18.06.1985
Sameinað þing: 98. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6721 í B-deild Alþingistíðinda. (6017)
Umræður utan dagskrár
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Ég skal verða við þeirri beiðni að hafa ekki langt mál uppi, aðeins örfá orð út af því sem hæstv. forsrh. var að segja áðan um orminn og selinn.
Það er ekki að sjá að menn hafi miklar áhyggjur af þeim efnum í þessari hv. stofnun. Hér er búið að vera á dagskrá í marga mánuði frv. um selveiðar, 210. mál ef ég man rétt, sem er nú ekki merkilegra en það að spurningin er, ef ég man þetta rétt, hvort á að flytja selveiðarnar undan hæstv. landbrh. og undir hæstv. sjútvrh. eða ekki. Þetta mál hefur legið hér svo mánuðum skiptir og hefur ekki verið tekið til umræðu. Á sama tíma er upplýst að það kostar fiskvinnsluna í landinu um 500 millj. árlega að tína þennan orm. Svo eru menn uppi á hv. Alþingi sem halda hlífiskildi yfir þessu óargadýri, sem selurinn er í þessum efnum, og mega ekki vatni halda ef á það er minnst að fækka þessum kvikindum að einhverju leyti. Það er ekki að sjá að hér hafi menn miklar áhyggjur í þessum efnum. Svo ég skal ekki tala meira um það.
Það er alveg rétt á réttum stað, og Alþingi hlýtur að gefa sér tíma til þess, að ræða um stöðu fiskveiða og fiskvinnslu. Auðvitað hefur Alþingi gert það í vetur. Það hafa verið umræður um þessi mál með nokkuð stuttu millibili undir ýmsum dagskrármálum sem hér hafa verið rædd. Það er ekki nema eðlilegt að menn hafi af því áhyggjur hvernig nú er komið fyrir fiskveiðum og fiskvinnslu, þessari undirstöðuatvinnugrein. Þetta er ekki bara spurningin um hvernig þetta verkar á viðkomandi fyrirtæki eða fólk sem í fiskvinnslufyrirtækjum vinnur eða þau byggðarlög sem þarna eiga hlut að máli. Þetta er miklu stærra vandamál en það. Það er spurning um afkomu þjóðarinnar sem heildar hvernig úr þessu verður greitt. Og þetta er ekki að gerast fyrst núna þó að keyrt hafi um þverbak í tíð hæstv. ríkisstj. Auðvitað var farið að bera á þessu í tíð fyrrv. ríkisstj. Þá var verulega farið að halla undan fæti að því er varðar fiskvinnsluna. Ég held að menn hljóti að hafa af því áhyggjur að það liggur núna fyrir og hefur komið fram í umræðum áður hér í þinginu, síðast í síðustu viku, að það vantar um 1500 manns til að manna fiskvinnslufyrirtækin, frystihúsin. Það vantar 1500 starfskrafta, þá starfskrafta sem eru hvað bestir og skila hvað mestum auði ef þeir fengjust til að vinna í þessari atvinnugrein. Það er nákvæmlega sama uppi á teningnum að því er varðar flotann. Við erum að komast á það stig sem var milli 1950 og 1960 þegar fluttir voru inn útlendingar til að manna flotann vegna lélegra kjara sjómanna. Þetta er sú mynd sem við blasir og ég vil ekki trúa öðru en stjórnvöld hljóti að gera sér grein fyrir því að hér verður að breyta um stefnu í þessum málum.
Eins og hæstv. forsrh. kom inn á áðan, þó að ég ætli ekki að fara að rekja ýmislegt af því sem við Vestfjarðaþm. höfum fengið í hendur af upplýsingum. er ýmislegt hægt er að gera annað en að fella gengið sífellt. Gengisfelling er kannske orðið aðallausnarorðið núna, miðað við það sem margir hafa talið hana vera allt til þessa kannske. Það eru ýmsir aðrir möguleikar. Aðalástæðan fyrir þessu er sú, eins og hæstv. sjútvrh. vék að áðan, að spennan er í þjónustustarfseminni. Hér á þessu svæði er spennan öll í þjónustustartseminni og undirstöðuatvinnugreinar þjóðarinnar, þær sem allt báknið byggir á, eru látnar grotna niður.
