13.06.1985
Neðri deild: 96. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6503 í B-deild Alþingistíðinda. (5901)

456. mál, Byggðastofnun

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Það er hægt að taka undir með hv. 3. þm. Reykv. að það er undarlegur sá háttur sem hæstv. iðnrh. hefur á í þessu máli í tengslum við þetta frv. um Byggðastofnun. Hann finnur að því sérstaklega að þessi mál séu tekin hér til ítarlegrar umræðu. Ég undrast mjög hvað hæstv. ráðh. gengur til að amast við því, nema það sé eitthvað sem rekst þar á við samvisku hans, að hér sé kannske ekki öllu til haga haldið sem skyldi í þessum málum og í málatilbúnaði af hálfu ríkisstj. í málum sem þessu tengjast.

Það er líka heldur hart fyrir okkur þm., sem höfum búsetu úti á landi og erum þingmenn fyrir landsbyggðina, að finna að því þó að okkur komi til hugar að inna eftir því hvort hægt sé að fá upplýst hvað fyrirhugað sé um þinghald í kringum komandi helgi. Ég skil það vel að hæstv. iðnrh., þm. Austurl. sem búsettur er hér í Reykjavík, hafi ekki miklar áhyggjur af þessu, hann þarf ekki annað en að setjast upp í bílinn sinn fyrir utan og er kominn, með annan mann undir stýri, fyrr en varir til síns heima, en mér er ekki alveg sama um þetta og þess vegna leyfi ég mér að spyrja. Og ég veit ekki nema það liggi svolítið meira á bak við bæði ummælin um umr. um byggðamálin og búsetuna hjá þessum hæstv. ráðh. og kannske forsrh. sjálfum þó hann taki allt öðruvísi á máli í sambandi við þessa umr., eins og hér var vitnað til. Ég held að það skipti dálitlu máli hvort menn eru búsettir í Arnarnesinu eða í Skjólunum, eða hvar það nú er sem menn hafa komið sér fyrir innan höfuðborgarinnar eða í nágrenni hennar, eða eru með búsetu úti á landsbyggðinni og þurfa þó a. m. k. að leggja nokkuð á sig til að skjótast heim til sín öðru hvoru.

Ég veit að hæstv. forseti hefur skilning á þessu. Hann er einn af þeim sem eru búsettir utan Reykjavíkur, að ég best veit, og þannig háttar til um fleiri þm. Það skyldi nú ekki vera að hv. þm. Stefán Guðmundsson hefði áhuga á því að skjótast norður í Skagafjörð um komandi helgi og á þjóðhátíð t. d. og hefði ekkert á móti því að hæstv. forsetar og ríkisstj. kvæðu upp úr um það hvort hugmyndin væri að halda þingfundi á komandi laugardegi. Ég var alls ekkert að andmæla því í mínu máli að slíkir fundir yrðu haldnir, aðeins að fara fram á að það lægi fyrir með einhverjum fyrirvara þar sem menn þurfa að tryggja sér far til síns heima.