13.06.1985
Neðri deild: 95. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6472 í B-deild Alþingistíðinda. (5874)

48. mál, jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Eins og frsm. félmn., hv. 2. þm. Reykv., tók fram komu nokkuð margar tillögur fram í nefndinni sem sýndu að það voru skiptar skoðanir um hvernig ætti að taka á þessu máli.

Ég vonaðist til þess, þegar kvennaáratugnum er að ljúka, að Alþingi Íslendinga gæti tekið stórt skref í þá átt að nálgast það mark að hér á landi ríkti jafnrétti á sem flestum sviðum. Ég lagði m. a. fram nokkrar tillögur sem ég ætla að fara yfir nú.

Mér var hins vegar ljóst að það varð að nást samkomulag í nefndinni til þess að frv. ætti möguleika á að verða að lögum og við vorum sammála um að langtum betra væri að stíga það skref, sem næðist með því samkomulagi sem varð, en hver og einn færi að flytja brtt. og málið mundi þar með stöðvast í þinginu.

Ég segi það að ég er tiltölulega ánægður með að sumt af till. sem ég flutti var tekið inn í þær brtt. sem hér eru á þskj. 1160, þ. e. brtt. mín við 1. gr. er að miklu leyti komin inn í 3. gr. og brtt. um 17. og 22. gr. fara í sömu átt. En ég kom með þá till. að 4. gr. orðaðist svo:

„Konum og körlum skulu greidd jöfn laun og skulu njóta sömu kjara fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf. Enn fremur skulu hefðbundin kvennastörf endurmetin til launa með tilliti til menntunar, starfsþjálfunar, ábyrgðar og álags. Með „kjörum“ í lögum þessum er átt við lífeyris-, orlofs-, veikindaréttindi, yfirborganir og hvers konar önnur samningsréttindi.“

10. gr. (sem var ekki í þessum frumvörpum):

„Nú er talið að atvinnurekandi hafi gerst brotlegur við eitthvert ákvæði II. kafla þessara laga og skal hann þá sýna fram á með haldbærum rökum að ekki hafi verið um að ræða mismunun eftir kynferði.“

12. gr. er eins og hún var í upphaflegu frv. frá þeirri nefnd sem samdi frv. um jafnrétti og þar af leiðandi ætla ég ekki að lesa það hér upp.

13. gr. orðist svo:

„Í kaupstöðum og sveitarfélögum, sem hafa yfir 300 íbúa, skal skipa jafnréttisnefndir og skulu þær hafa með höndum jafnréttismál innan síns sveitarfélags. Leitast skal við að skipa aðila sem hafa þekkingu á jafnréttismálum.“

Og 19. gr. Greinin orðist svo:

„Brot á lögum þessum skal varða fésektum nema þyngri refsing liggi við að lögum. Félögum, fyrirtækjum og stofnunum má dæma fésektir hafi brot á lögum þessum verið framið á þeirra vegum, þau átt þátt í því eða hagnast á brotinu. Höfði ríkissaksóknari ekki opinbert refsimál vegna ætlaðra brota á lögum þessum er jafnréttisráði heimilt að höfða refsimál. Fer um þau mál eftir reglum laga um meðferð einkamála eftir því sem við á.“

Jafnréttismál eru meðal þeirra mála sem mest er deilt um í þjóðfélaginu og eins og ég sagði í upphafi hefði verið ánægjulegt ef Íslendingar hefðu getað sameinast um að stíga spor á þessu ári til að ná jafnrétti á undan öllum öðrum þjóðum í veröldinni.