11.06.1985
Sameinað þing: 93. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6224 í B-deild Alþingistíðinda. (5692)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 11. júní 1985.

Formaður þingflokks sjálfstæðismanna hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem Albert Guðmundsson 1. þm. Reykv. er erlendis og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér samkv. beiðni hans og með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að vegna fjarveru 1. varamanns taki 2. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavík, Guðmundur H. Garðarsson viðskiptafræðingur, sæti á Alþingi í fjarveru hans.“

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Stefán Benediktsson,

forseti Ed.“

Guðmundur H. Garðarsson hefur áður setið á þessu þingi, og býð ég hann nú á ný velkominn til starfa.