11.06.1985
Sameinað þing: 95. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6327 í B-deild Alþingistíðinda. (5743)
Almennar stjórnmálaumræður
Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Góðir Íslendingar. Það þing sem senn lýkur hefur, eins og reyndar þjóðfélagið í heild, einkennst af þeirri kollsteypu sem var í efnahagsmálum með verðbólguöldinni um s. l. áramót. Ég ætla þó ekki að eyða mörgum orðum á verðbólguna. Ég trúi ekki öðru en að öllum almenningi a. m. k. muni vera fullkomlega ljóst að slíkt má ekki henda aftur. Verðbólgan eyðir ekki aðeins hverjum þeim kjarabótum sem um kann að vera samið heldur skilur jafnframt atvinnulífið og fjölmarga einstaklinga í þjóðfélaginu eftir í miklum erfiðleikum. Auk þess eru erlendar skuldir þjóðarbúsins það miklar að lítið má út af bera til þess að meiri háttar greiðsluerfiðleikar verði.
Aðgerðir stjórnvalda undanfarna mánuði hafa beinst að því að draga jafnt og þétt úr verðbólgu, leysa erfiðleika ýmissa þjóðfélagshópa, ná jafnvægi í efnahagsmálum og skapa grundvöll fyrir nýja framfarasókn. Um þessi atriði mun ég fyrst og fremst fjalla, þó að ásfæða hefði verið til að ræða ýmislegt af því sem fram hefur komið frá stjórnarandstæðingum, eins og t. d. byggðastefnu hv. þm. Guðmundar Einarssonar. Þeir í Bandalagi jafnaðarmanna boða nú að samhjálp skuli hætta, hvert byggðarlag skuli sjá um sig. Í raun og veru boða þeir meiri frjálshyggju en öfgafyllstu markaðshyggjumenn. Umræða um það verður að bíða betri tíma.
Verðbólga hefur hjaðnað ört á ný og stefnir nú óðum í svipað og var s. l. sumar. Þetta er ánægjulegt. Hins vegar eru rústir verðbólguelds undanfarinna ára miklar og vandamálin mörg, þó ég sé alls ekki sammála þeirri svartnættislýsingu sem kom fram hjá Svavari Gestssyni hér áðan. Í raun og veru má rekja marga þessa erfiðleika, ef ekki alla, til 1982 þegar verðbólgan jókst og þjóðarframleiðslan fór minnkandi og ekki náðist samstaða við Alþb. um raunhæfar aðgerðir í efnahagsmálum. Frá þeim tíma eiga margir um sárt að binda, ekki aðeins húsbyggjendur heldur einnig flestir aðrir sem hafa orðið fyrir því að eigið fé hefur brunnið upp í eldi verðbólgunnar. Líklega hefur undirstöðuatvinnuvegur þjóðarinnar, sjávarútvegurinn, sem allt byggist raunar á, farið einna verst út úr þessari þróun því aflabrestur undanfarinna þriggja ára hefur að sjálfsögðu orðið sjávarútveginum þungur í skauti. Erfiðleika bænda með miklar verðtryggðar fjárfestingar má rekja til sömu staðreynda, misgengis á milti fjármagnskostnaðar og tekna, eða m. ö. o. verðbólgunnar. En auk þess hefur samdráttur í framleiðslu að sjálfsögðu til viðbótar skert mjög afkomu bænda.
Við slíkum erfiðleikum hafa stjórnvöld snúist af krafti. Stjórnvöld hafa lagt áherslu á að veita húsbyggjendum aðstoð, eins og félmrh. hefur rakið ítarlega hér fyrr í kvöld. Sumir gera lítið úr þessu átaki og krefjast meira. Það sýnist mér ekki sanngjarnt. Mér er ljóst að sumum einstaklingum nægir ekki þessi aðstoð. Á slíkum vandamálum verður að taka sérstaklega ef þau eru þá leysanleg. En það er einnig staðreynd að fjölmörgum öðrum í þjóðfélaginu verður að hjálpa eftir verðbólgueldinn. Húsbyggjendur eru ekki einir.
