14.06.1985
Neðri deild: 97. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6586 í B-deild Alþingistíðinda. (5936)

456. mál, Byggðastofnun

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Eins og brtt. 1254 ber með sér veldur hún því að þessar tvær brtt. verða bornar upp í annarri röð en rétt þætti skv. þingsköpum ef þær kæmu fram sem einstakar brtt. við frv. sem fyrir liggur. Hér er því verið að fara aftan að hlutunum. Af þeim sökum dreg ég mína till. til baka og eru þá báðar tillögurnar til baka dregnar.