13.06.1985
Neðri deild: 96. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6534 í B-deild Alþingistíðinda. (5905)

456. mál, Byggðastofnun

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Það var vissulega ánægjulegt að heyra þann bjartsýnistón sem kom fram í máli hæstv. forsrh. í sambandi við hag og horfur á landsbyggðinni og ég er honum sammála að því leyti að mikið er undir því komið að breyting verði á stöðu þeirra atvinnugreina sem hann nefndi í sínu máli, sjávarútvegsins ekki síst, en einnig landbúnaðarins, þó að fleira þurfi sannarlega að koma til til að breyta þeirri þróun sem nú er í fullum gangi undir forustu hæstv. ríkisstj. a. m. k. að hluta til, þó ég ætli ekki að kenna henni um allt sem aflaga fer því mannlegur máttur fær ekki alltaf ráðið við í þessu landi fremur en annars staðar. En það er alveg ljóst að það eru aðgerðir ríkisstj. hæstv. forsrh. sem valda mestu um þá öfugþróun sem hér hefur verið í gangi. Það væri því mjög fróðlegt að fá fram við umr. vegna orða hæstv. forsrh. hér áðan hvaða atriði það eru sem snerta þróun þeirra atvinnugreina sem hann nefndi sem hann telur að geti breyst nú á næstunni þannig að þær nái að rétta af og skapa íbúum í hinum dreifðu byggðum um landið og í sveitum hagsæld á nýjan leik í staðinn fyrir þann skuldaklafa sem menn nú eru hnepptir í margir hverjir og mikla erfiðleika. En segja má að þetta efni tengist kannske fremur öðru dagskrármáli á þessum fundi, þ. e. frv. til l. um nýsköpun í atvinnulífi, og því ætla ég ekki að fara langt út í þessa sálma því ég þarf að ræða það mál frekar þegar það verður tekið á dagskrá. En ég vil aðeins minna á atriði sem fram komu í því dagblaði sem stundum er a. m. k. kallað málgagn hæstv. forsrh. eða málgagn Framsfl., NT, í dag í grein eftir Guðmund Stefánsson landbúnaðarhagfræðing: Ég vík kannske frekar að því síðar í umr. um annað dagskrárefni sem þar kemur fram, en mér sýnist það ekki styðja þá bjartsýni sem heyra mátti hjá hæstv. forsrh. t. d. í sambandi við hag og horfur í landbúnaði.

Ég ætlaði hins vegar hér við 3. umr. þessa máls um Byggðastofnun að ræða frekar einstaka þætti sem snerta málið og frv. beinlínis, þ. á m. hvernig menn hyggjast ganga til verka í sambandi við þessa væntanlegu stofnun. Þar er, eins og ég hef áður nefnt, ekki horft til mikilla breytinga frá fyrra vinnulagi að vísu og þess vegna tel ég að við getum fjallað um þessar till. í ljósi þeirrar reynslu sem fengist hefur af störfum byggðadeildar Framkvæmdastofnunar að verulegu leyti.

Eitt af verkefnum stjórnar stofnunarinnar er að fjalla um byggðaáætlanir sem gerðar er á vegum hennar eða lagðar fyrir stjórnina til samþykktar, en um þessar byggðaáætlanir er kveðið á í 9. gr. frv. Þar segir, með leyfi forseta, m. a.:

„Stjórn Byggðastofnunar fjallar um byggðaáætlanir sem unnar hafa verið á vegum stofnunarinnar. Stjórnin getur jafnframt fjallað um byggðaáætlanir sem aðrir aðilar, svo sem sveitarstjórnir eða landshlutasamtök, hafa gert og lagt fyrir hana til samþykktar. Heimilt er stjórninni að ákveða að stofnunin skuli taka þátt í kostnaði við slíka áætlanagerð.

Byggðaáætlanir, sem stjórnin hefur samþykkt, skulu sendar forsrh. og gerir hann ríkisstj. og Alþingi grein fyrir þeim.

Byggðastofnun fylgist með framkvæmd þeirra byggðaáætlana sem samþykktar hafa verið af stjórn stofnunarinnar. Áætlanir til lengri tíma en eins árs, sem gerðar hafa verið á vegum stofnunarinnar, skal endurskoða eftir því sem tilefni gefast.“

Þetta segir um byggðaáætlanir. Nú er það mín skoðun að svo miklu leyti sem ég þekki til þessara mála, og ég hef fylgst með þeim um a. m. k. einn áratug af athygli, að byggðaþróunaráætlanir sem unnar hafa verið á vegum Framkvæmdastofnunar hafi ekki skilað þeim árangri í mörgum greinum sem vænst hefur verið og til hefur verið ætlast a. m. k. af þeim byggðarlögum sem í hlut eiga og þeim aðilum sem óskað hafa eftir því að þetta áætlunarstarf yrði unnið.

