10.06.1985
Efri deild: 94. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6222 í B-deild Alþingistíðinda. (5688)
Um þingsköp
Eiður Guðnason:
Vegna þeirrar afar sérkennilegu ræðu sem hæstv. menntmrh. flutti áðan vil ég að það komi skýrt fram að þetta mál var afgreitt úr nefnd í morgun. Það er hér á dagskrá með afbrigðum. Það hafa allir — og það eru fjórir minni hlutar í málinu — skilað sínum nál. og sínum brtt. og margir búnir að leggja mikla vinnu í það fyrir og um helgina að ganga frá þeim till. Síðan kemur hæstv. menntmrh. hér og brigslar hv. þm. um það, svona nánast, að þeir hafi hvorki dug né kraft til að vinna eins og til sé af þeim ætlast — ég vil segja: eins og hæstv. menntmrh. ætlast til. Það er einkennilegt offors sem rekur á eftir þessu máli og það hefur komið mjög vel fram í menntmn. þar sem um þetta mál hefur verið fjallað og vitna ég til fundar þingflokksformanna og forseta sem virðulegur forseti okkar vitnaði til áðan. Ef það væri samkomulag, ef það væri ljóst að þingi gæti lokið um helgi, þá væri auðvitað ekkert því til fyrirstöðu að leggja dag við nótt til að ljúka, en það er bara svo, að þó að menn töluðu á þessum forseta- og þingflokksformannafundi þannig að menn skyldu hafa það í huganum enn þá að þingi gæti lokið um helgina er ekkert víst um það. Það kom mjög vel fram á þessum fundi að hin ýmsu mál, sem ríkisstj. leggur áherslu á að verði afgreidd, eru mörg hver býsna skammt á veg komin og eftir við þau mikil vinna og það voru ýmsir þeirrar skoðunar á þessum fundi í dag að þing mundi standa fram í miðja næstu viku. Það var nefndur fimmtudagur. Ég er viss um að hv. 3. þm. Norðurl. v. getur staðfest hvernig þær umræður voru sem áttu sér stað á þessum fundi. Það liggur því ekkert fyrir á þessari stundu um að þingi geti lokið á föstudag eða laugardag í þessari viku.