18.06.1985
Sameinað þing: 98. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6701 í B-deild Alþingistíðinda. (6010)
Skýrsla fjmrh. um heildarendurskoðun lífeyrismála
Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Í byrjun þings eða 16. okt. s. l. lögðu þm. Alþfl. og BJ fram beiðni um skýrslu frá fjmrh. um heildarendurskoðun lífeyrismála. Sérstaklega var óskað eftir því að fjmrh. flytti Alþingi skýrslu um störf stjórnskipaðrar nefndar sem með erindisbréfi fjmrh., dags. 20. júlí 1976, var falið að semja tillögur um nýskipan lífeyriskerfisins. Var óskað eftir því að fram kæmi hvaða áform væru uppi til að ná þeim markmiðum sem sett voru fram í samkomulagi Alþýðusambandsins og vinnuveitenda um lífeyrismál 28. febr. 1976, en þau markmið voru: að samfellt lífeyriskerfi tæki til allra landsmanna; að lífeyrissjóðir og almannatryggingar tryggi öllum lífeyrisþegum viðunandi lífeyri er fylgi þróun kaupgjalds á hverjum tíma; að auka jöfnuð og öryggi meðal landsmanna sem lífeyris eiga að njóta; að lífeyrir geti, innan vissra marka, verið breytilegur eftir vali hvers og eins lífeyrisþega; að reynt verði að finna réttlátan grundvöll fyrir skiptingu áunninna lífeyrisréttinda milli hjóna.
Í beiðni þessari um skýrslu var einnig óskað eftir upplýsingum frá fjmrh. um eftirfarandi atriði:
a. Hver væri fjárhagsstaða lífeyrissjóðanna og hversu vel þeir væru búnir undir að standa við skuldbindingar sínar.
b. Hvaða áhrif mundi breytt aldursskipting hafa á skuldbindingar sjóðanna á komandi árum. Spurt var sérstaklega um tímabilin 1984–1989, 1990–1994, 1995–2000.
c. Hvernig tekist hafi að samræma lífeyrisrétt og bótaákvæði í reglum sjóðanna.
d. Hver væru áhrif fullrar sjóðssöfnunar annars vegar og hins vegar gegnumstreymiskerfis á viðgang sjóðanna og iðgjaldagreiðslur sjóðfélaga.
e. Hvaða áform væru uppi til að tryggja lífeyrisréttindi heimavinnandi fólks.
f. Hvenær mætti gera ráð fyrir að upplýsingastreymi frá lífeyrissjóðunum yrði með þeim hætti að sérhver sjóðfélagi fengi árlega sent yfirlit yfir áunnin réttindi.
Það er ljóst, herra forseti, að allnokkurn tíma hefur tekið að fá fram lagða þessa skýrslu sem um var beðið, en sjö mánuðir eru nú liðnir frá því að þessi beiðni var lögð fram á hv. Alþingi. Að sumu leyti er skiljanlegt að þetta hafi tekið nokkurn tíma vegna þess að hér er um umfangsmikla skýrslu að ræða. Það veldur þó vonbrigðum hvernig skýrsla þessi er fram sett þar sem á þskj. 957 er ekki að finna bein svör við þeim spurningum sem fram eru bornar á þskj. 77 og ég hef hér áður lýst, heldur verður að leita uppi svörin í fskj. sem fram koma í sérstakri bók og fylgja svari fjmrh. á þskj. 957, sem er skýrsla til fjmrh. frá formanni endurskoðunarnefndar lífeyriskerfisins er óskað var eftir af fjmrn. með bréfi dags. 15. jan. 1985, eins og fram kemur á þskj. 957.
Í þessari skýrslu, sem er á annað hundrað blaðsíður, er ekki heldur að finna svör við öllum þeim spurningum sem fram eru bornar á þskj. 77, en engu að síður er hér um fróðlega samantekt að ræða á starfi endurskoðunarnefndar og vissulega handhægt að hafa í einni bók sem þessari allt sem gert hefur verið og unnið að í lífeyrismálum á undanförnum tíu árum.