Það eru raunar tiltölulega fáar þær byggðaþróunaráætlanir sem lagðar hafa verið fyrir eða sem fengist hafa staðfestar af stjórn stofnunarinnar. Það hefur verið fengist við áætlanir varðandi ýmis svæði á landinu, sveitarfélög og byggðarlög sem kalla má, þ. e. fleiri en eitt sveitarfélag, og dregið að ýmislegt efni varðandi hagþróun, varðandi mannfjöldaþróun á liðinni tíð og horfur og ráð til úrbóta, en þær eru sem sagt teljandi þær áætlanir sem hafa komist það langt vinnslulega að stjórn nái að staðfesta þær.

Ég hef einar þrjár sérstaklega í huga sem ég man eftir að hafi komist alla leið í gegnum kerfið eins og gert er ráð fyrir í gildandi lögum um Framkvæmdastofnun og byggðadeild hennar. Þær eru, ef ég man rétt, áætlun um byggðaþróun í Skeggjastaðahreppi, Dalabyggðaráætlun sem svo er kölluð og byggðaþróunaráætlun fyrir Borgarfjarðarhrepp eystri. Ég man eftir þessum þremur, en þeim kann að hafa fjölgað eitthvað síðan ég fór frá störfum í stjórnarráði, en eitt síðasta verk fyrri ríkisstj. var einmitt að staðfesta byggðaþróunaráætlun fyrir Borgarfjarðarhrepp. Hins vegar hefur, eins og ég sagði, á liðinni tíð verið unnið í fjölmörgum fleiri áætlunum og er verið að vinna í mörgum slíkum. En kerfið hefur sem sagt verið mjög seinvirkt. Það kann að vera að mannafla hafi skort hjá Framkvæmdastofnun til að sinna þessum málum. Jafnvel þó að byggðaþróunaráætlanir hafi verið komnar á lokastig hafa ríkisstjórnir eða þeir sem yfir Framkvæmdastofnun ráða, stjórn og æðri stjórnvöld, ekki náð að koma þeim málum í höfn sem viljayfirlýsingum.

Nú er það svo að þessar byggðaþróunaráætlanir eru ekki staðfestar sem lög, þær hafa ekkert lagagildi. Þær eiga hins vegar að vera stefnumarkandi fyrir viðkomandi stjórnvöld, þ. á m. einstök fagráðuneyti. Nú vil ég ekki draga í efa að í vissum greinum hafi verið farið eftir þessum áætlunum og reynt að hrinda ákveðnum hugmyndum í framkvæmd, en mjög hefur það þó verið misjafnt og engan veginn tekist að nota þessar áætlanir, þær fáu sem staðfestar hafa verið, sem grundvöll til víðtæks þróunarátaks fyrir viðkomandi byggðarlög. Það hefur engan veginn tekist í öllum greinum og raunar aðeins fá byggðarlög sem hafa notið þess að fá slíkar áætlanir staðfestar af stjórn stofnunarinnar og af ríkisstj. sem ég hygg að venjan hafi verið að hafi einnig fengið þær til umsagnar og staðfestingar.

Hér er gert sem sagt ráð fyrir svipuðu kerfi og í fyrri lögum. Ég hygg að þarna sé lítil breyting á. Hv. þm. Stefán Guðmundsson gæti eflaust upplýst okkur um það þar sem hann hefur góða yfirsýn yfir þetta sem stjórnarformaður stofnunarinnar og auk þess unnið að undirbúningi þessa máls. (Gripið fram í.) Já, það hefur verið samkvæmt gildandi lögum. ( StG: Og er gert.) Og hefur verið gert, segir hv. þm. Hins vegar er það nokkuð á reiki, að mér skilst, hvort þeim stuðningi, sem gert er ráð fyrir í gildandi lögum, verði fram haldið. Ein af þeim brtt. sem fluttar voru við þetta frv. laut einmitt að stuðningi við landshlutasamtök sveitarfélaga sérstaklega. Þar mun vera dregið úr þeim kvöðum sem gildandi lög gera ráð fyrir í sambandi við stuðning við þau.

Ég held að þetta atriði, þróunaráætlanir fyrir einstök svæði, þurfi endurskoðunar við. Lagatextinn einn skiptir kannske ekki öllu máli í því sambandi, heldur vinnulagið, hvernig að þessum málum er staðið. Og þá kem ég einmitt að því, sem ég tel skipta allmiklu máli í þessu, og það er sú uppbygging í stjórnun stofnunarinnar sem setur hana lögum samkvæmt undir forsrh.

Það má segja að kannske sé ekki óeðlilegt að forsrn. sé ætlað þarna hlutverk eins og þetta mál er uppbyggt þar sem mörg rn. eiga í hlut. En ég held að reynslan hafi sýnt okkur að forsrn. á erfitt með að sinna þessu hlutverki, a. m. k. eins og það hefur verið mannað á liðinni tíð. Ég hygg að þessi reynsla hafi ráðið mestu um að hv. 3. þm. Reykv. flutti brtt. við 2. umr. þessa máls og lagði til að Byggðastofnun yrði lögð undir félmrn. Það hefði ég talið horfa til bóta miðað við þá reynslu sem við höfum af þessu starfi á liðnum tíma.