Þó mikill fjármagnskostnaður og verðbólga hafi leikið sjávarútveginn grátt eins og aðra aðila í þjóðfélaginu hygg ég þó að aflabresturinn ráði úrslitum um afkomu sjávarútvegsins á undanförnum þremur árum. Það munar satt að segja um minna en samdrátt í þorskafla úr 460 þús. lestum árið 1981 í 270 þús. lestir í fyrra. Að sjálfsögðu er það lífsspursmál fyrir þjóðarbúið í heild að rekstrargrundvöllur sjávarútvegsins sé viðunandi. Hins vegar lýsir það ótrúlegum óheilindum þegar stjórnarandstæðingar annars vegar áfellast ríkisstj. fyrir gengisfellinguna s. l. haust og kalla hana árás á kjörin og óþarfa, en krefjast hins vegar í næstu ræðu að sjávarútveginum sé skapaður rekstrargrundvöllur. Ég skildi Karl Steinar ekki öðruvísi en svo í þeim orðum sem hann lét falla hér áðan, að þjóðin öll ætti að axla erfiðleika sjávarútvegsins, eflaust með enn þá meiri gengisfellingu.
Í rauninni er margt sem bendir til þess að gengisfellingin hefði þurft að vera meiri. Þá hefði sjávarútvegurinn fengið betri rekstrargrundvöll, þá hefði dregið úr innflutningi og viðskiptahalla og hagnaður milliliðanna, sem svo oft er talað um, orðið minni. Ríkisstj. treysti sér þó ekki til að ganga svo langt vegna kaupmáttar almennings. Í stað þess hafa fjölmargar aðrar ráðstafanir verið gerðar til þess að bæta afkomu sjávarútvegsins.
Ég nefni í því sambandi þá víðtækustu skuldbreytingu og lengingu lána sem nokkru sinni hefur verið framkvæmd. Í þessu felst að sjálfsögðu viðamikil fjárhagsleg endurskipulagning útgerðarinnar. Þá minni ég á lækkun vaxta í Fiskveiðasjóði, endurgreiðslu söluskatts, sem mun verða yfir 500 millj. kr. á ársgrundvelli, og endurgreiðslu seðlabankans á vaxtagreiðslum fiskvinnslunnar, fyrst og fremst, sem nema samtals um 430 millj. kr. Sérstaklega hefur verið leitast við að aðstoða skreiðarframleiðendur sem eiga að sjálfsögðu í miklum erfiðleikum vegna markaðsmála. Samkomulag náðist við Seðlabankann um viðbótarendurgreiðslu til þeirra, sem nemur skv. áætlun bankans yfir 90 millj. kr., og á lánsfjárlögum nú er heimild til þess að skreiðardeild Verðjöfnunarsjóðs eða ríkissjóður yfirtaki afurðalán að upphæð 250 millj. kr. sem á skreiðinni hvíla. Greiðslur og ábyrgðir ríkissjóðs og Seðlabanka vegna sjávarútvegsins nema þannig á rúmu ári yfir 1 milljarð kr. auk skuldbreytinga og vaxtalækkunar Fiskveiðasjóðs.
Þrátt fyrir þessar miklu ráðstafanir er mér fullkomlega ljóst að rekstrargrundvöllur sjávarútvegsins er of slakur. Því veldur fyrst og fremst of lítill botnfiskafli, erfiðleikar á mörkuðum, einkum með sölu skreiðar, og mikill fjármagnskostnaður. Einnig er það ákaflega alvarlegt að víða gengur illa að manna húsin þannig að sá afli sem á land berst verður ekki unninn í verðmætustu umbúðir.
