18.06.1985
Sameinað þing: 97. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6696 í B-deild Alþingistíðinda. (6004)
508. mál, Íslandssiglingar Rainbow Navigation
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Ég þakka fyrir fsp. sem hér hefur verið flutt og læt í ljós þá skoðun mína að ég tel að hæstv. utanrrh. hafi í alla staði staðið rétt að þessu máli og farið þar þá leið sem ein er skynsamleg og fær. Ég vænti þess að hann fylgi málinu eftir og vona að það verði árangur af þeirri vinnu.