Þetta vildi ég nefna sérstaklega í sambandi við byggðaþróunaráætlanirnar. Ég held einnig að það þurfi að taka þessi áætlunarmál öll miklu fastari tökum þannig að ekki þurfi endilega að koma til þær formlegu samþykktir sem gert er ráð fyrir til þess að væntanleg byggðastofnun taki á þróunarmálum landsbyggðarinnar. Hlutverk hennar er samkv. 2. gr. að stuðla að þjóðfélagslega hagkvæmri þróun byggðar í landinu og það ætti vissulega að gefa grunn til þess að stofnunin fjallaði um þróunarhorfur og gerði áætlanir. Framkvæmdastofnun, og ég hygg að byggðadeild hafi komið þar að máli þó að eflaust hafi áætlanadeild lagt þar meira af mörkum, fjallaði á sinni tíð um uppbyggingu hraðfrystihúsa í landinu og það var áætlun sem skipti, má segja, sköpum fyrir aðstöðu landsbyggðarinnar því að henni var að verulegu leyti hrundið í framkvæmd á árunum upp úr 1970 og raunar á öllum síðasta áratug sem að þessu máli var unnið. Það var átak sem var mjög til heilla og þannig held ég að þurfi að taka á málefnum landsbyggðarinnar að líta nokkuð heildstætt yfir stór svið þó að hitt geti verið góðra gjalda vert að gera sérstakar þróunaráætlanir, ekki síst fyrir svæði sem eiga í vök að verjast og þar sem sérstakir erfiðleikar steðja að og byggðin stendur höllum fæti.

Það eru vissulega allmörg sveitarfélög í landinu orðin mjög fámenn og ráða illa við sín verkefni. Frv. til laga um sveitarstjórnir reynir að taka á þessu máli með því að kveða svo á um að sameina skuli sveitarfélag öðru sveitarfélagi ef íbúafjöldi þess hefur orðið lægri e.n 50 manns í þrjú ár samfleytt. Þetta er í rauninni eina lögformlega kvöðin sem sett er samkv. frv. til sveitarstjórnarlaga, sem hæstv. félmrh. lagði fyrir þessa þingdeild fyrr á þinginu, sem gerir það að lagaskyldu að sameina sveitarfélög og þar er ekki tekin sú stefna að stækka sveitarfélögin að öðru leyti með lögboði þó að á vinnslustigi a. m. k. hafi verið gert ráð fyrir því að um komandi aldamót eða eftir um 15 ár verði reynt að ná því marki að sveitarfélög verði ekki fámennari en 400 manns.

Nú er ég þeirrar skoðunar að ekki sé skynsamlegt að lögbjóða stækkun sveitarfélaganna. Ég held að menn verði að leita að öðru vinnulagi og þó að allt of lítið hafi miðað í sameiningu sveitarfélaga á undanförnum árum, eins og reynslan sýnir, hef ég þá trú að ef rétt er á málum haldið og leitað að hvetjandi þáttum fyrir sveitarfélögin til sameiningar megi ná þarna lengra á komandi tíð og það þyrfti að vera fyrr en seinna til þess að sveitarfélögin stækki, fámennustu sveitarfélögin taki sig saman og sameinist, og þarna verði verulegum árangri náð fyrr en seinna. Það skiptir miklu máli í sambandi við byggðamálin að styrkja slíkar einingar.

Ég hef velt því talsvert fyrir mér með hvaða hætti þetta gæti gerst, hvernig hægt væri að greiða fyrir því að fólk í fámennustu sveitarfélögunum finni hjá sér hvöt og þörf til að taka höndum saman við grannsveitarfélög og til stækkunar. Ég hef bent á það í umræðum um þessi mál og gert um það tillögur til þingsins að það verði reynd sú leið, jafnhliða því sem hvatt verði til sameiningar, m. a. með fjárhagslegum aðgerðum, aðgerðum sem virka hvetjandi fjárhagslega séð, að afnema ekki með öllu sjálfræði hreppanna, þeirra fámennustu, sem sameinast kynnu til dæmis aðliggjandi þéttbýli eða öðrum hreppsfélögum sem nú eru. Ég held að það mundi greiða fyrir þessu máli ef íbúar í núverandi hreppum, sem eru sveitarfélög, fengju að halda ákveðnu sjálfræði í eigin málum áfram þó svo að þau yrðu hluti af stærra sveitarfélagi.

