14.06.1985
Efri deild: 101. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6637 í B-deild Alþingistíðinda. (5978)

57. mál, almannatryggingar

Helgi Seljan:

Virðulegi forseti. Ég þakka samnm. mínum í heilbr.- og trn. fyrir afgreiðslu þessa máls. Hér er um mikilvægan áfanga að ræða í réttlætisátt þar sem þó er um tvöföldun þeirra réttinda að ræða sem núgildandi lög segja til um, þó ekki sé náð því lokamarki sem við sjálfsagt öll viljum sjá varðandi réttindi húsmæðra í þessum efnum, og þá um leið réttindi annarra þeirra sem enn njóta skertra sjúkradagpeninga, en það eru þeir sem vinna aðeins úti hlutastarf, þeir hafa ekki fullan rétt heldur.

Ég þakka formanni heilbr.- og trn. sérstaklega fyrir að hafa beitt sér fyrir því að svo mætti fara um afgreiðslu málsins. Mál af þessu tagi eru býsna viðkvæm þegar þau snerta nokkrar fjárupphæðir. Ég er sammála honum í því að mér þykir Tryggingastofnun hafa heldur of í lagt þegar hún reiknar út kostnað af þessu frv. eins og það var í upphafi. En um það ætla ég ekki að deila. Ég ætla aðeins að vona að þessi áfangi, þó ekki sé hann stór, mikilvægur þó, náist fram, ekki bara hér í þessari hv. deild, sem auðvitað er full vissa fyrir, heldur einnig að Nd. taki þessu máli vel og afgreiði það fljótt frá sér.

Ég veit um þá mismunun sem er í þessu kerfi í heild sinni, sem þarf leiðréttingar við, og ég fagna því alveg sérstaklega að samróma álit nefndarinnar kemur fram um það að við endurskoðun skuli tryggt að allir sitji við sama borð. Að því hljótum við að stefna.