14.06.1985
Efri deild: 101. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6636 í B-deild Alþingistíðinda. (5977)

57. mál, almannatryggingar

Frsm. (Davíð Aðalsteinsson):

Virðulegi forseti. Heilbr.- og trn. hefur haft þetta frv. til meðferðar alllengi. Þetta er 57. mál þingsins.

Ekki var það þó vegna þess að áhuga skorti fyrir málefninu, fremur hitt að við þurftum þennan tíma svo að segja allan til þess að komast að endanlegri niðurstöðu um afgreiðslu þess. Við sendum málið til Tryggingastofnunar ríkisins og ég vil leyfa mér að vitna til þess sem segja má að séu aðfaraorð umsagnar Tryggingastofnunar:

„Í stuttu máli er það skoðun Tryggingastofnunar ríkisins að vakin hafi verið athygli á þörfu málefni með flutningi fyrrnefnds frv. Hins vegar er nauðsynlegt að málefnið verði kannað frekar þar sem samþykki frv. óbreytts mundi leiða til mismununar. Er því lagt til að grundvöllur sjúkradagpeningagreiðslna til heimavinnandi verði endurskoðaður, sbr. meðfylgjandi grg.“

Ég hirði ekki um að fara yfir þá grg. eins og hún liggur hér fyrir, en eins og frv. var í upphaflegri mynd gerir það ráð fyrir því að dagpeningar vegna starfa við eigin heimili, sem falla að fullu niður vegna veikinda, skuli nema hámarksupphæð hverju sinni. Skv. kostnaðarmati Tryggingastofnunar ríkisins hefði kostnaðarauki numið allt að 21 millj. kr. ef frv. yrði að lögum óbreytt. Okkur nm. þykir það að vísu nokkuð í efri kantinum en ef eingöngu dagpeningar vegna starfa við eigið heimili hefðu hækkað að fullu hefði það haft í för með sér 7–9 millj. kr. kostnaðarauka.

Heilbr.- og trn. flytur brtt. við frv. þar sem segir, með leyfiforseta:

„Dagpeningar vegna starfa við eigið heimili, sem falla að fullu niður vegna veikinda, skulu nema helmingi fullra dagpeninga, að viðbættum hálfum hluta sannaðrar greiðslu fyrir heimilishjálp til fólks utan heimilis umfram heimilishjálp hálfan dag í viku, allt að fullum dagpeningum.“

Sú breyting sem þarna er um að ræða er að þar sem stóð „fjórðungi“ setjum við „helmingi“.

Með vísan til þess sem ég gat um fyrr um kostnaðarauka gæti þetta frv. haft í för með sér, ef að lögum verður, kostnaðarauka að hámarki að okkar dómi 3 milljónir. Það eru ekki stórar fjárhæðir með vísan til þess að dagpeningagreiðslur af því tagi sem hér um ræðir eru nánast ölmusumál og enda þótt skammt sé gengið af hálfu heilbr.- og trn. er það þó aðeins í áttina að færa þessar greiðslur af ölmusustigi.

Ég vil leyfa mér að síðustu að vitna til nál. heilbr.- og trn. þar sem segir, með leyfi forseta:

„Upplýst hefur verið að fyrirkomulag á greiðslum sjúkradagpeninga er til endurskoðunar. Nefndin leggur áherslu á að við þá endurskoðun verði tryggt að allir sitji við sama borð hvað varðar slíkar greiðslur.

Nefndin leggur til að frv. verði samþykki með breytingu sem hún flytur till. um á sérstöku þskj.“

Ég hef þegar gert grein fyrir þessari brtt. og nál. er undirritað af hv. heilbr.- og trn.-mönnum.