Ég sé enga ástæðu til þess að verið sé að svipta þessar einingar, sem hafa ríka hefð á að byggja og þar sem menn hafa ákveðnar tilfinningar til síns samfélags sem eðlilegt er, þeim verkefnum sem ekki varða aðra, sem ekki snerta stærra svæði og því sé eðlilegt að hugsa til þess að halda sérstökum kjörnum ráðum innan hreppanna. Ég hef kallað þau hreppsráð. Þau hefðu ekki formlega stöðu sveitarstjórnar, en þau væru kosin samhliða sveitarstjórnarkosningum og færu með málefni sem væru eingöngu sérmálefni viðkomandi sveitarfélags, viðkomandi hreppsfélags. Undir þetta falla verkefni sem nú eru verkefni hreppsnefndanna, þ. á m. fjallskil í sveitum og einnig má nefna, sem víða er, smábarnaskóla eða svokölluð skólasel sem eru víða starfandi í minnstu sveitarfélögunum sem einingar sem eru eins konar hluti af stærri heild grunnskóla. Það er ekkert sem knýr á um það að taka þessi verkefni frá þessum svæðum. Ég er nokkuð sannfærður um að ef farin væri þessi leið og menn hefðu það á tilfinningunni í minnstu sveitarfélögunum að það ætti ekki að taka öll verkefni frá þeim og flytja þau burt til stærri heildar þróaðist þar önnur tilfinning til þessara mála og ríkari vilji til sameiningar. En það var því miður ekki komið fram og liggja ekki fyrir neinar formlegar tillögur um þessi efni og þetta er ekki að finna í frv. til sveitarstjórnarlaga sem liggur fyrir þinginu. Það er hins vegar stórt mál í tengslum við byggðaþróunina að finna kerfi sem tryggi eðlileg tök á verkefnum og að viðkomandi einingar fái ráðið við þau verkefni sem þarna eiga í hlut. Ég get tekið dæmi, sem ég þekki allvel, til að skýra þetta ögn nánar.

Lítum á svæði eins og Fljótsdalshérað á Austurlandi. Þar eru nú tíu hreppsfélög starfandi, eitt þéttbýtishreppsfélag sem hægt er að kalla, en að vísu vísir að tveimur eða þremur öðrum þéttbýlisstöðum. Ég hef þarna í huga Egilsstaðakauptún sem aðalþéttbýli og svo þéttbýlisvísi að Hlöðum handan Fljóts örskammt frá Egilsstaðakauptúni og vísi að þéttbýli á Hallormsstað og Eiðum. Að öðru leyti eru þetta sveitarhreppar sem þarna er um að ræða, í rauninni átta til níu sveitarhreppar í þeim skilningi og eitt þéttbýlissveitarfélag. Þarna

hefur að vísu þróast visst samstarf með sveitarfélögum í formi oddvitafunda sem haldnir eru nokkuð reglubundið einu sinni á ári a. m. k. og oftar ef sérstök tilefni eru til, en þeim málum fer fjölgandi sem ástæða er til og sem skilningur er á að þurfi að taka á sameiginlega af þessum sveitarfélögum. Hér erum við í rauninni með landfræðilega heild sem mér finnst allt mæla með að starfi sem eitt sveitarfélag. Íbúatölu Fljótsdalshéraðs alls hef ég ekki nákvæmlega hér, en ég hygg að það séu 2500–3000 manns sem eru þar innan fjallahrings og væru þá í þessu sveitarfélagi sem væri þá orðið allöflugt. Ég held að leiðin til þess að ná slíku marki. sem margir taka undir að æskilegt væri, sé einmitt sú að halda ákveðnu sjálfræði í núverandi hreppsfélögum, vera ekki að flytja til sveitarstjórnarinnar í slíku stóru sveitarfélagi verkefni eins og fjallskil og eins og afskipti af skólamálum eða málefnum félagsheimila sem víða hafa risið í þessum litlu hreppum. Hafi fólkið í hreppunum í sveitunum það á tilfinningunni og vissu fyrir því að menn ætluðu ekki að taka þetta frá þeim held ég að gatan yrði greiðari til sameiningar sveitarfélaga.

Tekjuhliðin er síðan mál út af fyrir sig, þ. e. að tryggja sveitarfélögunum eðlilega lágmarkstekjustofna. Þar þurfa til að koma breytt tök mála, það held ég að sé flestra hugur, þeirra sem kynna sér þessi mál, þar eð ástandið er sannarlega bágborið hjá mörgum sveitarfélögum þó að misjafnlega sé ástatt fyrir þeim. Staðan hefur vissulega þróast í þá átt nú hin síðustu ár, eins og aðrir þættir í okkar byggðamálum, að sveitarfélögin á landsbyggðinni eiga almennt í vök að verjast fjárhagslega. Afkoma þeirra er önnur og miklu lakari en sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Ég tala nú ekki um nágrannasveitarfélaga Reykjavíkur, hinna svokölluðu svefnbæja, sem stundum eru svo kallaðir, sem hafa takmarkaðar skyldur en alldrjúga gjaldendur.