Það var minnst á kjarasamninga áðan og það harmað að kröfur fiskvinnslufólks. sem fram voru settar, skyldu ekki ná fram að ganga nú. Auðvitað tek ég undir að slíkt skyldi ekki geta gerst. en ég hygg þó að engum hafi dottið í hug að vandamál þessa fólks hefðu orðið leyst á þeim tíma sem menn höfðu til umráða til þess annaðhvort að semja eða semja ekki. Ég hygg að það þurfi lengri tíma til að skoða og ganga frá málum fiskvinnslufólks, bæði að því er varðar atvinnuöryggi og kaupið sem slíkt, en menn höfðu þarna til umráða til að frá því yrði gengið. A. m. k. vona ég það og hef ekki ástæðu til annars en vona það að sá tími sem nú gefst verði nýttur til hins ýtrasta til þess einmitt og fyrst og fremst að leysa vandamál þessa fólks. Þar getur hæstv. ríkisstj. ekki hvað síst lagt sitt af mörkum. Það hefði t. d. verið gott innlegg hefðu stjórnarliðar á hv. Alþingi samþykki frv. um frekari leiðréttingar þessu fólki til handa hvað snertir atvinnuöryggi sem hér var fellt ekki alls fyrir löngu. Það gat verið innlegg til þess að stuðla að því að þetta fólk, sem nú er að ganga út úr frystihúsunum og þegar gengið út, staldraði kannske við ef það eygði einhverja möguleika á því að það ætti að gera eitthvað sem gæti orðið til þess að rétta hlut þess. Ég vona það a. m. k. og ég trúi ekki öðru en aðilar leggist á eitt um að nýta þann tíma vel sem nú gefst til að ganga frá árangursríkri aðgerð til að tryggja þennan starfskraft í framleiðslugreininni.
En aðalástæðan fyrir því, herra forseti, að ég kvaddi mér hljóðs var ekki endilega þessi þó að þessi mál séu mér auðvitað hugleikin. Aðalástæðan var sú að í tengslum við það sem hér er verið að tala um er annað mál, mál sem ég vakti athygli á við umr. fyrir rúmri viku og þá við hæstv. forsrh. undir dagskrárliðnum Byggðastofnun. Það er hægt að fara út um víðan völl í umræðum um Byggðastofnun og byggðamál. Svo samhangandi eru þau mál öllsömul að það er hægt að ræða slíkt undir næstum hvaða dagskrárlið sem er. Í þessari umr. vék ég í örfáum orðum að því ástandi sem hefur skapast t. d. á Vestfjörðum vegna þeirrar breyttu reglugerðar sem gefin var út af sjútvrn. að því er varðar smábátana sem eru undir tíu smálestir og eru með heildarkvóta. Við Vestfjarðaþm. höfum a. m. k. fengið margar undirskriftir frá velflestum sjávarútvegsplássum á Vestfjörðum þar sem þessu er harðlega mótmælt. Ég bað hæstv. forsrh. að ganga á fund hæstv. sjútvrh. og taka þetta mál upp við hann. Ég held að ég hafi orðað það svo, að við hæstv. sjútvrh. þýddi ekkert snakk, við hann yrði að tala á skiljanlegu máli. (Gripið fram í: Það er rétt.) Og nú er spurningin til hæstv. forsrh.: Hefur hann gert þetta? Hefur hann tekið þetta mál upp við hæstv. sjútvrh. og rætt það í botn? (Gripið fram í: Viltu ekki spyrja sjútvrh. að þessu?) Jú, jú, ekkert hef ég á móti því að spyrja hæstv. sjútvrh. ef hann vill endilega að ég spyrji hann. En ég bað hæstv. forsrh. að gera þetta og eðli málsins skv. er nokkuð augljóst að ég geng eftir því hvort hann hafi gert það. (Forsrh.: Hv. þm. Ég er búinn að því alveg í botn.) Alveg í botn, já. Það væri þá gott að fá upplýst hér á eftir hver árangurinn hefur orðið af því. (Forsrh.: Já, það gerir sjútvrh.) Það getur hann, já. Verkaskiptingin er sú? (Forsrh.: Já.) Já, þá kemur vonandi að því á eftir. Og þá er spurningin: Er hæstv. forsrh. ánægður með niðurstöðuna sem hæstv. sjútvrh. mun greina frá á eftir? Það væri gott að fá vitneskju um það frá hæstv. ráðh. af því að hann er nú þm. kjördæmisins líka.