Hæstv. fjmrh. hefur nú gert Alþingi grein fyrir þessari skýrslu. Hæstv. ráðh. las einungis örfáa kafla sem fram koma á þskj. 957 sem er í raun skýrsla formanns endurskoðunarnefndar til hæstv. fjmrh. Ég verð að segja að það veldur mér vonbrigðum að hæstv. fjmrh. skyldi ekki sjá ástæðu til að láta í ljós álit sitt á þessari skýrslu, sem er um margt svört skýrsla varðandi þróun lífeyrismála hér á landi, en skyldi einungis láta sér nægja að vitna í örfáa kafla í bréfi formanns endurskoðunarnefndarinnar til fjmrh. sem hann fékk fyrir nokkru.
Í þessari skýrslu kemur vissulega mjög margt athyglisvert fram og óhætt er að segja að í þessari skýrslu er dregin upp nokkuð dökk mynd af framtíðarhorfum í lífeyrismálum þjóðarinnar.
Fram kemur í skýrslunni að eitt meginverkefni endurskoðunarnefndarinnar á allra síðustu árum hafi verið að vinna að frv. til laga um starfsemi lífeyrissjóða og leita samstöðu aðila um slíkt frv. Er þess því að vænta að framlagning slíks frv. á Alþingi verði næsta skrefið sem stigið verði í lífeyrissjóðsmálum þótt greinilega komi fram í þessari skýrslu að ekki hefur tekist samstaða um það frv. og að átta manna lífeyrissjóðsnefndin svokallaða, sem starfað hefur einnig frá 1977, eða lífeyrisnefnd ASÍ, Farmanna- og fiskimannasambandsins, Vinnuveitendasambandsins og Vinnumálasambands samvinnufélaganna, hafi gert veigamiklar athugasemdir við þau frumvarpsdrög sem nú liggja fyrir.
Í þessu frv. um starfsemi lífeyrissjóða er kveðið á um réttindi og lágmarksskyldu lífeyrissjóða, m. a. varðandi myndun lífeyrisréttinda, flutning réttinda milli sjóða, vörslu trygginga og ávöxtun iðgjalda. Þótt vissulega sé brýnt að setja samræmdar reglur, m. a. um réttindi og lágmarksskyldur lífeyrissjóða eins og gert er ráð fyrir í þessum frumvarpsdrögum er engu að síður ljóst að horfið er frá því markmiði, sem oft hefur verið nefnt, að koma á einum lífeyrissjóði fyrir alla landsmenn. Þess í stað er hugmyndin sú að leggja fram frv. sem kveður á um lágmarksskyldu sem lífeyrissjóðir þurfi að uppfylla varðandi lífeyrisréttindi, iðgjöld o. fl. Í því efni, eins og fram kemur í þeirri skýrslu sem hér er til umr., liggur ljóst fyrir að þó að endurskoðunarnefndin hafi starfað í níu ár og hafi það að meginverkefni að semja tillögur um nýskipan lífeyriskerfisins liggja þó ekki fyrir eftir allan þennan tíma tillögur um heildarskipan lífeyrismála þó að vissulega beri ekki að vanmeta að sú vinna sem unnin hefur verið sé mjög gagnleg og auðveldi ákvarðanatöku í því hvaða stefnu fylgja eigi í lífeyrismálum í framtíðinni. Þó vissulega skuli það ekki vanmetið að ýmsir áfangar hafi náðst í lífeyrismálum á undanförnum árum harma ég að ekki skuli liggja fyrir neinar tillögur um framtíðarskipan lífeyrismála eftir að endurskoðunarnefndin hefur setið á rökstólum um þessi mál í allan þennan tíma eða í níu ár. Að því leyti til veldur þessi skýrsla mér vonbrigðum, en ég er þeirrar skoðunar að það muni frekar stuðla að jöfnuði í lífeyrisgreiðslum ef framtíðarskipan þess yrði með þeim hætti að byggt yrði á einu samræmdu lífeyrisréttindakerfi og helst af öllu einum lífeyrissjóði fyrir alla landsmenn í staðinn fyrir að yfir 90 lífeyrissjóðir starfi eins og nú er.
