10.06.1985
Efri deild: 94. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6219 í B-deild Alþingistíðinda. (5678)

86. mál, áfengislög

Árni Johnsen:

Herra forseti. Mér þykir ástæða til að hér komi fram, þar sem ég er meðflm. að till. um skoðanakönnun meðal þjóðarinnar í þessu máli, að það er sú leið sem ég get sætt mig við í málsmeðferð hv. Ed. Ég mundi á hinn bóginn greiða atkv. gegn frv. í beinni atkvgr. í deildinni. Ástæðan fyrir því er sú að ég tel að hér sé um neikvætt mál að ræða.

Það er sérstaklega tvennt sem ég óttast með tilkomu áfengs öls. Það er aukinn drykkjuskapur meðal barna og unglinga og það er aukinn drykkjuskapur á vinnustöðum. Segja má að það sé smekksatriði hvort menn vilja hafa áfengt öl en í ljósi þess að hefð er fyrir því að kosið er í almennum kosningum um opnun á áfengisútsölum finnst mér þetta mál vera svo viðamikið í þeirri áfengisútgerð sem er í landinu að það sé ástæða til að vísa því til skoðanakönnunar meðal þorra landsmanna. Það er rétt, að mínu mati, að menn afgreiði það mál með því móti, hreinsi það út, mál sem hefur lengi verið deilumál meðal þjóðarinnar og kemur upp á borðið æ aftur þótt gætt hafi flóðs og fjöru í því.

Það hefur komið fram hér í umr. að deilt er á fréttamenn fyrir fréttaflutning af þessu máli. Mér rennur blóðið til skyldunnar og þykir ástæða til að mótmæla slíkum ásökunum á fréttamenn. Það er ekki mikilvægi máls sem vekur fréttina. Það er erfitt að vigta hvað frétt er. Það muna ugglaust allir hér inni eftir því að fyrir nokkrum árum fórst lítill drengur í borholu á Ítalíu. Þessi frétt varð stórfrétt um allan hinn vestræna heim. Það var um svipað leyti sem fórust hundruð þúsunda manna í flóðum á Indlandi. Það varð ekki eins stór frétt í hinum vestræna heimi. Þetta er dæmi um að frétt fer ekki eftir því hvað hún er mikilvæg eða skynsöm. Það má segja að góðir fréttamann séu eins og næmir hljóðnemar í þjóðfélaginu. Mér finnst það bera vott um marga góða fréttamenn í okkar landi að þeir fjalla um þau mál sem eru mikið rædd. Það er bjórmálið vissulega. Af þeim ástæðum finnst mér m. a. ástæða til þess að vísa því til þjóðaratkvæðisskoðanakönnunar.

Ég vildi aðeins undirstrika þetta, sem ég hef sagt í máli mínu, í sambandi við þessa till.