Nú er sjór hlýnandi og afli vaxandi. Það er að sjálfsögðu mjög mikilvægt. Engu vil ég spá um skreiðarmarkaðinn þótt enn séu vonir bundnar við það að hann opnist. Ég skal viðurkenna að ég þekki ekki ráð til þess að lækka fjármagnskostnað fiskvinnslunnar. Lánin eru að langmestum hluta erlend og við vexti af því fjármagni ráðum við ekki. sjálfsagt er þó að leyfa fiskvinnslunni að ráða sjálfri eins og frekast er fært í hvaða gjaldeyri hún vill skulda. Þó er ég ekki viss um að það leysi nokkurn vanda.
Það er mikið áhyggjuefni að víða skortir fólk í fiskvinnsluna. Húsin standa hálftóm og vinna verður aflann í framleiðslu sem gefur lítið. E. t. v. er þetta stærsta vandamál fiskvinnslunnar. Það er mín skoðun að óhjákvæmilegt sé að bæta kjör fiskvinnslufólks. Ef með því tekst að skipa hvert borð hæfum starfsmanni færði það fiskvinnslunni víða um land í tekjum margfaldan þann kostnað sem í launahækkuninni fælist.
Þótt vaxandi sjávarafli sé e. t. v. mikilvægastur í afkomu sjávarútvegsins er nauðsynlegt að vinna áfram að því að bæta afkomuna eftir öðrum leiðum en með því að fella gengið. Ég er reyndar sannfærður um að þær leiðir eru margar, m. a. stóraukin tæknivæðing og betra hráefni.
Óvíða er þó þörfin meiri fyrir bæði aðstoð og víðtæka endurskipulagningu en í landbúnaði. Ekki aðeins hefur fjármagnskostnaður orðið bændum ákaflega þungur í skauti heldur má einnig með sanni segja að úfflutningur landbúnaðarafurða sé fyrir allnokkru orðinn óframkvæmanlegur. Þjóð sem er skuldum hlaðin erlendis hefur ekki efni á því að greiða yfir 70% með útflutningi eða styrkja offramleiðslu á annan máta. Að sjálfsögðu auka slík útgjöld sem önnur á erlendar lántökur þjóðarinnar.
Langsamlega mikilvægast fyrir bændur landsins í þeirri stöðu sem nú er og reyndar fyrir þjóðarbúið í heild er að markvisst verði að því unnið að draga úr óarðbærri umframframleiðslu, losna að mestu við útflutningsbætur og vafasama styrki, en vinna hins vegar skipulega á sama tíma að því að byggja upp nýjar búgreinar í sveitum og aðstoða þá bændur sem eiga í mestum erfiðleikum.
Sem betur fer hefur undanfarið verið unnið á þennan máta ötullega að því að koma á fót nýjum búgreinum, einkum loðdýrarækt. Á þessu ári mun að öllum líkindum meira en tvöfaldast fjöldi slíkra búa og verða þau þá orðin hátt í 200. Fóðurstöðvar hafa einnig nú verið skipulega reistar. Í lán og styrki vegna nýrra búgreina verður í ár varið um 200 millj. kr. og er það um það bil þrefalt meira en ráðstafað var til nýrra búgreina á s. l. ári. Ég er sannfærður um mikla möguleika í íslenskum landbúnaði ef rétt er að málum staðið. Það verður að gera skipulega og til þess þarf mikið fjármagn. Í því skyni er mikilvægast að það frv. um framleiðslu landbúnaðarafurða o. fl. sem nú liggur fyrir Alþingi fáist samþykkt. Án þess mun reynast erfitt að taka markvisst á þessum málum eins og að er stefnt.
Vegna útúrsnúninga Svavars Gestssonar hér áðan vil ég gjarnan taka fram að það er svo sannarlega mín skoðun að þeir sem ekki skilja þetta og engar breytingar vilja séu að hugsa um sjálfa sig en ekki fjöldann, m. a. ekki fjölda bænda.