Það þarf að marka tillögur og stíga ákveðin skref í framhaldi af því til að rýmka tekjustofna sveitarfélaga, fá sveitarfélögunum nýja tekjustofna samhliða nýjum verkefnum. Um þetta fjallaði ekki alls fyrir löngu sérstök nefnd á vegum félmrn. Þá nefnd skipaði raunar fyrrv. félmrh. Svavar Gestsson sumarið 1982 til að vinna að tillögum og samningum um verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga. Þessi nefnd starfaði allmikið, en náði því hins vegar ekki að skila af sér á þeim tíma sem henni var upphaflega ætlaður til starfa, sem mun hafa verið fyrir árslok 1982, þannig að hrín hafði ekki fyllilega lokið störfum þegar ný ríkisstjórn tók við. En hún lauk sínu verkefni og skilaði áliti til núv. hæstv. félmrh. um það verkefni sem henni upphaflega var ætlað, skýrslu sem ber heitið „Skýrsla samninganefndar um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga“ og er dagsett í ágústmánuði 1983. Þar er gerð grein fyrir störfum þessarar nefndar og niðurstöðum sem samkomulag hafði tekist um í henni, en að nefndinni stóðu menn frá ólíkum sveitarfélögum sem þekkja ólíkar aðstæður. Það var reynt af nefndinni að meta með hliðsjón af útgjöldum fyrri ára hver kostnaðarskipting yrði milli ríkis og sveitarfélaga ef tillögur hennar kæmu til framkvæmda, en hins vegar var þar ekki tekið tillit til hugsanlegra áhrifa af breyttri stjórnun eða ráðstöfun á viðkomandi málaflokkum. Það voru ein meginrök í tillögum þessarar nefndar að fjárhagsleg ábyrgð og stjórnun ættu að fara saman og ef þeirri grundvallarforsendu væri ekki fullnægt væru allar breytingar á hennar vegum heldur tilgangslitlar. Í skýrslu nefndarinnar er ekki tekið á því hvernig staðið skuli að því að koma í framkvæmd því sem þar er mælt með, en bent á lög hins vegar sem í gildi eru og sem breytinga þyrftu við í þessu samhengi.

Þessi málefni, verkefni og verkefnaskipting milli ríkis og sveitarfélaga, snerta náið það mál, sem hér er til umræðu, málefni byggðaþróunar og þar með Byggðastofnunar sem ætlað er að sinna þeim málum. Ég leyfi mér hér, herra forseti, að rekja nokkur meginatriði úr niðurstöðum þeirrar samninganefndar sem þarna starfaði á vegum félmrn. Og það kemur mér í hug einmitt þegar nefnt er félmrn. hvað málefni byggðanna eru nátengd verkefnum þess rn. og af þeim sökum mjög skiljanleg og skynsamleg sú till., sem hv. 3. þm. Reykv. lagði til, að setja þessa stofnun undir félmrn.

Það var bent á það sem eina af niðurstöðum þessarar samninganefndar varðandi gatnagerð í þéttbýli í sveitarfélögum að nefndin lagði til að á næstu 4–6 árum verði stefnt að því að 85–95% af heildarlengd gatnakerfis í þéttbýlissveitarfélögum verði lögð bundnu slitlagi og næsta nágrenni við opinberar byggingar, svo sem skóla, kirkjur og félagsheimili. Þessu marki má ná, segir í greinargerð nefndarinnar, verði umræddum sveitarfélögum gert kleift að leggja bundið slitlag á 10–15 km til viðbótar á ári frá því sem nú er. Kostnaður vegna 10 km viðbótar á ári er um 36.6 millj. kr., miðað við verðlag í ágúst 1982, eða um 21 millj. miðað við verðlag í ársbyrjun 1981. Þessi þáttur, gatnagerð í þéttbýlissveitarfélögum, er eitt af því þar sem úrbóta er mjög þörf og er eitt stærsta þrifnaðarmálið þar sem ekki hefur tekist að ljúka gatnagerð. Þau þéttbýlissveitarfélög úti um landið eru því miður ekki mörg sem hafa náð að ljúka þessu verkefni. Það er því mjög brýnt byggðamál að þarna verði ráðin bót á og sveitarfélögunum tryggt fjármagn til þess fyrr en seinna að lagfæra það ástand sem þarna ríkir. Breytinguna við varanlega gatnagerð þekkja þeir sem hvort tveggja hafa reynt, að búa við malargötuna og hins vegar við frágang götu með bundnu slitlagi.

Annar þáttur í tillögum þessarar nefndar varðaði heilbrigðisþjónustuna. Hún lagði til að heilbrigðisþjónustan verði að öllu leyti í umsjá ríkisins og aðild sveitarfélaga að byggingu og rekstri sjúkrastofnana og heilsugæslustöðva verði afnumin. Í kjölfar þessara breytinga verði allar sjúkrastofnanir fjármagnaðar með fjárveitingum á fjárlögum í stað daggjalda og sjúkrasamlög lögð niður. Breytingar þessar hafa í för með sér verulega aukningu útgjalda fyrir ríkissjóð. Áætlað er að heildarrekstrarútgjöld sveitarfélaganna til heilbrigðismála hafi verið um 140 millj. kr. árið 1981, sem hefðu þá komið í hlut ríkisins ef breytingarnar hefðu verið komnar á, auk 15–20 millj. kr. sem eru áætluð útgjöld sveitarfélaganna til stofnkostnaðar og búnaðar sjúkrastofnana og heilsugæslustöðva svo og viðhalds. Þetta eru meginefni varðandi heilbrigðisþjónustu. Ég vil ekki taka undir allt það sem hér kemur fram um þessi efni. Ég held að það hljóti að vera verulegt álitamál hvort fara eigi að þeim tillögum, sem þarna koma fram, að heilbrigðisþjónustan verði að öllu leyti í umsjá ríkisins, en þó má vel vera að þessar tillögur, útfærðar að betur athuguðu máli, horfi til bóta.