Það er líka svo að þó að markmiðið með frv. um starfsemi lífeyrissjóða sé að kveða á um lágmarksskyldu lífeyrissjóða, til að mynda að því er varðar lífeyrisréttindi, tel ég að þau ákvæði sem er að finna í frumvarpsdrögunum muni engan veginn stuðla að þeim aukna jöfnuði í lífeyrisgreiðslum sem að hefur verið stefnt og að mikill mismunur verði áfram á lífeyrisréttindum sem mikið hefur verið gagnrýnt.
Það virðist einnig vera skoðun átta manna nefndarinnar að mikið vanti upp á að réttindaákvæðin séu samræmd með þessu frv. og vil ég, með leyfi forseta, vitna í skýrsluna á þskj. 957, en þar kemur fram:
„Eitt meginsjónarmið átta manna nefndarinnar í þessu máli hefur frá upphafi verið að ófrávíkjanlegt væri að í löggjöf um starfsemi lífeyrissjóða yrðu ákvæði um samræmd lágmarksréttindi og iðgjaldagreiðslur til lífeyrissjóða. Það hefur jafnframt verið krafa nefndarinnar að slík ákvæði tækju með sama hætti til allra lífeyrissjóða, hvort sem þeir starfa skv. sérlögum eða á grundvelli almennra reglugerða. Að baki þessu býr að nefndin og samtökin sem að henni standa telja óhjákvæmilegt að lífeyrisréttindi allra starfandi manna verði jöfnuð og samræmd. Þannig er þess krafist að greiðsla sama lífeyrisiðgjalds af sambærilegum tekjum leiði til sömu lífeyrisréttinda. Er þá gert ráð fyrir að skilyrði þess að lífeyrissjóðir fái að starfa verði að iðgjöld og réttindi standist á og sjóðir standi jafnan undir sér. Í þessu felst m. a. að hætt verði að halda uppi, m. a. með almannafé, ýmsum sérréttindum einstakra hópa í lífeyrismálum sem koma nú fram í mun hærri lífeyrisgreiðslum en svarar til iðgjaldagreiðslna, lægri lífeyrisaldri, takmörkun á iðgjaldagreiðslum o. fl.
Þau ákvæði um lífeyrisréttindi og iðgjöld, sem nú eru í drögum að frv. til l. um starfsemi lífeyrissjóða, eru ófullnægjandi að mati átta manna nefndarinnar. Ástæðurnar eru þær að þessi ákvæði tryggja ekki þá jöfnun og samræmingu réttinda iðgjalda og iðgjaldastofns sem nefndin telur óhjákvæmilega.“
Það kemur því glögglega fram í þessari skýrslu að átta manna lífeyrisnefndin er þeirrar skoðunar að ekki sé tímabært að setja lög um starfsemi lífeyrissjóða fyrr en mótuð hafa verið viðunandi ákvæði um lífeyrisréttindi og lífeyrisiðgjöld svo og að gerð hafi verið. eins og fram kemur líka í þessari skýrslu, fjárhagsleg úttekt á stöðu sjóðanna miðað við ákvæði frv.
