18.06.1985
Sameinað þing: 98. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6724 í B-deild Alþingistíðinda. (6018)
Umræður utan dagskrár
Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Það er kannske rétt að ég svari fsp. hv. 3. þm. Vestf. þótt mér fyndist að hann hefði meiri áhuga fyrir þessu máli sem kjördæmismáli en að líta á málið í heild sinni sem virðist ekki vera góð afstaða.
Ég hef fengið þessi bréf, hv. þm., og ég hef fengið líka bréf úr mínu kjördæmi. Þau eru ekkert betur orðuð en það bréf sem hér var lesið og skrifað var á Ísafirði. Ef menn geta ekki komið málum sínum á framfæri með öðrum hætti en að tala um að viðhöfð sé hrein svívirða við Vestfirðinga og aðra er af fiskveiðum lifa o. s. frv. er rétt að lesa bréf einnig frá Austurlandi. Þar er lýst yfir hörðum mótmælum „gegn þeim ósanngjörnu og fáránlegu reglum sem opinberir aðilar hafa sett um fiskveiðar smábáta undir tíu rúmlestum. Landsaflakvóti allra slíkra báta á landinu er fráleitur og getur valdið óþolandi misrétti milli einstakra veiðisvæða og landshluta þar sem góð fiskveiði á einum stað getur stórlega dregið úr eðlilegri veiði á öðrum. Þá mótmælir fundurinn einstökum veiðistöðvunum trillubáta um hásumarið og nú síðast þeim barnalegu reglum að banna smábátum fiskveiðar um helgar. Fundurinn telur allar hömlur á fiskveiðum smábáta, sem að jafnaði geta ekki stundað veiðar nema fimm til sex mánuði á ári, gjörsamlega gagnslausar til verndar fiskistofnum, auk þess sem þær eru frekleg árás á atvinnufrelsi manna og í engu samræmi við það frjálsræði og frelsistal sem frá stjórnvöldum heyrist.“
Það má vel vera að svona bréfaskriftir þyki vera góðar bréfaskriftir hjá hv. þm. Karvel Pálmasyni. Mér finnst þetta vera léleg aðferð til að koma skoðunum sínum á framfæri og væri nær fyrir hv. þm. áður en hann grípur til allra sinna fullyrðinga að ég fái að upplýsa hann um hvernig þessi mál standa.
Lítum á árið 1984. Þá veiða trillubátar á Suður- og Suðvesturlandi 5780 tonn. 34.7% veiðinnar voru í janúar til maí, 50% í júní til september og 15.3% í október til desember. Ef við lítum á Vestfirði veiddu sams konar smábátar 3041 lest. 11.9% voru veidd í janúar til maí, 79% í júní til september og 9.1% í október til desember. Á Norðurlandi voru veidd 6093 tonn eða 22.2% í janúar til maí, 68% í júní til september og 9.8% í október til desember. Á Austurlandi voru veidd 3213 tonn eða 12.6% í janúar til maí, 67.5% í júní til september og 19.9% í október til desember.
Lítum á þá veiði sem hefur átt sér stað á Suðurlandi, í öllum landsfjórðungum, í janúar til maí bæði árið 1984 og árið 1985. Veidd voru 2009 tonn á Suður- og Suðvesturlandi á tímabilinu í fyrra frá janúar til maí 1984 eða 48.5% af heildarveiðinni á þessu tímabili. Á Vestfjörðum voru veiddar 363 lestir eða 8.7% af heildarveiðinni þarna í janúar til maí 1984. Á Norðurlandi voru veidd 1357 tonn eða 32.8%, en á Austfjörðum 406 tonn eða 9.8%. Lítum svo á árið 1985. Þá voru veiddar á Suður- og Suðvesturlandi af smábátum 4568 lestir eða 51.3% af heildarveiðinni, þ. e. heildarveiði þeirra hefur hækkað úr 48.5% í 51.3%. Á Vestfjörðum voru veidd 765 tonn, hækkaði úr 363 lestum í 765, og Vestfirðir halda sama hlutfalli eða 8.7% á þessu tímabili. Á Norðurlandi hafa hins vegar verið veidd 862 tonn eða 20.9% , en voru á sama tíma í fyrra veiddar 1357 lestir þannig að hlutfall Norðurlands fer úr 32.8% í 20.9%. Austfirðir fara hins vegar úr 406 lestum í 1700 eða úr 9.8% í 19.1 %. Það sem hér hefur gerst er fyrst og fremst það að afli á Norðurlandi hefur verið hlutfallslega lakari, en aftur á móti hefur afli á Austurlandi verið hvað bestur.
Nú má vissulega um það deila hvernig stjórna ber þessum veiðum og hvort einhverjar takmarkanir skuli vera á þessum bátum sem öðrum. Það hefur oft verið rætt hér að það er mjög erfitt að vera með takmarkanir á bátum rétt yfir tíu lestum en engar á bátum undir tíu lestum. Það stendur ekkert til, eins og kemur fram í þessum bréfum, að láta Vestfirðinga, Austfirðinga eða Norðlendinga gjalda fyrir það að einhverjir hafi veitt heldur meira en venjulega á Suðurlandi og Vesturlandi. Það hefur enginn sagt það og stendur ekki til. Það liggur hins vegar fyrir að það þarf að vera takmörkun á veiðunum á þessum tímabilum. Ég sé ekki betur en veiðar þessara aðila séu mun betri en mörg undanfarin ár. Þar af leiðandi hlýtur afkoma þessarar útgerðar að hafa lagfærst verulega.
Það er vissulega erfitt að þurfa að búa við að það séu takmarkanir á fiskveiðum. Ég veit að hv. 3. þm. Vestf. vill ekki takmarka neinar fiskveiðar. Hann vill hafa þetta allt saman laust í reipunum og menn veiði bara hver sem getur veitt. Það er skoðun út af fyrir sig. Það er sjálfsagt af hv. þm. að halda því fram, eins og hann gerði í vetur og kom berlega fram hjá honum, að engin ástæða sé til að takmarka fiskveiðar. Ég er hins vegar annarrar skoðunar og tel að okkur beri skylda til að vernda fiskistofnana en ekki veiða þá alla upp til að leggja á altari lífsgæðakapphlaups núverandi kynslóðar. Það ber að geyma eitthvað til komandi kynslóða. Það má þó hafa á því aðra skoðun eins og hv. 3. þm. Vestf. Ef hins vegar þurfa að eiga sér stað takmarkanir á annað borð verður að vera samræmi í þeim takmörkunum og það verður að ganga réttlátlega yfir alla en ekki einstaka útgerðaraðila og einstaka staði á landinu.