Ég vek hins vegar athygli á því að í þessum þætti mála, heilbrigðisþjónustunni, er veruleg þörf ákveðins aðhalds og ég held að það hafi talsvert skort á það á liðinni tíð að gerðar hafi verið nógu skilmerkilegar áætlanir um uppbyggingu heilbrigðiskerfisins, þ. á m. fjárfestingu í sjúkrastofnunum og þar hafi menn að vissu marki lent út í ákveðna ófæru, jafnvel byggt of stórt og lent síðan í erfiðleikum með rekstur viðkomandi stofnana.

Í tillögum nefndarinnar er einnig fjallað um dagvistarstofnanir fyrir börn, sem er mál sem varðar allt landið og þ. á m. ekki síst höfuðborgarsvæðið en um það segir þarna:

„Nefndin leggur til að sveitarfélögin taki að sér byggingar og rekstur dagvistarheimila fyrir börn og taki að öllu leyti við skuldbindingum ríkissjóðs gagnvart Alþýðusambandi Íslands sem gerðar voru við lausn kjarasamninga í október 1980. Árleg meðalútgjöld sveitarfélaganna næstu sjö ár yrðu um 24.5 millj. kr. vegna umsamdra framkvæmda og er þá miðað við verðlag ársins 1981.“

Þessi till., sem þarna liggur fyrir í þessu stóra máli, dagvistarstofnunum, er mjög eðlileg að mínu mati, að það séu sveitarfélögin sem annist rekstur þeirra og taki að öllu leyti við skuldbindingum varðandi dagvistarstofnanir. Hins vegar þarf að gera þeim kleift að ráðast í verkefnin og leysa verkefnin á þessu sviði, en hér er um að ræða svið sem mjög hefur verið vanrækt, ekki síst hin allra síðustu ár, þar sem dregið hefur verið verulega úr fjárveitingum hins opinbera til dagvistarstofnana. Þar er um að ræða mál sem snertir ekki síst réttindi kvenna og möguleika kvenna til að stunda störf utan heimilis, hvort sem um er að ræða launuð störf eða störf að félagsmálum og öðrum hugðarefnum. Hér stöndum við Íslendingar mjög höllum fæti. Ástandið er vissulega ekkert betra hér í höfuðstaðnum en víða úti um landið.

Varðandi félagsheimill leggur samninganefndin til að bygging og rekstur félagsheimila verði eingöngu verkefni sveitarfélaga og samtaka innan þeirra. Tekjustofn Félagsheimilasjóðs, skemmtanaskatturinn, verði þá annaðhvort lagður niður eða honum verði varið til annarra verkefna ríkisins. Framlög Félagsheimilasjóðs til einstaklinga og samtaka innan þeirra voru um 3 millj. kr. árið 1981. Þetta er vissulega till. sem hægt er að taka alveg undir. Þetta er eðlilegt verkefni sveitarfélaganna og verkefni sem hinar minnstu einingar eru vel færar um að rækja, enda hafa minnstu sveitarfélögin mörg hver komið upp býsna myndarlegum félagsheimilum sem hafa verulegt gildi fyrir viðkomandi samfélag.

Í æskulýðs- og íþróttamálum, sem eðlilegt er að nefna hér á ári æskunnar ekki síst, leggur nefndin til að æskulýðsmálin og íþróttamálin svo og bygging og rekstur íþróttamannvirkja verði nær eingöngu verkefni sveitarfélaga. Fjárveiting Alþingis til æskulýðsmála árið 1981 var um 1.2 millj. kr., til íþróttamála var ráðstafað um 2.7 millj. kr. og til íþróttasjóðs 7.5 millj. kr. þannig að þarna er um að ræða nokkrar fjárveitingar frá ríkinu. Hér er sem sagt gert ráð fyrir að sveitarfélögin sjái um þessi verkefni fyrst og fremst.

Varðandi skólakostnað, sem mikið hefur nú verið rætt um og skiptir afskaplega miklu í fjárhagsdæmi sveitarfélaganna, samþykkir nefndin að leggja til við menntmrh. að knýja á um afgreiðslu á frv. til laga um skólakostnað, en það þýðir skv. meðfylgjandi rekstrarathugun í grg. nefndarinnar að kostnaðarauki ríkisins yrði á verðlagi ársins 1981 um 13 millj. kr. Það verður hins vegar að segja að uppgjör þessa máls af hálfu löggjafans hefur dregist mjög úr hömlu og gildir það raunar einnig um fleiri þætti menntamála sem snerta landsbyggðina afar miklu. Þar hefur ekki verið mörkuð stefna svo sem nauðsynlegt væri og þar er margt í miklu ósamræmi. Nægir þar að nefna stöðuna á framhaldsskólastiginu þar sem annars vegar eru menntaskólarnir fjármagnaðir 100% af ríkinu og hins vegar fjölbrautaskólarnir þar sem ríkisþátttakan er aðeins 60%. Ég tel raunar að í þessum efnum þurfi að draga mun skýrari mörk fyrr en seinna og eðlilegt sé að ætla sveitarfélögunum, og þó einkum héruðum sem nýju stjórnsýslustigi, ábyrgð og miklu meiri hlut í málefnum grunnskóla. Ég tel einnig koma mjög til álita að slíkar einingar, ef samstaða tekst um þær, héraðsstjórnir, taki einnig að verulegu leyti á sig ábyrgð, veg og vanda af verkefnum framhaldsskólastigs á sínu svæði. En þá þurfa auðvitað að koma til fjárveitingar sem geri þeim kleift að standa undir slíkum verkefnum.