Kem ég þá að því ákvæði í þessari skýrslu sem varðar það atriði hvernig lífeyrissjóðirnir eru fjárhagslega í stakk búnir til að sinna þeim skuldbindingum sínum og má segja að sú niðurstaða hljóti að valda töluverðum áhyggjum. Ég tel að sú niðurstaða, sem þar komi fram, sýni glöggt að nauðsynlegt hafi verið að fá þessa skýrslu hér inn í þingsali til að þm. geti kynnt sér hvert stefni í þessu máli og að sú niðurstaða sýni svo að ekki verði um villst að ekki verður lengur beðið með að taka ákvörðun um framtíðarskipan lífeyrismála. Ég tel að þessar upplýsingar séu það athyglisverðasta sem fram kemur í þessari skýrslu auk þeirra tillagna sem fram koma hjá átta manna lífeyrisnefndinni um breytingar á lífeyrisréttindum.
Í þessari skýrslu, þar sem raktar eru framtíðarhorfur núverandi lífeyriskerfis, verður að segjast eins og er að þar er um mjög dökkar horfur að ræða eins og glöggt kemur fram í þessari skýrslu. Í útreikningum nefndarinnar kemur fram að 10% iðgjöld eins og nú er standa alls ekki undir lífeyrisskuldbindingum. Þar eru tekin dæmi um mismunandi raunávöxtun sjóðanna og í þeim öllum kemur fram að 10% iðgjald hrekkur ekki til að mæta lífeyrisloforðum, jafnvel ekki með 2% ávöxtun fjár umfram kauphækkanir. Miðað við 2% raunvexti þarf raunverulegt iðgjald að vera 18.9% og er í þeim útreikningum í skýrslunni miðað við reglur SAL-sjóðanna. Hér er því um að ræða 8% viðbótariðgjald, sem þarf vegna þeirra skuldbindinga sem sjóðirnir hafa nú tekið á sig.
Í þessari skýrslu var kannað hver lífeyriseign landsmanna þyrfti að vera í dag til þess að staðið væri undir þeim lífeyrisskuldbindingum sem stofnað hefur verið til. Þetta var gert með því að athuga hve upphafseign sjóðanna þyrfti að vera mikil til þess að iðgjald fyrir allan mannfjöldann í dag yrði hið sama og verið hefur. Niðurstaðan varð sú að við 2% raunvexti þyrfti upphafseign að vera sem næst fimmfalt hærri en hún er nú eða 59 milljarðar í stað 12 milljarða sem hún var í ársbyrjun 1984. Við 1% raunvexti þyrfti lífeyriseignin að vera sexfalt hærri en hún er nú eða 74 milljarðar og við 0% raunvexti 92 milljarðar.
Ástæðu þess að lífeyriseign hrekkur ekki til að mæta skuldbindingum sem þegar hefur verið stofnað til segir í skýrslunni að rekja megi til þriggja þátta: 1. Iðgjald til lífeyrissjóða hefur verið óbreytt um áratuga skeið, en ævilíkur hafa gerbreyst á þeim tíma. 2. Mikil verðbólga og verulega neikvæðir raunvextir hafa rýrt mjög eignir lífeyrissjóðanna. 3. Flestir lífeyrissjóðanna hafa á síðustu árum tekið á sig auknar skuldbindingar, einkum verðtryggingu lífeyris án þess að iðgjald hafi verið hækkað.
Á bls. 8 í þskj. 957 er einmitt bent á hvernig iðgjaldahlutfallið ræðst af því hvernig tekst að ávaxta iðgjaldasjóði. Kemur þar fram að miðað við réttindakerfi SAL-sjóðanna og 70 ára ellilífeyrisaldur þyrfti iðgjald að vera 23% ef iðgjaldasjóðurinn er ávaxtaður í takt við launabreytingar. Ef ávöxtunin er 1% umfram launabreytingar næðist jafnvægi við 16.6% iðgjald, en við 2% ávöxtun nægði 12% iðgjald. Væri hins vegar 67 ára ellilífeyrisaldur mundi iðgjald þurfa að vera 26% með enga ávöxtun umfram launabreytingar, 18.9% við 1% ávöxtun og 13.4% við 2% ávöxtun.
