13.06.1985
Neðri deild: 96. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6479 í B-deild Alþingistíðinda. (5887)

Um þingsköp

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég kveð mér hljóðs um þingsköp til að inna hæstv. forseta eftir því hvort hann geti upplýst okkur hér í hv. þd. um hvað fyrirhugað er um þingstörf á laugardaginn kemur, hvort gert er ráð fyrir að hér verði þingfundir á laugardag. Ástæðan fyrir því að ég spyr um þetta er sú að fram undan er það sem menn kalla „löng helgi“ þar sem þjóðhátíðardagur er á mánudaginn kemur og ég geri ráð fyrir því að það séu fleiri en ég sem hyggjast halda til síns heima um helgina og þurfa þá að gera ráðstafanir í sambandi við slík ferðalög. Mér þætti vænt um ef hæstv. forseti gæti nú eða síðar á þessum fundi upplýst um hvort gert sé ráð fyrir þingfundum á laugardaginn.