Ég hef farið nokkuð mörgum orðum um viðleitni stjórnvalda til þess að leysa erfiðleika stórra þjóðfélagshópa, því ég tel það ákaflega mikilvægt ef framhaldið á vel að takast. Mér er fullkomlega ljóst að kröfugerðarmenn og stjórnarandstæðingar gera lítið úr þessum ráðstöfunum. Það er ósanngjarnt. Aðgerðirnar eru víðtækar og miklar, eins og ég hef rakið, þótt þær leysi að sjálfsögðu ekki allan vandann. Mér hefur þótt ánægjulegt að verða var við að fjölmargir einstaklingar, sem hafa fengið aðstoð, leggja sig jafnframt ötullega fram við að vinna sig út úr vandanum og gengur það vel. Og að sjálfsögðu er það lykilorðið. Við Íslendingar verðum að vinna okkur út úr vandanum.
Ég kem þá að því sem ég tel langstærsta vandamálið sem við íslenskri þjóð blasir í dag, erlendum skuldum og greiðslubyrði af þeim. Þótt tekist hafi undanfarin tvö ár að draga úr hækkun erlendra skulda hafa þær þó aukist nokkuð og eru nú taldar vera 63% þjóðarframleiðslu eða nálægt 56 milljarðar kr. Vaxtagreiðslur af erlendum skuldum hafa einnig að sjálfsögðu stóraukist. Þær voru á s. l. ári meira en 5 milljarðar eða rúmlega 19% gjaldeyristekna þjóðarinnar. Þessar staðreyndir eru það alvarlegar að varla er nú unnt að taka nokkra ákvörðun í þjóðmálum án þess að vega og meta áhrifin á erlenda skuldastöðu þjóðarbúsins. Ég er í engum vafa um að við Íslendingar getum einnig unnið okkur út úr þessum vanda. En því verður hins vegar ekki neitað að með þessu er okkur sniðinn þröngur stakkur.
Í fyrsta lagi er að sjálfsögðu útilokað að halda lengur uppi lífskjörum og kaupmætti með erlendri skuldasöfnun eins og við höfum því miður gert árum saman. Í öðru lagi eru gífurlegar vaxtagreiðslur til útlanda að sjálfsögðu megin þrándur í götu þess að bæta megi kjörin. Þeir 5 milljarðar sem til útlanda greiðast í vexti á ári hverju renna ekki í vasa launafólks hér á landi, það má öllum ljóst vera.
Í þriðja lagi er það brýnasta verkefnið nú að vinna sig út úr þessum vanda. Það getum við Íslendingar gert, eins og ég sagði fyrr, ef við viljum. Af þessum ástæðum hefur ríkisstj. lagt á það höfuðáherslu að skapa grundvöll fyrir nýja framleiðslu bæði í eldri greinum og nýjum. Og ég er sammála Svavari Gestssyni um það að þarna eru óhemjumiklir möguleikar. Ég er hins vegar ósammála honum um það að ríkisvaldið eigi að hafa forustu um framkvæmdirnar sjálfar. Ég treysti betur einstaklingum og samtökum þeirra, einkafyrirtækjum og samvinnufyrirtækjum. Ríkisvaldinu ber hins vegar að skapa nauðsynlegan grundvöll.
Þótt fjármagn sé mjög af skornum skammti hefur þegar, eins og ég hef lauslega minnt á, verulegu fjármagni verið varið til þess að koma á fót nýjum greinum, t. d. í landbúnaði, einkum loðdýrarækt. Fiskeldi er einnig í hröðum vexti og eru miklar vonir við það bundnar. Einna mikilvægast tel ég þó það almenna átak sem verið er að gera með þróunarfélagi á vegum ríkis og einkaaðila, frv. það sem liggur nú fyrir Alþingi og verður samþykkt áður en Alþingi er slitið. Til slíks félags skuldbindur ríkissjóður sig að leggja sem hlutafé 100 millj. og ríkisábyrgð að upphæð samtals 500 millj. kr. Þetta er mikið fjármagn. Því verður að taka þetta að láni erlendis því að innlent fjármagn er ekki fáanlegt. Verkefnið er hins vegar svo nauðsynlegt að í þessu skyni sýnist mér slíkt afsakanlegt. Það er ótrúlegur sóknarhugur í fjölmörgum einstaklingum og samtökum þeirra á ýmsum nýjum sviðum.