Ég tel að hér sé um mjög athyglisverðar upplýsingar að ræða því að um er að ræða að iðgjaldagreiðslur þyrftu í raun allt að því að tvöfaldast frá því sem nú er, eftir því við hvaða ávöxtun eða ellilífeyrisaldur er miðað, ef sjóðirnir eiga að geta staðið við skuldbindingar sínar.
Það kemur glöggt fram í þessari skýrslu að það hefur veruleg áhrif á iðgjaldaþörfina hvenær taka lífeyrisgreiðslunnar hefst. Miðað við 70 ára ellilífeyrisaldur og reglur SAL-sjóðanna er nauðsynlegt iðgjald um 17% , við 65 ára ellilífeyrisaldur þyrfti iðgjald að vera 23% en 30% við 60 ára ellilífeyrisaldur. Ef dæmi er tekið um réttindakerfi Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, sem veitir nú meiri réttindi en SAL-sjóðirnir, sýna útreikningar að mun hærra iðgjald þarf en hjá SAL-sjóðunum og þarf það að vera nálægt 30% til að tryggja lífeyrisréttindi þeirra í framtíðinni. Framtíðarhorfur í lífeyrismálum eru því vissulega ekki glæstar og vissulega orðið tímabært að menn geri sér grein fyrir því hvert stefnir í því mikilvæga máli sem lífeyrismálin eru.
Í skýrslunni kemur fram að lífeyrisréttindi hjá SALsjóðunum verða hæst 72% af grundvallarlaunum, en meðallífeyrishlutfall er nokkru lægra. Í útreikningum sem nefndin byggir á eru meðalréttindi 61.4% af grundvallartekjum. Í spá um þróun lífeyrissjóðanna kemur fram að tekjur af 10% iðgjaldi mundu einungis nægja til að standa undir 26.9% meðallífeyrishlutfalls og ef litið er til þess hvað 10% iðgjald getur staðið undir miklu af lífeyrisskuldbindingum er það tæpur helmingur eða 43.8%. Á þessu sést hve geysilega mikið vandamál er hér á ferðinni, sem nauðsynlegt er að taka á í tíma áður en í óefni er komið, og ljóst er að þegar hefur dregist allt of lengi að taka á þessu máli og móta tillögur og stefnu í þessum málum sem allt í senn tryggir traustan fjárhagsgrundvöll sjóðanna, jöfnuð í lífeyrisréttindum og viðunandi lífeyri sem nái til allra landsmanna.
Ég sé ástæðu til að vekja athygli á þeim viðhorfum sem eru uppi í lífeyrisnefndinni að því er varðar gegnumstreymiskerfið, en hugmyndir hafa verið uppi um að taka upp svokallað gegnumstreymiskerfi í stað uppsöfnunar eins og nú er. Í gegnumstreymiskerfi felst, eins og menn þekkja, að iðgjöld sem starfandi fólk greiðir eru jafnharðan notuð til lífeyrisgreiðslna til lífeyrisþega en þar með myndast engin uppsöfnun í lífeyriskerfinu. Þetta mundi þýða að í fyrstu væri hægt að lækka iðgjöldin verulega, segir í skýrslunni, en iðgjöld þyrftu að hækka til mikilla muna þegar fram í sækti. Ástæða þess, eins og segir í skýrslunni, er að lífeyrisþegum fer mjög fjölgandi á næstu áratugum, jafnframt því sem allt bendir til að á næstunni muni draga verulega úr fólksfjölgun. Í þessu felst mikil fjölgun fólks á lífeyrisaldri í hlutfalli við starfandi fólk. Í skýrslunni segir að ætla megi að í dag séu 8.3 einstaklingar á aldrinum 20–69 ára á móti hverjum einum 70 ára eða eldri, en eftir 50 ár bendi spár til að þá verði aðeins 4.5 einstaklingar 20–69 ára á móti hverjum einum 70 ára eða eldri eða m. ö. o. færri verði til þess að standa undir gegnumstreymi lífeyrisgreiðslna.
