07.11.1984
Neðri deild: 10. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 829 í B-deild Alþingistíðinda. (594)
Um þingsköp
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Á undanförnum árum hefur komið fram gagnrýni á slæleg vinnubrögð nefnda þingsins og hve mál hafa verið seint og oft fljótfærnislega unnin, enda oftast í afgreiðslu í þinglok þegar annir eru mestar. Hefur þá engu skipt hversu snemma málin hafa verið lögð fram. Ég vil vekja athygli á því að nú hefur þingið starfað í tæpan mánuð og aðeins fjórar nefndir hafa haldið fund til þessa, til annars en þess en að kjósa sér formann.
Fyrir 14 af 23 nefndum þingsins liggja nú fyrir 34 mál. Sýnist því full ástæða til að þær hefji störf nú þegar. Það hlýtur að skoðast sem virðingarleysi við mál þau er þm. leggja fram, ekki síst þá stjórnarandstöðuþm., að þessum málum sé ekki sinnt og nefndir hefji ekki störf fyrr en eftir dúk og disk. Ég skora þess vegna á hæstv. forseta Nd. að orða það við aðra forseta, hv. forseta Ed. og forseta Sþ., að þeir beiti sér fyrir því að nefndir þingsins hefji störf nú þegar.