En ég vil, með leyfi forseta, til að það verði skráð í þingtíðindi, leyfa mér að lesa örstutt bréf. Við höfum fengið þau mörg og efnislega eru þau nánast eins þannig að það nægir að lesa eitt. Þetta bréf er stílað á hæstv. sjútvrh. og þm. Vestfjarða er afhent afrit af því. Það hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Undirritaðir trillubátaeigendur á Ísafirði mótmæla harðlega þeim veiðitakmörkunum sem nú gilda á handfæraveiðum og felast í helgarveiðibanni frá kl. 24 á föstudegi til kl. 24 á sunnudegi.
Í fyrsta lagi er slíkt bann algerlega óþarft þar sem handfæraveiðar trillubáta yfir blíðasta og besta sumartíma geta ekki skipt sköpum í þeirri viðleitni stjórnvalda að hindra ofveiði á fiskistofnum landsmanna.
Í öðru lagi hindrar helgarveiðibann sjósókn viðkomandi báta í mun meira mæli en sem nemur þessum tveim dögum þar sem fæstir eða engir bátar, er róa frá Ísafirði, landa daglega vegna fjarlægðar á miðin. Vegna þessa nást ekki nema í mesta lagi fjórir veiðidagar í viku hverri. Við mótmælum því að hömlulaus veiði smábáta við Suðurland á vetrarvertíð skuli látin bitna á Vestfirðingum og öðrum þeim sem ekki hafa möguleika á að stunda veiðar á smábátum yfir vetrarmánuðina.
Það er álit okkar að slík stjórnun fiskveiða sem nú er viðhöfð sé hrein svívirða við Vestfirðinga og aðra sem á fiskveiðum lifa. Þegar ekki er hægt að fara fram á trilluhorni og draga sér fisk á handfæri án þess að þurfa að hlíta boðum og bönnum stjórnvalda er fokið í flest skjól.
Við skorum á hæstv. sjútvrh. og þm. okkar að ráða nú þegar bót á þessu hróplega óréttlæti með endurskoðun á núgildandi reglugerð.“
Nú spyr ég hæstv. forsrh.: Hefur hann beitt sér fyrir því við hæstv. sjútvrh. að þessari reglugerð verði breytt? Er hæstv. forsrh. þeirrar skoðunar að réttlætanlegt sé eins og málum er nú háttað að stjórna með þeim hætti sem gert er eða hvað annað hefur komið út úr viðræðum þeirra hæstv. forsrh. og sjútvrh.? Eftir þessu verður gengið í þessum umr. að fá við því skýr svör hvað þarna hefur gerst.
Ég vil svo að síðustu harma mjög þau orð sem hæstv. sjútvrh. sagði áðan, að hann teldi að halda ætti svipaðri stefnu í stjórnun fiskveiða næstu árin og hefur verið gert núna í tvö ár, þ. e. alræðisvald eins ráðh. yfir fiskveiðum og fiskvinnslu í landinu.
Mig hryllir við slíkri stefnu ef hún á að halda áfram — ekki vegna þess að ég haldi endilega að núverandi hæstv. sjútvrh. verði verri en einhver annar, heldur vegna þess að ég tel að þarna sé einum einstaklingi falið allt of mikið vald og Alþingi afsali sér þarna allt of miklu valdi til eins aðila í kerfinu.