Í skýrslunni kemur það fram sem skoðun lífeyrisnefndarinnar að með upptöku gegnumstreymiskerfis sé verið að velta vandanum á undan sér. Að auki er bent á þjóðhagslega þýðingu sparnaðar í lífeyriskerfinu með söfnun. Það virðist því vera nokkuð ljóst að endurskoðunarnefndin mun ekki mæla með gegnumstreymiskerfi, heldur að viðhaldið verði núverandi kerfi, þ. e. uppsöfnun í sjóðunum.
Í skýrslunni kemur fram að auk þess meginverkefnis nefndarinnar að undirbúa gerð tillagna um nýskipan lífeyriskerfisins hefur nefndin haft afskipti af og á ýmsan hátt frumkvæði að lagasetningum þeim sem átt hafa sér stað hin síðari ár eða frá því nefndin var sett á laggirnar og eru þar rakin nokkur lög sem sett hafa verið frá því að endurskoðunarnefnd lífeyriskerfisins var sett á stofn. Hér skal ekkert úr því dregið að öll þessi lög, sem sett hafa verið, hafa vissulega verið til bóta, en hinu er þó ekki að leyna að það veldur mér miklum vonbrigðum í þessari skýrslu að ekki skuli koma fram neinar tillögur frá sautján manna lífeyrisnefndinni um hvernig framtíðarskipan lífeyriskerfisins skuli háttað nema þau frumvarpsdrög sem unnið hefur verið að á allra síðustu árum um starfsemi lífeyrissjóða sem mjög eru gölluð eins og ég hef áður rakið. Tel ég að sá tími sem nefndin hefur haft, eða níu ár, hefði átt meira en að duga og tillögur hefðu átt að liggja fyrir fyrir löngu um nýskipan lífeyrismála.
Engu að síður, þó ekki liggi fyrir hugmyndir eða tillögur sautján manna nefndarinnar, koma fram í þessari skýrslu ákveðnar hugmyndir um lífeyrisréttindi og iðgjöld sem settar eru fram í sérstakri grg. í fskj. 5, sem átta manna nefndin hefur lagt fyrir sautján manna nefndina og samtök þau sem sæti eiga í nefndinni, og ég tel ástæðu til að fara nokkrum orðum um þær hugmyndir í lokin.
Fram kemur að átta manna nefndin telur að örðugt sé að komast hjá því að iðgjöld verði hækkuð eitthvað, en til að draga úr hækkun leggur nefndin til að verulegar breytingar verði gerðar á nokkrum lífeyrisbótum. Fram kemur að miklar breytingar hafa orðið á undanförnum áratugum á vinnuframlagi hjóna, en í skýrslunni segir að nú sé talið að um 70% kvenna stundi launaða vinnu utan heimilis. Ég tel að þessi tala sé ekki alls kostar rétt vegna þess að í úttekt sem framkvæmdanefnd um launamál kvenna hefur látið gera um stöðu kvenna á vinnumarkaðinum kemur fram að árið 1982 voru um 80% kvenna 16 ára og eldri með einhverjar atvinnutekjur. Fram kemur að það sé mat átta manna nefndarinnar að þessi breyting kalli á breytingar á ákvæðum um makalífeyri. Jafnframt er lagt til að barnalífeyrir verði stórhækkaður og að lífeyrisréttindum verði skipt milli hjóna. Hér er um að ræða grundvallarbreytingar á lífeyrisréttindum sem nokkuð víst er að skiptar skoðanir verði um.
Ég tel að fengur sé í því að fá fram skoðanir átta manna lífeyrisnefndarinnar í þessu máli, ekki síst að því er varðar skoðun hennar á því hvernig rétti heimavinnandi fólks til lífeyris skuli háttað. Um það hefur orðið nokkur umræða á undanförnum árum, bæði hér á Alþingi sem og annars staðar, að tryggja beri heimavinnandi fólki lífeyri og fleiri hafa orðið til að viðurkenna að óviðunandi sé með öllu að heimavinnandi fólk sé án lífeyrisréttinda. Sú krafa er því orðin mjög hávær að úr þessu verði bætt.
