18.06.1985
Sameinað þing: 98. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6731 í B-deild Alþingistíðinda. (6024)

Umræður utan dagskrár

Guðmundur H. Garðarsson:

Herra forseti. Ég harma það að hér gefst ekki tími til að ræða ítarlega um jafnmikilvægt mál og hér er til umræðu en ég skal verða við tilmælum forseta og reyna að stytta mál mitt.

Hv. 3. þm. Suðurl. Árni Johnsen sagði í ræðu sinni áðan að verið væri að fjalla um mesta vandamál þjóðarinnar. Ég get tekið undir það. Þess vegna vil ég ítreka að það er slæmt að við skulum ekki geta rætt þetta betur. Og satt að segja verð ég að lýsa undrun minni yfir því hvernig sumir hv. þm. tala um þetta mál. Ég spyr suma þeirra, þeir taka það til sín sem eiga:

Hvað hafa hv. þm. verið að gera undanfarin 2–3 ár? Eru þeir allt í einu að átta sig á því að íslensk þjóð lifir fyrst og fremst á sjávarútvegi og fiskiðnaði?

Til þess að undirstrika þetta betur í einföldu máli má geta þess að þrátt fyrir allt okkar tal og viðleitni í þá átt að byggja upp aðra útflutningsatvinnuvegi er það staðreynd að ef álútflutningur er dreginn frá og málmblendi hefur lítil breyting orðið á útflutningsatvinnuvegum þjóðarinnar s. l. 15–20 ár. Enn þá er það sjávarútvegur, og þá einkum fiskiðnaður sem er megingrundvöllurinn í gjaldeyrisöflun þjóðarinnar. Þetta er óhrekjanleg staðreynd. Og ef menn hafa þessa einföldu staðreynd í huga. ættu þeir að eyða meiri tíma í að fjalla um það hvernig eigi að laga þau vandkvæði sem allir hv. þm. virðast nú vera sammála um að þurfi að lagfæra.

Áður en ég sný mér að meginefni þessa máls vil ég víkja nokkuð að ræðu hv. 7. þm. Reykv. Guðmundar J. Guðmundssonar. Mér finnst það ekki sæmandi eða frambærilegt á hv. Alþingi að formaður Verkamannasambands Íslands og hv. þm. skuli einfalda svo mál sitt með samanburði tímakaups í dönskum frystihúsum annars vegar og í frystihúsum hér á Íslandi hins vegar. Því miður hef ég ekki þá þekkingu á þessum samanburði sem hann virðist hafa, eftir för tveggja virðulegra verkalýðsleiðtoga til Danmerkur, en auðvitað munu menn kynna sér það mál. Hins vegar er það ekki sæmilegt að bera það fram fyrir þjóðina í jafnviðkvæmu máli að tímakaup í dönsku frystihúsi sé 260 kr. á tímann á sama tíma og það sé ekki nema 126 kr. á Íslandi án þess að skoða betur þjóðfélagsgerðina og það sem um ræðir, bæði í hinum stóru stærðum og einnig þrengra.

Alveg eins mætti spyrja: Hvert er kaup Íslendinga almennt samanborið við kaup sambærilegra stétta erlendis? Ég nefni sem dæmi kaup lækna, flugmanna, verkfræðinga, iðnverkafólks, verslunarfólks, ekki bara í Danmörku, heldur Vestur-Þýskalandi, Bretlandi, Svíþjóð, Bandaríkjunum og jafnvel Sovétríkjunum. Með þessu er ég ekki, hv. þm., að draga úr nauðsyn þess að það fólk sem starfar að íslenskum fiskiðnaði fái hærri laun og betri kjör. Það er þjóðarnauðsyn. við þurfum ekki að deila um það. En mér finnst ekki sæmilegt að koma með slíkan samanburð án þess að frekari rök séu færð fyrir því hvernig þetta er byggt upp.