Í þessum tillögum er einnig fjallað um gjaldskrármálefni. Þar er lagt til að sveitarfélög ákveði sjálf gjaldskrár fyrir sína þjónustu, svo sem rafmagn og hita, og að söluskatti af snjómokstri verði annaðhvort aflétt eða hann endurgreiddur sveitarfélögum. Það mál hefur verið til sérstakrar umræðu hér í þinginu eins og menn kannast við.

Einnig var í þessari nefnd rætt um útsvarsálagningu sveitarfélaga. Þar komu fram hugmyndir um að hún yrði gefin frjáls, en slík tillaga var ekki fullgerð þegar stjórnarskipti urðu.

Þessi efni, gjaldskrármálin, en þó enn frekar álagning útsvars sem aðaltekjustofns sveitarfélaga, varða byggðarlögin miklu og þar með byggðaþróunina. Ég er í hópi þeirra sem telja að þarna eigi sveitarfélögin að hafa verulegt frjálsræði, þau þurfi að geta ráðið meira um sína tekjuöflun en hingað til hefur verið og hins vegar þurfi í gegnum jöfnunarsjóð að tryggja að aðstöðumunur verði ekki allt of mikill.

Varðandi gjaldskrármálin, þá háttar mjög misjafnlega hjá sveitarfélögum hvort þau reka t. d.veitufyrirtæki, rafveitur og hitaveitur, en þar hefur af mörgum verið hvatt til þess að gæta ákveðins samræmis. Ég er í hópi þeirra sem telja að eðlilegt sé að leitast við að halda gjaldtöku fyrir þessar nauðþurftir eins og orkuna til heimilisnota innan ákveðinna hóflegra marka þannig að munurinn verði ekki ýkjamikill. Þar er hins vegar gífurlegur munur enn í dag í þeim efnum og fátt sem veldur jafnmikilli mismunun á milli höfuðborgarsvæðisins og stórs hluta af landsbyggðinni og mismunur í orkukostnaði, alveg sérstaklega í upphitun húsa. Sá þáttur, eins og við þekkjum, er einn af þeim sem veldur gífurlegum aðstöðumun fólks á landsbyggðinni og hins vegar hér á þéttbýlissvæðinu og á vafalaust hlut í þeirri þróun fólksflutninga til höfuðborgarsvæðisins sem mjög hefur verið gerð að umræðuefni við þessar umr.

Ég hef hér vikið að nokkrum þáttum í tillögum þessarar nefndar, sem ekki hafa komið til framkvæmda nema þá að mjög litlu leyti, og vildi að það kæmi fram við þessa umr. hverjar væru helstu hugmyndir sem hún setti fram í annars miklu ítarlegri grg. Hún segir undir lok samandregins álits síns að æskilegt væri að sveitarfélögin tækju á sínar herðar fleiri verkefni en nefndin hefur lagt til. Henni vannst hins vegar ekki tími til að leggja fram tillögur um fleiri þætti en þarna veru nefndir. Nm. voru sammála um þessi efni og staðfestu það í þessari skýrslu. Þeir gengu út frá ríkjandi skiptingu landsins í sveitarfélög og nefndin leit svo á að það væri utan hennar verksviðs að fjalla um breytingu þar á. Þar væri um grundvallarmatsatriði að ræða sem ekki væri á verksviði hennar og henni var raunar ekki ætlað að taka á. Hins vegar voru nm. sammála um að skipting landsins í eins mörg og fámenn sveitarfélög og nú er kæmi beinlínis í veg fyrir yfirlýst markmið með starfi nefndarinnar, þ. e. flutning verkefna frá ríki til sveitarfélaga. Því taldi nefndin, með réttu að mínu mati, að tillögur hennar væru ekki annað en lítill áfangi í mikilvægu máli, en að raunverulegur árangur náist ekki án þess að fyrst verði gerðar breytingar sem geri sveitarfélögum landsins kleift að fást við fleiri og stærri verkefni.

Herra forseti. Þetta voru nokkrir þættir sem ég taldi rétt að kæmu fram við 3. umr. þessa máls og ekkert hefur verið um fjallað af minni hálfu hér við umr., en snerta svo náið það frv. sem hér er til umr. að sjálfsagt er að þeim sé gaumur gefinn þegar fjallað er um þá lagasetningu sem hér er á dagskrá.

