18.06.1985
Neðri deild: 101. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6777 í B-deild Alþingistíðinda. (6047)
423. mál, viðskiptabankar
Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Ég ætla nú ekki að segja mörg orð um þetta frv. Ég hefði viljað hafa ýmislegt á annan veg en það er en ætla ekki að ræða það nema lítillega.
Ég vil þó segja það í sambandi við leyfisveitingar eða möguleika fyrir bankana að stofna útibú, að fara skuli eftir eign bankanna og fastafjármunum, að það er athyglisvert að staðreyndin skuli vera sú að það sé bara einn banki sem hefur möguleika á því, ef frv. verður að lögum óbreytt. að stofna nýtt útibú. Þó að í öðru orðinu sé verið að tala um aukið frjálsræði þá sjáum við að verið er að herða í raun og veru mjög möguleikana á því að stofna útibú. Þannig getur háttað til á ýmsum stöðum á landinu að atvinnulífið þurfi á því að halda að slíkt útibú sé stofnað. Samkvæmt þessum lögum er ekki möguleiki nema fyrir einn banka að gera það. Ég hefði fellt mig miklu betur við að það væri hæstv. bankamálarh. sem gæfi út slíkt leyfi svo að reynt væri að hafa meiri stjórn á því en verið hefur nú um sinn.
Um þá ræðu sem hv. 4. landsk. þm. flutti hér áðan verð ég að segja að mér virtist hún bera það með sér að öll þessi mál væru í mikilli þoku fyrir honum. Hann talaði um að Alþingi ætti ekki að hafa neina menn í bankaráðum en samt sem áður átti Alþingi að vera eftirlitsaðili með bönkunum. Hvernig á það eftirlit þá að vera ef alþm. hafa ekki aðstöðu til þess að fylgjast þar með málum og krefja t. d. bankastjóra sagna, upplýsinga um hin ýmsu atriði? Mín reynsla er sú að bankaráðin séu í sjálfu sér fyrst og fremst eftirlitsaðili í bönkunum. Ég held að ýmislegt sem bæði fjölmiðlar hafa birt og ýmsir þm. hafa látið orð falla um hér á Alþingi varðandi bankana sé byggt á misskilningi vegna ókunnugleika á þessum málum.
En ég ætla ekki að ræða það frekar. Mitt erindi að þessu sinni upp í ræðustól var fyrst og fremst það að lýsa fylgi mínu við till. hæstv. viðskrh. því að ég sé ekki að það sé í verkahring bankaeftirlitsins að koma með tillögur um hvaða stefnu bankarnir taka í sambandi við sín útlán og aðra starfsemi. Það er eftirlitsaðili og á ekki að vera annað. Ég vil bara benda hv. þm. á það að þessi till. er, a. m. k. að mínum dómi, til verulegra bóta og ég styð hana heils hugar.