12.06.1985
Neðri deild: 93. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6376 í B-deild Alþingistíðinda. (5785)

245. mál, lánsfjárlög 1985

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Þótt ég sé þeirrar skoðunar að mjög sé nauðsynlegt að takmarka heimildir til ríkisábyrgðar lít ég svo á að um fiskeldi kunni svo að vera að óhjákvæmilegt sé að ríkið veiti ábyrgðir. Ég hef því látið fara fram sérstaka athugun á þörf ríkisábyrgða vegna fiskeldis og hef nú fengið á mitt borð tillögur um lausn á því máli. Þar er lagt til að ríkisábyrgð verði bundin ákveðnum skilyrðum eins og auknu eigin fé viðkomandi fyrirtækja og verði sömuleiðis takmörkuð að heildarupphæð. Þetta er nú til athugunar í ríkisstj. og ég geri ráð fyrir því að ríkisstj. muni afgreiða það mál fljótlega.

Ég held að sú till. sem hér liggur fyrir, þótt hún sé um margt góðra gjalda verð, fullnægi ekki þörfinni og verði þetta mál því að afgreiðast á breiðara grundvelli eins og ég hef lýst og ríkisstj. hefur nú til meðferðar. Ég segi því nei.