13.06.1985
Neðri deild: 96. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6503 í B-deild Alþingistíðinda. (5900)

456. mál, Byggðastofnun

Frsm. 2. minni hl. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Samkv. þingsköpum hafa ráðh. möguleika og leyfi til að troða sér inn í mælendaskrá þar sem þeim dettur í hug og það hefur hæstv. iðnrh. nú gert. Hann hefur aukin heldur verið svo smekklegur í ræðu sinni að ráðast sérstaklega að þm. fyrir umræður þeirra um þau stóru mál sem hér eru á dagskrá. Ég hygg að það sé fágætt að ráðh. hagi sér með þessum hætti og geri þannig það sem hann getur til að efna til úlfúðar og vandræða í þinghaldinu. Ég verð hins vegar að vísa til orða hæstv. forsrh. áðan, sem lýsti því yfir að þessar umr. væru allar hinar gagnlegustu, ykju á virðingu þingsins og stuðluðu að því að málsmeðferð yrði vandaðri í hvívetna en ella væri, og tel að í þessu efni sé fremur að marka orð hæstv. forsrh. en hæstv. iðnrh., en þau mat ég einskis.