Ég vil aðeins segja þetta: Undanfarið hafa verið fundir hjá öllum helstu samtökum fiskiðnaðarins. Hefur m. a. verið vísað til fundar sem sjávarafurðadeild SÍS hélt núna í vor og vitnað í ýmsa ráðamenn. Einnig hafa verið fundir hjá aðilum eins og saltfiskframleiðendum og frystihúsamönnum í Sölumiðstöðinni. Því miður hefur niðurstaðan verið sú sama hjá öllum þessum mönnum og þar er enginn dreginn í dilka með tilliti til stjórnmála eða þess hvort viðkomandi starfar í samvinnufélagi, bæjarútgerð eða einkafyrirtæki. Því miður hafa allir þessir aðilar kveðið upp þann dóm á sínum aðalfundum að staða sjávarútvegs og fiskiðnaðar á Íslandi sé satt að segja vonlaus. Í fyrsta lagi er um algeran taprekstur að ræða. Í öðru lagi er gengið á eigið fjármagn fyrirtækjanna. Í þriðja lagi er það undirstrikað af þessum aðilum, sem eru jafnframt flestallir í forustusveit vinnuveitenda á Íslandi hvort sem það er í samvinnurekstri eða einkarekstri, að vinnulaun séu í þvílíku lágmarki að ekki sé lengur sæmandi að reka fyrirtækin eða bjóða fólki upp á þau kjör sem þar viðgangast.

Um stjórnunarkostnaðinn er varla rætt lengur. Einsdæmi mun vera á Íslandi hversu stjórnunarkostnaður er lítill, í sjávarútvegi og fiskiðnaði. Ég leyfði mér á sínum tíma að segja í ræðu á hv. Alþingi í desember 1983, þegar verið var að ákveða fiskveiðistefnuna, svokallaða fiskveiðikvótastefnu að með kvótanum væri verið að fara inn á leiðir sem mundu breyta eignarhaldi í sjávarútvegi og fiskiðnaði á Íslandi til frambúðar. Ástæðan fyrir því að ég sagði þetta er sú að þá þegar lá fyrir að íslenskur sjávarútvegur var rekinn með miklu tapi. En það lá ekki fyrir þegar fiskveiðistefnan og kvótarnir voru teknir upp í ársbyrjun 1984 hver ætti að vera rekstrargrundvöllur útgerðarinnar. Við erum að súpa seyðið af því nú að það skyldi ekki vera gert þegar kvótafyrirkomulagið var tekið upp vegna knýjandi og breyttrar nauðsynjar í sambandi við fiskveiðarnar. Það var ekki rætt um það þá á hv. Alþingi né hjá hæstv. ríkisstj. að leggja grundvöll fyrir sjávarútveg og fiskiðnað við breyttar forsendur. Og afleiðingarnar eru þær, sem við stöndum núna frammi fyrir að eigið fé er að verða uppurið í sjávarútvegi og fiskverkunarfólk býr við lökustu lífskjör sem þekkst hafa á Íslandi í áratugi. Ég leyfði mér einnig að fullyrða þá, og ég verð því miður að endurtaka það nú, að með þessari stefnu, eins og að henni var staðið, væri verið að færa eignarhald í sjávarútvegi úr höndum einkarekstursmanna yfir í félagsrekstur. Þetta stendur í þingtíðindum.

Það er augljóst hverjum manni að einkaaðilar geta ekki og hafa ekki bolmagn til að reka fyrirtæki í sjávarútvegi ár eftir ár og áratug eftir áratug með sífelldu tapi. Þeir eru gerðir upp þegar eignirnar eru uppurnar. En á meðan á því stendur kemur það niður á starfsfólkinu. Það þolir ekki þennan umþóttunartíma, þegar verið er að færa eignarhaldið frá einkarekstri í þessum grundvallaratvinnuvegi yfir í svokallaðan félagsrekstur. Og þá er spurningin: Getur félagsrekstur nokkuð frekar en einkarekstur haldið áfram taprekstri?

Ég sagði þá og segi nú að fyrirtækjasamsteypa, ég ætla ekki að nefna hana, það vita allir hv. þm. við hvað ég á, hefur ýmsar leiðir til að þrauka þar til einkafyrirtækjunum hefur verið komið fyrir kattarnef. Þetta er að gerast núna því miður. Út á það gengur þessi þróun illu heilli og kemur ekki hvað síst niður á starfsfólkinu. En í þessu felst að sjálfsögðu engin lausn til frambúðar. Vandamálið er eftir sem áður fyrir hendi. Ef Ísland á að halda áfram að vera til sem sjálfstætt ríki, ef fólk á að geta lifað hér sæmilegu lífi, þá verður auðvitað að endurnýja framleiðslutækin í sjávarútvegi. Sá reikningur kemur síðar en verður þungur.

