfaldlega samþykkt hér og látið koma til framkvæmda. Þar að auki kemur svo sú hefð um ákvarðanir á borð við þessa sem áður er um getið.
Í rauninni er staða þessara mála eins og nú er með þeim hætti að hún er gjörsamlega óþolandi rugl. Í fyrsta lagi starfrækir ríkið verslanir sem selja áfengi allt frá tiltölulega veikum borðvínum og upp í sterkustu drykki. Þetta er allt saman frjálst á boðstólum, létt vín og sterkt vín, í verslunum sem ríkið rekur. Áfengt öl er ekki á boðstólum í þessum verslunum, en það er býsna víða á boðstólum. Öllum ferðamönnum sem til landsins koma stendur til boða að kaupa, ef þeir kjósa, 24 flöskur af áfengu öli og þeir ferðamenn sem koma til landsins á hverjum degi skipta hundruðum. Farmönnum og áhöfnum flugvéla stendur þetta líka til boða í nokkuð minna mæli eða að því er flugáhafnir varðar, en hjá þeim eru ferðir býsna tíðar. Þannig er verulegt magn af áfengum bjór þegar í umferð hér á landi og fróðir menn segja að til sé fast markaðsverð á áfengum bjór sem fluttur er þannig inn.
Þar við bætist, sem öllum er kunnugt, að hér hafa risið, ekki aðeins í Reykjavík, heldur víðs vegar úti um land, svokallaðar bjórkrár sem selja sterkt áfengi sem er þynnt út með bjór. Það er hægt að ganga í ýmsar áttir frá þessu þinghúsi og kaupa slíkan mjöð sem gengur undir nafninu „bjórlíki“ og þykir sumum vera göróttur drykkur sem ekki skal dregið í efa.
Meðan ástandið er slíkt og það verður ekki séð að þar eigi að stíga nein skref til baka, ég hef ekki heyrt raddir um að loka eigi þessum öldurhúsum, ég hef ekki heldur heyrt raddir um að taka eigi fyrir innflutning á áfengu öli hjá sjómönnum, flugliðum eða ferðafólki, þá er þetta mál auðvitað tómt rugl og öll sú staða sem hér er uppi. Fari svo að þessi tillaga um þjóðaratkvgr. nái ekki meiri hluta hér mun ég að sjálfsögðu greiða atkvæði með þessu frv. Það er ekki vegna þess að ég telji það til sérstakra bóta að hér verði seldur í áfengisverslunum áfengur bjór. Ég er næstum því viss um að það mun auka einhverju við áfengisneyslu hér á landi, því miður.
Ég er nokkuð sannfærður um það. En það hníga öll rök að því að þetta verði leyft hér eins og í öðrum löndum. En mér finnst að áður en sú breyting er gerð eigi að kanna hug þjóðarinnar til þess máls. Þess vegna styð ég brtt. á þskj. 1212.
Það er auðvitað ákaflega margt í áfengismálum sem hér hefur misfarist og þær reglur, þau höft og þær hömlur sem í gildi hafa verið, hafa gefist misjafnlega, að ekki sé meira sagt. Hins vegar finnst mér að mjög hafi á það skort að hjá hinu opinbera hafi verið til einhver stefna í áfengismálum. Hún hefur aldrei verið til og er ekki til. Það hefur því miður ekki, þrátt fyrir þáltill. sem flutt var hér af okkur Alþfl.-mönnum á sínum tíma um skipan nefndar til að móta stefnu í þessum efnum, tekist enn þá.
Við getum litið til landa sem hafa ákveðna stefnu í þessum efnum þar sem er einkasala á áfengi, eins og t. d. í Svíþjóð. Hvað er auglýst í gluggum áfengisverslana í Svíþjóð? Það eru auglýst óáfeng „vín“. Þar inni í verslunum eru margháttaðar upplýsingar um skaðsemi áfengisneyslu sem standa þeim til boða og er raunar með vissum hætti haldið að þeim sem koma þangað inn til að versla. Hér er engin stefna í þessu máli og hefur aldrei verið. Í bandaríska vikuritinu Time mátti lesa fyrir skömmu mjög athyglisverða grein um viðhorfsbreytingar í áfengismálum sem eru að verða og hafa orðið í Bandaríkjunum. Þar þykir ekki lengur fínt að drekka þrjá kokkteila eða fjóra fyrir hádegismatinn hjá þeim sem eru í viðskiptalífinu. Það þykir orðið fínt að drekka sódavatn. Það er m. a. vegna þess að haldið hefur verið uppi markvissum áróðri um ekki bara skaðsemi áfengis heldur fyrst og fremst heilbrigðari lífshætti. Ég held að til þess að vinna gegn áfengisneyslu hér, misnotkun áfengis og öllu því böli sem því fylgir ætti að taka upp miklu, miklu markvissari stefnu í þeim málum og markvissari áróður. En það hefur ekki verið gert. Það horfir til vandræða stundum í opinberum veislum ef einhverjum verður það á að vilja heldur sódavatn en genever eða eitthvað svoleiðis. Þá þarf að gera ráðstafanir til að sækja það sérstaklega fram í eldhús og þá er venjulegast komið með heiðgult appelsín til þess að það fari ekkert milli mála hvað viðkomandi maður sé að drekka. Þessu væri einfalt að breyta ef vilji væri fyrir hendi og skilningur.
En ég skal nú ekki, herra forseti, lengja þessa umr. mikið meira. Ég hef þegar rakið þau rök sem ég tel að mæli með því að þetta mál verði borið undir þjóðaratkvgr. Þeirri röksemd hefur verið haldið að okkur og var haldið að okkur í n. sem um þetta fjallaði að Afþjóðaheilbrigðismálastofnunin væri andvíg því að mál af þessu tagi væru borin undir atkv. í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það má sjálfsagt finna því einhver rök, en hér er ekki verið að gera neina grundvallarbreytingu þó verið sé að leyfa sölu með takmörkuðum hætti á einni tegund af áfengum vökva til viðbótar við þær fjölmörgu sem ríkið þegar selur þegnum sínum. Það er ekki verið að gera neina stórfellda breytingu þó að þetta hafi þróast upp í það hita- og deilumál sem raun ber vitni. Og vegna þess hvernig málið hefur þróast tel ég rétt að svona verði staðið að því, en ef það væri verið að gera einhverja grundvallarbreytingu eins og að aflétta banni, t. d. eins og hér var gert á sínum tíma, þá get ég ekki heldur fallist á þau rök Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar hvers vegna ekki megi bera slík mál undir þjóðaratkvæðagreiðslu.
Ég skal ekki lengja þetta frekar, herra forseti, en ég styð brtt. á þskj. 1212, að almenningur fái að segja hug sinn til þessa máls og að niðurstaða þeirrar atkvæðagreiðslu verði ráðgefandi fyrir Alþingi. En fari svo að sú till. hljóti ekki tilskilinn meiri hl. atkv. í þessari hv. deild mun ég greiða atkv. með þessu frv. með þeim rökum sem ég hef þegar rakið.