18.06.1985
Sameinað þing: 97. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6697 í B-deild Alþingistíðinda. (6007)
508. mál, Íslandssiglingar Rainbow Navigation
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Hér er til umr. mál af tilefni fsp. sem varðar spurninguna um skiptingu á herstöðvagróðanum sem svo hefur verið kallaður, spurninguna um hver eigi að hafa tekjurnar sem tengjast dvöl bandaríska herliðsins á Íslandi. Það hefur verið áhyggjuefni þeirra sem eru andvígir dvöl bandaríska herliðsins hér að hann verði þáttur í íslensku efnahagslífi og þá vaxandi þáttur.
Sú starfsemi sem hér um ræðir er eitt dæmi um þetta. Það er sannarlega áhyggjuefni þegar svo er litið til að starfsemi í þágu erlends setuliðs í landinu sé svo þýðingarmikil fyrir íslensk fyrirtæki að þau nánast standi eða falli með því hvort þau fái greiðslur vegna starfa í þágu hins erlenda varnarliðs. Þetta tel ég eðlilegt að fram komi við þessa umr. Ég tel að lausn þessa máls, hin farsælasta, væri sú að við losuðum okkur við þetta erlenda herlið og ítök þess í íslensku þjóðlífi og þar á meðal íslensku efnahagslífi.