13.06.1985
Neðri deild: 95. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6474 í B-deild Alþingistíðinda. (5876)

48. mál, jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Eins og hv. þm. vita hafa legið fyrir þinginu í vetur tvö frumvörp um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, annars vegar stjfrv. og hins vegar þmfrv. flutt af þm. úr þremur flokkum. Það frv. er samhljóða frv. sem samið var af stjórnskipaðri nefnd sem skipuð var í apríl 1981. Hæstv. félmrh. treysti sér ekki til þess að leggja fram það frv. og lagði fram frv. sem var verulega breytt frá því sem þessi stjórnskipaða nefnd lagði til. Þess vegna var það að þm. úr þremur flokkum töldu ástæðu til að leggja fram frv., sem finna má á þskj. 109, sem gengur mun lengra en stjfrv. í þá átt að stuðla að því að jafnrétti kynjanna náist fram.

Þessi frv. hafa bæði verið til meðferðar í hv. félmn. og voru tekin þar fyrir á nokkrum fundum. Hv. þm. Svavar Gestsson og ég lögðum fram nokkrar brtt. í nefndinni við þetta stjfrv., sem voru níu að tölu, og voru þar tekin upp ýmis ákvæði sem voru í þmfrv. Hv. frsm. nefndarinnar hefur lýst þeirri niðurstöðu sem varð á afgreiðslu þessa máls í nefndinni. Nefndin öll stendur sameiginlega að nál. og flytur þrjár brtt.

Nú er ég fyrir mitt leyti alls ekki sátt við það frv. og þær brtt. sem hér liggja fyrir. Ég hefði viljað ganga mun lengra, en lengra varð ekki komist með málið í nefndinni ef samkomulag átti að nást fram. Ég tel þó að þær brtt., sem samstaða náðist um í nefndinni, séu til verulegra bóta og bæti mikið það stjfrv. sem lagt var fram. Ég nefni þar sérstaklega brtt. sem kemur fram í 1. tölul., en þar segir, með leyfi forseta:

„Hvers kyns mismunun eftir kynferði er óheimil. Þó teljast sérstakar tímabundnar aðgerðir, sem ætlaðar eru til að bæta stöðu kvenna til að koma á jafnrétti og jafnri stöðu kynjanna, ekki ganga gegn lögum þessum.“

Ég tel þessa brtt. það mikinn ávinning að ég fyrir mitt leyti féllst á að standa að þessu sameiginlega nál. Það varð að samkomulagi í nefndinni að ekki yrðu þá fluttar aðrar brtt. við þetta frv. ef samkomulag átti að nást um málið.

Ég tel líka þá brtt. sem kemur fram í 3. tölul., sem nefndin flytur sameiginlega á þskj. 1160, mikils virði, en þar er í senn kveðið á um að sú framkvæmdaáætlun, sem kveðið er á um í frv., skuli tekin til umr. á hv. Alþingi og einnig, sem er mjög mikilvægt, að félmrh. skuli á tveggja ára fresti leggja fram á Alþingi skýrslu um stöðu og þróun jafnréttismála. Ég tel að á hv. Alþingi sé allt of lítil umræða um þetta mikilvæga mál, jafnréttismálin, og ég tel að slík skýrsla muni stuðla að því að meiri umræða fari fram á hv. Alþingi um þetta mál.

Þó að þær níu brtt., sem hv. þm. Svavar Gestsson og ég lögðum fram í nefndinni, séu ekki allar teknar til greina er ljóst að þrjár þeirra ná með þessu fram að ganga. Ég tel að sérstaklega í tveimur af þeim brtt. sem ekki náðist samkomulag um í nefndinni sé veruleg eftirsjá, því að þær hafa ekki náð fram að ganga. En um þær stóð valið að ná samkomulagi um þessar þrjár brtt. eða nefndin klofnaði í afstöðu til málsins og þá voru allar líkur á því að brtt. þær sem við hv. þm. Svavar Gestsson og ég lögðum til yrðu felldar. Ég vil geta tveggja þeirra brtt. sem við lögðum áherslu á en ekki náðist samkomulag um.

Ég taldi það mikils virði að fá fram í 4. gr. , eins og er í þmfrv. en ekki stjfrv., skýrari ákvæði um hvað átt væri við með launum. Í þmfrv. stendur:

„Með launum í lögum þessum er átt við hið venjulega grunn- eða lágmarkskaup og hvers konar frekari þóknun sem greidd er beint eða óbeint, hvort heldur er í fé eða fríðu, og vinnuveitandi greiðir starfsmanni fyrir vinnu hans.“

Þessa setningu, sem ég hef hér lesið, er að finna í aths. með 4. gr. í stjfrv., en ekki í lagagreininni sjálfri. Ég tel mjög mikilvægt að þetta sé í lagagr. vegna þess að allar kannanir staðfesta það að því er varðar launamismun kynjanna að ástæður hans er kannske helst að finna í ýmiss konar kaupaukum, yfirborgunum og duldum greiðslum á vinnumarkaðinum. Þess vegna tel ég mjög mikilvægt að hafa þetta inni í 4. gr. sjálfri, inni í lagagr. En það náðist ekki fram að þessu sinni.