Hæstv. forseti hefur óskað eftir að menn flyttu hér ekki langar ræður. En vegna þess að hér er um svo veigamikið mál að ræða vil ég þó, með leyfi forseta, vitna hér í ályktun aðalfundar Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna 24. maí 1985. Á vegum hennar eru um 65% af allri framleiðslu í frystiiðnaði auk þess sem þar koma við sögu margir í öðrum greinum. Í ályktuninni segir svo:

„Aðalfundur SH, haldinn í Reykjavík 24. maí 1985, varar við því alvarlega ástandi sem skapast hefur í þjóðfélaginu að undanförnu vegna misgengis í afkomu atvinnuveganna. Þetta ástand hefur leitt til fjármagnstilfærslu frá framleiðslugreinum til þjónustugreina. Á fjögurra ára tímabili, 1981–1984, versnaði staða sjávarútvegs stöðugt, þar sem erlent lánsfé hefur streymt inn í hagkerfið og veikt stöðu hans í samkeppni við aðrar atvinnugreinar sem notið hafa góðs af þenslunni í þjóðfélaginu en auka enn á vanda útflutningsatvinnuveganna. Sjávarútveginum er nú haldið gangandi frá degi til dags með skuldbreytingum sem forða greiðsluþroti tímabundið, en eru þó í sjálfu sér aðeins frestur á lausn vandans nema því aðeins að rekstrarskilyrði verði bætt til muna. Á árinu 1984 jókst enn sá vandi sem atvinnugreinin á við að stríða og ljóst er að ástandið fer enn versnandi.

Á s. l. fjórum árum hefur eiginfjárhlutfall sjávarútvegsfyrirtækja rýrnað stöðugt. Í ársbyrjun 1981 námu skuldir þeirra í opinberum lánastofnunum og bönkum 41% af eignum en í árslok 1984 var þetta hlutfall komið í 55%. Slæm rekstrarskilyrði valda mestu um þessa þróun. Benda má á að sjávarútvegurinn skuldar einungis 16% af erlendum lánum Íslendinga en aflar 70% af útflutningstekjum. Sjávarútvegurinn er því síður en svo orsök efnahagsvandans. Í ársbyrjun 1981 námu erlendar skuldir 31.6% af þjóðarframleiðslu en í byrjun þessa árs 63%, og hafa því tvöfaldast og viðskiptahallinn við útlönd er orðinn viðvarandi. Þetta hefur m. a. leitt til þess að íslenskur sjávarútvegur er kominn í sjálfheldu og verður ekki séð hvernig íslenski efnahagslíf fær staðist til lengdar verði þessari þróun ekki snúið við nú þegar. Hér er ekki um einkamál sjávarútvegsins að ræða heldur hagsmuni allrar þjóðarinnar.“

Ég segi við ykkur, hv. þm.: Að baki þessari ályktun eru þeir menn sem mest mæðir á í íslenskum sjávarútvegi. Þetta eru ekki menn sem lifa á því að naga blýanta í þægindum skrifstofuveldisins hér á Reykjavíkursvæðinu. Þetta eru menn sem verða að standa í skilum í sínum fyrirtækum. Þetta eru menn sem standa frammi fyrir fólki sem býr við léleg lífskjör. sem er fiskverkafólk.

Herra forseti. Ég skal nú ljúka máli mínu en vil segja þetta að lokum: Léleg atkoma sjávarútvegs þýðir í fyrsta lagi upptaka eigna, í öðru lagi léleg afkoma starfsfólks á sjó og landi, í þriðja lagi lífskjaraskerðing fyrir íslensku þjóðina í bráð og lengd. Niðurstaðan verður hrun í atvinnugreininni og þar með efnahagslegt hrun á Íslandi. Það er skylda stjórnvalda á hverjum tíma að setja leikreglur er tryggja rekstursgrundvöll grundvallaratvinnugreina þjóðarinnar sem sjávarútvegurinn er. Patentlausnir eða kennisetningar fengnar að láni erlendis duga ekki við lausn þessara mála. Raunveruleikinn segir okkur í fyrsta lagi að ef Íslendingum á að vegna vel verður sjávarútvegurinn að fá sinn eðlilega skerf af þjóðartekjunum. Í öðru lagi: Með því að íslenskur sjávarútvegur fær sinn eðlilega skerf munum við lyfta kjörum fiskverkafólks en fyrr ekki. Og í þriðja og síðasta lagi: Með því að tryggja rekstrargrundvöll sjávarútvegs tryggjum við einnig að nauðsynleg endurnýjun verði í framleiðslutækjum.

Það á ekki að þurfa að minna hv. þm. á að það sem við erum raunverulega að tala um er hvort við ætlum í framtíðinni að standa sem frjáls og sjálfstæð þjóð á grundvelli okkar eigin atvinnuvega og þar er íslenskur sjávarútvegur hornsteinn.