Ef okkur tekst að koma í veg fyrir nýja kollsteypu í efnahagsmálum er það sannfæring mín að uppskeran verði mikil þegar til lengri tíma er litið. Það mun hins vegar taka nokkurn tíma, jafnvel ár og krefst vinnufriðar.
Í þessu sambandi legg ég áherslu á að þekkingin er sá grundvöllur sem nýsköpun í atvinnulífi verður að byggjast á. Því hefur verið ákveðið að ráðstafa 50 millj. kr. til rannsókna og tilrauna á slíkum sviðum. Einnig er óhjákvæmilegt að endurskipuleggja kennslukerfið og búa vel að kerfinu.
Afskiptum stjórnvalda af nýsköpun í atvinnulífi er ekki lokið með því stóra átaki sem nú er verið að gera. Stjórnvöld geta og verða að stuðla að slíku með ýmsum beinum og óbeinum aðgerðum áfram. Því skipaði ég í apríl s. l. nefnd til þess að gera tillögur um opinberar aðgerðir sem stuðla að þróun nýrra atvinnugreina. Hún hefur nú skilað fróðlegu áliti með ýmsum athyglisverðum ábendingum sem úr verður unnið í sumar. Því má þó ekki gleyma að eflaust gefa framfarir og tæknivæðing í fiskvinnslunni arð skjótast.
Allt það sem gert er til þess að rétta hlut þeirra aðila í þjóðfélaginu sem í mestum erfiðleikum eru eftir verðbólgueld undanfarinna ára, allt sem gert er til þess að skapa grundvöll fyrir nýsköpun í atvinnulífi og auka þjóðarframleiðslu, öll viðleitni til að draga úr erlendri skuldasöfnun eða koma á jafnvægi í peningamálum er háð því að ekki verði ný kollsteypa í efnahagsmálum. Ný verðbólgualda myndi eyða mestu af því sem áunnist hefur og skilja þjóðfélagið eftir í enn verri stöðu.
Kjarasamningar þeir sem nú er unnið að eru því ákaflega mikilvægir. Því hefur ríkisstj. lýst því yfir að hún sé reiðubúin að taka þátt í slíkum kjarasamningum eins og aðilar vinnumarkaðarins óska og gera sitt besta til að bæta megi kjörin með beinum og óbeinum aðgerðum. Þegar hafa átt sér stað allítarlegar viðræður um húsnæðismál sem tvímælalaust báru verulegan árangur. Ríkisstj. er jafnframt reiðubúin til þess að ræða um hvað það annað sem á hennar valdi er, eins og t. d. lækkun skatta og viðnám gegn verðhækkunum. Ég er sannfærður um að mikill meiri hluti launþega gerir sér fulla grein fyrir þessum staðreyndum. Hins vegar óttast ég að hin háværu upplausnaröfl vilji ráða ferðinni. Það má að sjálfsögðu ekki gerast. Til þess er allt of mikið í húfi.
Ég endurtek það sem ég hef áður sagt: Þessi ríkisstjórn mun ekki horfa aðgerðarlaus á aðra kollsteypu í efnahagsmálum.
Góðir Íslendingar. Okkur framsóknarmönnum hefur ætíð verið ljóst að ekki yrði auðvelt að endurreisa íslenskt atvinnu- og efnahagslíf eftir verðbólgueld og samdrátt þjóðarframleiðslu. Við kusum þó að hafa forustu um það nauðsynlega starf. Frá þeirri ábyrgð munum við ekki hlaupa.