13.06.1985
Sameinað þing: 95. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6438 í B-deild Alþingistíðinda. (5828)
222. mál, stofnun og rekstur smáfyrirtækja
Frsm. minni hl. (Kristín S. Kvaran):
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 1034 frá minni hl. atvmn.
Eins og fram kemur í áliti meiri hl. n. er þar tekið undir það meginsjónarmið flm. till. að efla þurfi atvinnulíf með stuðningi við stofnun og rekstur smáfyrirtækja. Þá vil ég vitna í nál. sem að vísu var að hluta til lesið upp áðan:
Almenn rekstrarskilyrði atvinnuveganna skipta miklu fyrir möguleika samtaka og einstaklinga til að reka fyrirtæki. Ýmis óbein aðstoð af hálfu hins opinbera, ríkis og sveitarfélaga, getur og stuðlað að stofnun og rekstri fyrirtækja.“
Svo mörg voru þau orð.
Enn fremur er í rökstuddri dagskrá tekið undir þetta mál áfram með því að þar er í raun og veru skorað á ríkisstj. að hafa uppi markvissar aðgerðir til eflingar íslensku atvinnulífi. Það er þess vegna augljós nauðsyn á skipulegu átaki og markvissri heildarstefnu.
Hér er um að ræða till. sem gengur í þá átt að bæta lífskjör á Íslandi með því að nauðsynlegt er að efla nýjan atvinnurekstur. En til að svara síðasta ræðumanni, sem talaði um að það væri keimur af því að það ætti að fara að leggja þetta allt á brjóst ríkisins, eins og hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson orðaði það hér áðan, þá vil ég leyfa mér að vitna í grg. með till. þar sem segir, með leyfi forseta:
„Einhver algengasta ræða íslenskra stjórnmálamanna er um nauðsyn þess að fjölga atvinnugreinum. Þetta er kallað ýmsum nöfnum, svo sem að renna fleiri stoðum undir, að auka fjölbreytni, að brydda á nýjungum, að fjölga burðarásum o. s. frv. Þrátt fyrir óþrjótandi hugkvæmni við nafngiftirnar hefur árangurinn látið á sér standa. Enn þá er íslenskt atvinnulíf einhæft. Enn þá bíðum við fjölbreytileikans.“
Það er einmitt það sem þessari till. er ætlað að gera og með þessari till. er verið að leggja til að ríkisstj. gangist fyrir slíku frumkvæði í eflingu atvinnulífs af þessu tagi og leggur minni hl. n. því til að hún verði samþykkt.
Undir þetta rita Kristín S. Kvaran og Jóhanna Sigurðardóttir.