13.06.1985
Neðri deild: 96. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6480 í B-deild Alþingistíðinda. (5891)
Um þingsköp
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Öllu má nú nafn gefa. Og m. a. því að hæstv. forsrh. hafi haft samráð við stjórnarandstöðuna um það hvernig háttað yrði þinglokunum og hvenær þau yrðu í grófum dráttum.
Á þessum fundum, sem hæstv. forsrh. hefur haldið með stjórnarandstöðunni, hefur ekkert komið fram annað en það að hann ætli sér að láta þingið afgreiða svo að segja öll mál. Það er hægt að tilkynna mönnum það með ýmsum hætti og það er hægt að kalla það samráð og samvinnu ef menn vilja, en það er ekki sú tegund af samráði og samvinnu sem hér hefur tíðkast.
Hér liggja fyrir þinginu enn þá óafgreidd og hafa aldrei t. d. komið til Ed. ein stærstu mál þingsins, þ. e. Framkvæmdasjóður, Byggðastofnun, þróunarfélag, viðskiptabankar sem stjórnarlið heimtar núna að verði hespaðir í gegn þó að grunnlöggjöfin, seðlabankafrv., hafi ekki einu sinni sést enn þá, og sparisjóðir. Það er hægt að nefna enn fleiri mál sem sýna að þingið á bersýnilega verulega mikið starf eftir vegna þess hvað ríkisstj. var sein, kom hlutunum seint frá sér. Auðvitað mætti hugsa sér það, herra forseti, ef stjórnin hefði trú á því að hún lifði lengur en til haustsins, að við eitthvað af þessum frv. yrði hafist handa á haustþingi að nýju vegna þess að þau eiga mörg hver ekki að taka gildi fyrr en 1. janúar 1986. En í þessu kemur m. a. fram trúleysi stjórnarliðsins á að stjórnin tóri. Þeir vilja hafa það á hreinu að sem mest hafi verið afgreitt vegna þess að þeir gera ráð fyrir því, a. m. k. ýmsir þm. Sjálfstfl., að það sé allsendis óvíst að þessi stjórn lifi út árið.
Ég mótmæli þessum vinnubrögðum stjórnarinnar varðandi þinghaldið og ég mótmæli því, herra forseti, að forsetar þingsins skuli ekki taka ríkisstj. til bæna í þessum málum. Það er ekki gott fyrir forseta þingsins, Nd., Ed. og Sþ., að bera ábyrgð á þinghaldi fram eftir öllu sumri, mikið lengur en nokkurn tímann hefur tíðkast. Forsetum þingsins er annt um virðingu Alþingis. Ég fæ ekki séð að það komi fram í verki miðað við þau vinnubrögð sem tíðkuð eru núna.