Hér á Alþingi hafa komið fram a. m. k. tvær till. í þessu efni. Það var þegar á árinu 1980, þegar Alþfl. lagði fram till. um framtíðarskipan lífeyrismála, sett fram sú till. að lífeyrisréttindum yrði skipt milli hjóna. Á Alþingi 1983–1984 var enn sett fram till. til þál. frá þm. Alþfl. um rétt heimavinnandi til lífeyris sem fól í sér að áunnin stig hjóna eða sambúðarfólks yrðu lögð saman og skipt til helminga á sérreikning þeirra fyrir þann tíma sem sambúð varir eða m. ö. o. að lífeyrisréttindum yrði skipt milli hjóna. Aðrar hugmyndir hafa einnig verið uppi um sérstakan lífeyrissjóð fyrir heimavinnandi fólk.
Þær tillögur sem hafa komið fram hér á hv. Alþingi um að tryggja lífeyrisrétt heimavinnandi fólks hafa ekki hlotið afgreiðslu hér á Alþingi og ávallt til þess vísað að starfandi sé endurskoðunarnefnd sem leggja eigi fram till. um framtíðarskipan lífeyrismála. Það er mín skoðun að ekki sé hægt og ekki sé stætt á því að bíða lengur með ákvarðanatöku í því efni hvaða leið eigi að fara til að tryggja heimavinnandi fólki lífeyri. Ég tel því að þó enn verði bið á því að taka afstöðu til framtíðarskipanar lífeyrismála, sem að mínu mati er raunar ekki stætt á miðað við framtíðarhorfur og stöðu sjóðanna, sé engu að síður, ef bið verður þar á, nauðsynlegt að taka sérstaklega fyrir till. um hvernig tryggja eigi heimavinnandi fólki lífeyri.
Ég vil spyrja um afstöðu hæstv. fjmrh. til þess máls og þá hvort hann sé tilbúinn að beita sér fyrir því að á þessu sérstaka máli verði þegar tekið og þar sem lagabreytingar þarf til verði slíkt lagt fyrir í upphafi næsta þings. M. ö. o. að tekið verði á þessu sérstaka máli, sem varðar lífeyrisréttindi heimavinnandi fólks, en ekki verði beðið lengur með það að fyrir liggi tillögur nefndarinnar um framtíðarskipan lífeyrismála, en ég dreg þá ályktun af skýrslu þeirri sem nú liggur fyrir að enn geti orðið nokkur bið þar á.
En meginforsenda hugmynda átta manna nefndarinnar er sú að lífeyristryggingar almannatrygginga muni starfa áfram með svipuðum hætti og nú er. Í þessu felst einkum að núverandi elli- og örorkulífeyri verði viðhaldið og hann greiddur án tillits til ævitekna lífeyrisþega. Hann yrði því áfram grunnlífeyrir í nýju lífeyriskerfi. Úr lífeyrissjóðunum yrði hins vegar greiddur tekjutengdur ellilífeyrir og ráðist lífeyrisréttur af greiðslu iðgjalda af tekjum á starfsævinni. Í hugmyndum nefndarinnar er tekin ákveðin afstaða til ellilífeyrisréttar heimavinnandi maka. Eins og áður er sagt er gengið út frá því, eins og segir í skýrslunni, að í hjónabandi felist sameiginlegt fjárfélag hjónanna og þær eignir sem myndaðar eru af tekjum sem aflað er meðan hjónaband varir séu sameign hjónanna. Af þessu er ályktað að ellilífeyrisréttur sem stofnast með greiðslum iðgjalda af atvinnutekjum sé sameign hjónanna. Nefndin leggur því til að ellilífeyrisréttindi skiptist milli hjóna við slit hjónabands, hvort heldur er af völdum skilnaðar eða dauða.