Einn er sá þáttur í þessu frv. sem ég tel ástæðu til að gera athugasemdir við, en það eru tekjur Byggðastofnunar eða til byggðamálanna. Eins og það er lagt hér fyrir er gert ráð fyrir eignum Byggðasjóðs skv. lögum frá 1976, framlagi úr ríkissjóði eins og ákveðið er á fjárlögum hverju sinni og fjármagnstekjum. Hér er í rauninni dregið úr þeim viðmiðunum sem áður voru og eru reyndar enn í gildandi lögum í sambandi við tekjur til Byggðasjóðs og það er kannske vegna þess að ekki hefur verið staðið við þau markmið sem þar voru sett um tekjur til sjóðsins, þ. e. að hann hefði til ráðstöfunar 2% af útgjaldahlið fjárlaga sem hefur verið sú viðmiðun sem lengi vel var reynt að miða við, en ekki hefur alltaf tekist. M. a. er langt frá því að á yfirstandandi ári sé staðið við það markmið. Og nú er fjárhagsstöðu Byggðasjóðs svo háttað skv. áætlun sjóðsins fyrir árið 1985 að í fyrsta sinn í sögu hans horfir svo að eigið fé, sem svo er kallað, verði neikvætt og það upp á einar 14 millj. kr. þannig að ekki er nú staðan sterk við þessi þáttaskil í málefnum Byggðasjóðs og þeirrar Byggðastofnunar sem við honum á að taka.

Framlag ríkissjóðs til sjóðsins hefur líka farið rýrnandi ár frá ári þannig að ef menn ætluðu sér að taka þarna verulega á og breyta til frá þeirri öfugþróun sem hefur verið í gangi er ljóst að ríkissjóður þyrfti að leggja sjóðnum til allt aðrar fjárhæðir en verið hefur. Ég hef minnt á það við þessa umr. hvernig framlög ríkissjóðs hafa rýrnað stórkostlega í rauninni á undanförnum árum, minnkað að raungildi um meira en helming á stuttum tíma. Því er alveg ljóst að tekjur Byggðastofnunar verða heldur magrar nema ríkissjóður sjái sér fært að leggja sjóðnum til verulega aukinn hlut og jafnframt að bæta þá úr eigin stöðu sjóðsins. Vissulega er skv. 16. gr. þessa frv. ákveðin heimild fyrir sjóðinn til að taka lán til starfsemi sinnar innanlands eða erlendis, en þeim lántökum hljóta þó að vera ákveðin takmörk sett og sjóður sem þessi þarf að sjálfsögðu að hafa úr ákveðnu eigin fjármagni að spila.

Það er eðlilegt, herra forseti, að þegar verið er að meta árangur af byggðastefnu horfi menn ekki síst til fólksfjöldaþróunarinnar og tilfærslu á fólki. Það er búið að rifja það svo skilmerkilega upp við þessar umr. hvert horfir í þeim efnum að ekki er ástæða til að bæta þar miklu við. Ég vil þó segja það undir lok míns máls við 3. umr. um Byggðastofnun að ég tel það á engan hátt viðunandi framtíðarsýn að aðeins verði haldið í horfinu miðað við núverandi stöðu þessara mála og landsbyggðin héldi t. d. því vaxtarhlutfalli varðandi fólksfjölda sem gildir sem meðaltal yfir landið í heild. Auðvitað væri það mikil bót frá þeirri stöðu sem nú er í þessum efnum þar sem landsbyggðin er að tapa sínu fólki og er með neikvæða þróun mála, beinlínis neikvæða eins og hér hefur komið fram, en ég tel að ekki sé um að ræða viðunandi markmið í byggðamálum, aðeins að halda í horfinu eða halda landsmeðaltali, heldur þurfum við, það sé þjóðhagslega skynsamlegt, að stefna að því að hlutfallslega fleiri séu búsettir og taki sér búsetu utan höfuðstaðarsvæðisins en þeir sem þar búa og bætast við, sem sagt: það verði um að ræða jákvæða nettótilfærslu fólks frá höfuðborgarsvæðinu til annarra landshluta. Það tel ég vera markmið sem setja ætti þegar verið er að tala um átak í þessum málum sem því miður kemur afar lítið fram svo að ekki sé meira sagt í því frv. um Byggðastofnun sem hér er á lokastigi umræðna í þessari hv. deild.

Ég vona sannarlega, herra forseti, að reyndin verði betri í þessum málum en nú horfir og ástæða er til að ætla miðað við ríkjandi stefnu í þessum málum. Það væri satt að segja hörmulegt ef svo færi, eins og útlit er fyrir, að enn sigi á ógæfuhlið í þessum málum, bæði efnahagslega og hvað snertir fólksflutninga frá landsbyggðinni til aðalþéttbýlissvæðis landsins. Til þess hins vegar að spornað verði við þeirri þróun þarf eitthvað allt annað að gerast en fram hefur komið af hálfu stjórnarliða við umr. þessa máls, svo að ekki sé talað um það sem lesa má út úr þessu frv. sem segir nákvæmlega ekki neitt um eðlileg markmið eða ný markmið í byggðamálum.