12.06.1985
Neðri deild: 93. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6376 í B-deild Alþingistíðinda. (5784)

245. mál, lánsfjárlög 1985

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Þar sem eftir er að marka stefnu í þessum málum og ég tel að það sé mjög varhugavert að byggja upp stórar fiskeldisstöðvar, þá kæmi samt til greina að veita ríkisábyrgð af takmarkaðri stærð. Áhættan er svo mikil með þær stöðvar sem hér er verið að ræða um. Þess vegna segi ég nei.