Það sem við hv. þm. Svavar Gestsson og ég lögðum líka mikla áherslu á er að fá inn í 12. gr. stjfrv. það sem er í þmfrv. en þar segir, með leyfi forseta:

„Leitast skal við að hafa sem jafnasta tölu kynjanna í stjórnum, nefndum og ráðum á vegum ríkis, sveitarfélaga og félagasamtaka þar sem því verður við komið. Þegar beðið er um tilnefningu í stjórnir, nefndir og ráð á vegum ríkis og sveitarfélaga skal nefna karl og konu. Sé það ekki gert skal veita jafnréttisráði skriflega rökstudda greinargerð um ástæður þess. Við skipun skal þess síðan gætt, að hlutfall kynjanna verði sem jafnast.“

Ég tel að þetta ákvæði sé mjög mikilvægt og hefði verið nauðsynlegt að fá það fram og bendi á að slíkt ákvæði er að finna í jafnréttislögum t. d. á Norðurlöndum og þetta ákvæði hefur einmitt gefist mjög vel og stuðlað að því að konum hefur fjölgað verulega einmitt í nefndum og ráðum á vegum ríkis og sveitarfélaga. Þess vegna er veruleg eftirsjá að því að þetta ákvæði nái ekki fram að ganga.

Þegar þetta mál var hér til 1. umr. sagði ég að þó að ég stæði að þmfrv. fyndist mér það ekki ganga nógu langt og boðaði brtt. sem flutt yrði sem ákvæði til bráðabirgða sem hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Ef sú staða kemur upp að karl og kona sækja um starf í starfsgrein þar sem annað kynið er allsráðandi og bæði tvö hafa sömu hæfileika og menntun til að bera, þá skal veita þeim aðila starfið sem er af því kynferði sem er í minni hluta í viðkomandi starfsgrein.“

Hér er um að ræða túlkun Guðrúnar Erlendsdóttur dósents á núgildandi jafnréttislögum. Ég taldi mjög mikilvægt að fá þetta inn í þetta frv. sem ákvæði til bráðabirgða. Hér yrði um að ræða tímabundið ákvæði sem væri e. t. v. hægt að kalla jákvæða mismunun.

En ég mun standa að því samkomulagi sem gert var í nefndinni og standa við það samkomulag og því ekki flytja þá brtt. sem ég boðaði við 1. umr. því eins og ég sagði áðan, herra forseti, tel ég það sem hefur þó náðst fram í umfjöllun nefndarinnar um þetta mál, sérstaklega að því er varðar þá jákvæðu mismunun sem finna má í 1. tölul., það mikinn ávinning og spor í rétta átt að ég tel rétt að sinni að falla frá þeirri brtt. sem ég boðaði við 1. umr.

Hv. þm. Stefán Valgeirsson lýsti áðan brtt., sem hann hafði flutt í hv. félmn., sem hann á sæti í, þegar fjallað var um þetta frv. Þær brtt. sem hv. þm. Stefán Valgeirsson lýsti áðan voru aldrei formlega lagðar fram í nefndinni, heldur las hv. þm. Stefán Valgeirsson þær upp fyrir nm. rétt eins og hann gerði úr ræðustól áðan. Ég verð að segja að sumar af þeim brtt., sem hv. þm. Stefán Valgeirsson kynnti í nefndinni og áðan, komu mér verulega á óvart. Nefni ég þá sérstaklega þá till., sem hann lagði til í nefndinni, að hefðbundin kvennastörf skuli endurmetin til launa og tekið tillit til menntunar, starfsþjálfunar og ábyrgðar. Ég segi að mér hafi komið þetta á óvart vegna þess að bæði á s. l. þingi og á yfirstandandi þingi hef ég ásamt nokkrum öðrum þm. flutt frv. um að endurmat fari fram á störfum láglaunahópa, en í því frv. er lögð sérstök áhersla á að endurmetin verði hefðbundin kvennastörf. Það frv. náði ekki fram að ganga á síðasta þingi og nær vafalítið ekki fram að ganga á þessu þingi því umræður meiri hl. í nefndinni um afgreiðslu þess máls voru á þann veg að vísa ætti því máli til ríkisstj. Ég varð ekki vör við, hvorki á síðasta þingi né núna, stuðning frá hv. þm. Stefáni Valgeirssyni við það frv. Þess vegna kom mér það á óvart og vitaskuld fagna ég því ef breyting hefur orðið á afstöðu hv. þm. til þessa mikilvæga máls, að hefðbundin kvennastörf skuli endurmetin. En ég er þó þeirrar skoðunar að það sé mjög vafasamt að slíkt ákvæði eigi heima í jafnréttislögum. Miklu fremur ætti að að fara eins og lagt er til í því frv. sem ég hef flutt í tvígang hér á hv. Alþingi um að skipa skuli sérstaka láglaunanefnd sem skoði það mál.

Þetta vildi ég láta koma fram hér, herra forseti, við þessa umr. og lýsa því sérstaklega hvers vegna ég flyt ekki neinar brtt. við þetta frv. Ég mun standa við það samkomulag sem gert var í nefndinni þó að ég sé langt frá því að vera sátt við þá niðurstöðu sem fékkst í nefndinni, en telji hana þó spor í rétta átt.