Nefndin leggur til að makalífeyrir í sinni núverandi mynd verði ekki í nýju réttindakerfi. Benda þeir á að í núgildandi ákvæði flestra lífeyrissjóða varðandi makalífeyri er tekið mið af því að eiginkonan væri fullkomlega háð eiginmanni sínum fjárhagslega og væri jafnframt á framfæri hans. Við andlát eiginmanns hefði konunni því verið greiddur framfærslulífeyrir, þ. e. makalífeyrir. Bent er á í skýrslunni að geysilegar breytingar hafa átt sér stað, varðandi launaða vinnu eiginkvenna utan heimilis á undanförnum tveimur áratugum og því séu þær forsendur sem lágu að baki makalífeyris að verulegu leyti brostnar. Í stað makalífeyris er því lagt til að ellilífeyrisréttindum hjóna verði skipt svo að við fráfall maka verði greiddur tímabundinn fjölskyldulífeyrir sem miðast við framfærslubyrði. (Forseti: Má ég spyrja hv. þm. hvort þess sé að vænta að bráðlega verði lokið ræðunni?) Ég á svona þrjár, fjórar mínútur eftir. (Forseti: Það er spurt vegna þess að við erum knappir með tíma og það er komið langt umfram þann tíma sem við ætluðum í þessa umr., en það er opin leið að fresta umr. En við höldum umr. áfram þar sem eru ekki eftir nema 2–3 mínútur.)
Í stað makalífeyris er því lagt til að ellilífeyrisréttindum hjóna verði skipt svo að við fráfall maka verði greiddur tímabundinn fjölskyldulífeyrir sem miðist við framfærslubyrði. Er hér annars vegar um að ræða makabætur sem greiddar yrðu 1–2 ár eftir fráfall maka. Hins vegar er um að ræða barnalífeyri. Leggur nefndin áherslu á að hann yrði stóraukinn og greiddur framfæranda barna látins sjóðfélaga til 19 ára aldurs. Þessari till. nefndarinnar um stórhækkaðan barnalífeyri og að hann verði greiddur til barna látins sjóðfélaga til 19 ára aldurs ber sérstaklega að fagna.
Till. nefndarinnar eru því í stórum dráttum þær að skipta ellilífeyrisréttindum hjóna, taka upp tímabundnar makabætur í stað makalífeyris og stórhækka barnalífeyri. Segir í skýrslu nefndarinnar að niðurfelling makalífeyris sé aðlögun að breyttum þjóðfélagsháttum, en framreikningur á makalífeyri leiði einnig í ljós að hann muni verða æ dýrari þegar fram í sækir.
Nefndin leggur til veigamiklar breytingar að því er varðar iðgjaldagreiðslur. Leggur nefndin til að iðgjaldastofni verði breytt þannig að í stað þess að iðgjald sé eingöngu greitt af dagvinnulaunum skuli það greiðast af heildaratvinnutekjum, en um leið yrði tekjutengdur lífeyrir miðaður við heildaratvinnutekjur.
Ég skal ekki, herra forseti, þar sem þess er óskað, taka mikið lengri tíma í að ræða þetta mál þó vissulega sé ástæða til og mörg ómerkari mál en lífeyrismálin fái hér meiri umfjöllun en það mál sem er til umræðu. En um leið og ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir þessa skýrslu, sem ég tel mikinn feng að og hljóti að verða stjórnvöldum tilefni til að taka á þessu máli af fullri einurð, þá ítreka ég spurningu mína til hæstv. fjmrh. um það hvort hann sé tilbúinn, ef dráttur verður á að koma á þeirri nýskipan lífeyrismála sem að er stefnt, að beita sér fyrir því að sérstaklega verði tryggt að þeir sem eru heimavinnandi búi við sambærileg lífeyrisréttindi og aðrir landsmenn.