11.06.1985
Neðri deild: 92. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6295 í B-deild Alþingistíðinda. (5730)

248. mál, Þjóðskjalasafn Íslands

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég hef í hv. menntmn. tekið undir það álit, sem n. stendur sameinuð að, að eðlilegt sé að mæla með samþykkt frv. til l. um Þjóðskjalasafn Íslands. Þetta er mál sem undirbúið hefur verið af sérstakri nefnd og kunnáttumönnum sem ég treysti til að standa þar að verki, og lítils háttar breytingar voru gerðar við málið í meðförum hv. Ed. Þó finnst mér að nokkuð hafi á skort að til væru kvaddir aðilar sem hafa reynslu af starfi sem héraðsskjalaverðir úti um landið.

Í nefndinni sem samdi þetta frv. að stofni til voru dr. Aðalgeir Kristjánsson skjalavörður í Þjóðskjalasafni, dr. Gunnar Karlsson prófessor og Jón E. Böðvarsson. Þessi nefnd sem ég nefndi var skipuð 1980, en 1982 var skipuð önnur nefnd sem í áttu sæti Birgir Thorlacius, þáv. ráðuneytisstjóri, Bjarni Vilhjálmsson þjóðskjalavörður og Bjarni Einarsson framkvæmdastjóri. Það er sú nefnd sem skilaði áliti 1984 og er frv. einkum byggt á starfi þessarar síðartöldu nefndar.

Ég tel það hins vegar miður að þetta mál kom seint til hv. Nd. til skoðunar og meðferðar þannig að menntmn. gat ekki tekið sér þann tíma sem ég hafði talið að æskilegur væri til þess að óska umsagna um þetta frv. allmargra aðila sem málið varðar. Þó var uppi höfð viðleitni af hálfu nefndarinnar og m. a. að minni beiðni til þess að fá fram viðbrögð manna sem starfa við héraðsskjalasöfn á landsbyggðinni. Nefndin fékk í hendur sérstakt álit frá héraðsskjalaverðinum sem veitir forstöðu Héraðsskjalasafni Austfirðinga á Egilsstöðum, Sigurði Óskari Pálssyni, dags. 17. maí, og hluti þeirra brtt. sem ég stend hér að og flyt á sérstöku þskj., 1228, styðst við ábendingar sem fram koma í erindi þessa mæta safnvarðar og fræðimanns sem einnig hafði samráð við Ármann Halldórsson sem um árabil hefur unnið mikið starf við Héraðsskjalasafn Austfirðinga en lét af því starfi vegna aldurs á síðasta ári.

Það hefði sem sagt að mínu mati verið æskilegt að þetta mál fengi ítarlegri skoðun áður en frv. yrði að lögum hér á hv. þingi og vissulega verður þingið að meta hvort það vill taka sér rýmri tíma til að skoða þetta mál eða lögfesta það nú á grundvelli þeirra gagna sem fyrir liggja. Hér er verið að sameina tvo lagabálka, annars vegar um Þjóðskjalasafnið, sem sérstök lög hafa gilt um, og lög um héraðsskjalasöfn. Það er verið að steypa þessum lögum, endurskoðuðum báðum, í eina heild og það tel ég út af fyrir sig góðra gjalda vert. Þar er tekið á máli með ekki ósvipuðum hætti og gert er t. d. varðandi þjóðminjalögin sem kveða á um málefni Þjóðminjasafns og byggðasafna í einum lagabálki. Málefni þjóðminjanna eru sér á parti og ætla ég ekki að gera þau hér að umtalsefni að öðru leyti en því að fyrir meira en ári var því heitið af hæstv. menntmrh. að fram kæmi frv., sem löngu er undirbúið, um endurskoðun þjóðminjalaga, löngu tímabæra endurskoðun þjóðminjalaga. Einhverra hluta vegna hefur það frv. ekki séð dagsins ljós á þessu þingi þó gefnar væru vonir um að það kæmi fram fyrir lok síðasta þings. Þetta tel ég ekki til fyrirmyndar í sambandi við mál sem undirbúin hafa verið og enginn stórpólitískur ágreiningur ætti að vera um, einnig með það í huga að þinginu gefist ráðrúm til þess að skoða slík mál og út af fyrir sig ekkert á móti því þó að lagasetningin sjálf drægist milli þinga vegna málsmeðferðar.

Ég ætla hér, herra forseti, að gera grein fyrir brtt. sem ég flyt á þskj. 1228 við frv. til l. um Þjóðskjalasafn, en þær eru svohljóðandi:

Í fyrsta lagi er þar breyting við 1. gr. Lagt er til að 4. mgr. orðist svo:

„Forseti Íslands skipar þjóðskjalavörð til fimm ára skv. tillögu menntmrh., að fenginni umsögn stjórnarnefndar safnsins. Heimilt er að undangenginni auglýsingu að endurskipa sama mann í fimm ár til viðbótar. Þjóðskjalavörður annast daglegan rekstur og stjórn safnsins og kemur fram fyrir þess hönd út á við.“

Í öðru lagi bætist við 5. gr. ný mgr. svohljóðandi: „Safnið skal leitast við að safna heimildum og frumgögnum varðandi atvinnu- og verslunarsögu þjóðarinnar og hafa samvinnu við héraðsskjalasöfn um varðveislu slíkra gagna.“

Þriðja brtt. er við 14. gr., sem snertir héraðsskjalasöfn sérstaklega, og er um það að á eftir 2. mgr. komi ný mgr. er svo orðist:

„Héraðsskjalasöfn skulu leitast við að komast yfir önnur skjöl en þau sem skilaskyld eru, svo sem skjöl hvers kyns félagasamtaka, einkaskjöl og handrit, örnefnaskrár og ættfræðigögn og annað það er byggðasögu varðar, þannig að þau geti orðið miðstöðvar byggðasöguritunar hvert á sínu svæði. Í því skyni skulu héraðsskjalasöfn skiptast á heimildum er þeim berast hverju af annars svæði.“

Þetta eru þær þrjár brtt. sem ég flyt við frv. um Þjóðskjalasafn Íslands. Varðandi fyrstu brtt., um skipunartíma þjóðskjalavarðar, að takmarka hann við fimm ár, er þess að geta að þar er verið að framfylgja hugmynd, sem ég hef látið koma fram í tillöguformi varðandi fleiri lagafrv. og sumpart hefur verið tekin inn í lög nú þegar, þess efnis að takmarka skipunartíma æðstu embættismanna og miða hann við fimm ára starfstíma, þó með endurráðningarheimild að undangenginni auglýsingu í önnur fimm ár til viðbótar.

Hv. 2. þm. Norðurl. e. hafði þau orð um þessa brtt. mína að hún ætti að koma til athugunar í sambandi við heildarskoðun þessa máls. Nú er það út af fyrir sig góðra gjalda vert að mál þessi séu skoðuð í heild sinni og sett um þau samræmd löggjöf. Ég væri þakklátur fyrir að ríkisstj. beitti sér fyrir undirbúningi þess máls fyrir næsta þing og tek alveg undir það að eðlilegt er að sett sé um þetta almenn regla, en það má þá ekki sitja við orðin tóm. Og ég vænti þess að hv. þm., hver sem afdrif þessarar brtt. minnar verða, fylgi því eftir í sínum flokki og við hæstv. viðkomandi ráðh. að unnið verði að mótun frv. um þau efni sem setji almenna reglu um takmarkaðan ráðningartíma æðstu embættismanna.

Ekki er óeðlilegt að ákveðnir þættir sem snerta kjör þeirra komi til sérstakrar skoðunar í tengslum við slíkar breytingar, en ég vísa til þess minni till. til stuðnings að ákvæði sem þetta hefur verið tekið upp m. a. í lögum um Iðntæknistofnun Íslands og raunar verið beitt í reynd í tilviki þeirrar stofnunar og einnig í sambandi við Þjóðleikhúsið. Og ég veit ekki til þess að það hafi orðið nein stórfelld óþægindi af þeirri málsmeðferð á grundvelli þeirra laga og það sé fremur hvatning en hitt til þess að taka þessa reglu upp í lög þegar færi gefst eins og hér þegar verið er að endurskoða lagabálka. Ég held að þessi hugsun eigi vaxandi hljómgrunn í sambandi við starfstíma embættismanna og takmarkist ekki við flokka, enda hygg ég að það hafi t. d. verið Sjálfstfl. sem reið á vaðið með það 1977 eða 1978 í sambandi við lagasetningu um Iðntæknistofnun Íslands að taka þar upp fimm ára skipunartíma, ráðningartíma forstöðumanns þeirrar stofnunar, og færi ekki illa á því að sami flokkur veitti nú þessu máli stuðning í þinginu.

Varðandi hin atriðin, um það að Þjóðskjalasafnið horfi víðar en aðeins til skilaskyldra gagna og gagna frá félögum sem hljóta verulegan ríkisstuðning, þá held ég að það hljóti að vera viðhorf sem menn geta tekið undir og raunar gerði hv. frsm. menntmn. það í sínu máli, en bætti því við að honum fyndust þetta vera atriði sem ættu heima í reglugerð. Ég tel alltaf tryggara að veita slíkum hugmyndum stoð í lögum sem hugmynd er að taka upp í reglugerð á grundvelli viðkomandi laga og þar sem þessi ákvæði eru væntanlega nánast sjálfsögð í hugum margra þm. vænti ég þess að þessi brtt. hljóti stuðning. Það skiptir ekki minna máli þegar verið er að halda til haga gögnum fyrir framtíðina að líta til þátta sem snerta önnur atriði en hið opinbera á Íslandi, verslunar- og atvinnusögu þjóðarinnar, sem er auðvitað undirstaða mannlífs í þessu landi, en þar sem ótrúlega hirðuleysislega hefur verið farið með frumgögn og margt lent í glatkistuna sem betur væri varðveitt þannig að við mættum af því læra, nútímamenn og síðari tíma menn í landinu.

Hið sama gildir um till. um héraðsskjalasöfn. Þar er sama hugsun á ferðinni, að héraðsskjalasöfn á hverju svæði haldi til haga sem fyllstum gögnum þannig að þau geti orðið miðstöð fræðistarfsemi byggðasöguritunar hvert á sínu svæði og þar verði að finna sem heildstæðust gögn sem varða svæðið, atvinnusögu, en líka sögu einstaklinga, framlag manna í rituðu máli, bundnu sem óbundnu, og það sem varðar persónulega hagi og viðkomandi hafa ekki orðið til að farga sjálfir og er þannig betur geymt en glatað.

Ég vænti þess, herra forseti, að þessar till., sem á engan hátt þurfa að verða til að tefja framgang þessa máls, fái nægilegt fylgi í hv. þd.