14.06.1985
Efri deild: 101. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6638 í B-deild Alþingistíðinda. (5979)
57. mál, almannatryggingar
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:
Virðulegi forseti. Aðeins örfá orð. Það ber nú svo við að hv. heilbr.- og trn. hefur afgreitt þetta mikla réttlætismál frá sér og vil ég fagna því hér. Eins og síðasti ræðumaður gat um og frsm. nefndarinnar einnig hefur nefndin orðið ásátt um að afgreiða málið á þann veg að um er að ræða tvöföldun réttinda frá því sem nú er. Þetta er spor í rétta átt. En enn er töluvert eftir í land og hefði ég svo sannarlega kosið að sjá málið afgreitt eins og það var upphaflega lagt fram. En ég fagna því að þetta skref er þó tekið og lýsi stuðningi mínum við þetta mál.