18.06.1985
Sameinað þing: 98. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6721 í B-deild Alþingistíðinda. (6016)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Helgi Seljan):

Ég vil vekja athygli hv. þm. á því að þessi umr. hefur nú þegar staðið í ríflega klukkutíma. Ég sé að hér eru á mælendaskrá átta hv. þm. Ég treysti á góða samvinnu við hv. þm. að þessum umr. megi ljúka sem fyrst og þeir stytti mál sitt svo að sem allra flest sjónarmið megi þannig koma hér fram þar sem svo margir eru á mælendaskrá.