18.06.1985
Neðri deild: 101. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6781 í B-deild Alþingistíðinda. (6050)
423. mál, viðskiptabankar
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Fulltrúi nýja flokksins flutti hér ræðu áðan. Og það er svo stundum með þetta nýja að það er eins og sagan sé því ókunn. Þekkingarleysið á fortíðinni hefur það í för með sér að menn virðast hálf áttavilltir á því hvert þeir séu að stefna, hvert þeir eigi að stefna, enda er mér óskiljanlegt hvernig sá maður sem ekki veit hvaðan hann kemur telur sig vita hvert hann sé að fara. Það kom þess vegna ekki annað til greina en að kynna hér í örfáum orðum sögu bankamála á Íslandi.
Það er rétt að byrja á því að Landsbanki Íslands er stofnaður með lögum 18. september 1885. Helstu ákvæði þeirra laga voru þessi: Landssjóður leggur fram 10 000 kr. til þess að koma bankanum á fót. Enn fremur leggur hann bankanum til starfsfé, hálfa milljón króna í landssjóðsseðlum, sem greiðast smám saman, eftir því sem bankinn þarf þeirra með. Ég les hér upp, með leyfi forseta, úr grein Klemensar Tryggvasonar í bókinni Saga Alþingis, fimmta bindi:
„Þegar liðin eru fimm ár frá stofnun bankans skal hann greiða landssjóði vexti, 1% árlega af upphæðinni og leggja 2% af henni í varasjóð.
Æðsta stjórn bankans er í höndum landshöfðingja en daglega stjórn hans annast einn framkvæmdastjóri, skipaður af landshöfðingja, og tveir gæslustjórar, sem Alþingi kýs, sín deildin hvorn, til fjögurra ára.“
Sem sagt, framkvæmdavaldið skipar bankastjórann en Alþingi kýs gæslustjórana sem eru sambærilegir bankaráði að mörgu leyti.
En það gerist svo aftur á móti 1902 að í Nd. Alþingis Íslendinga er samþykkt að leggja þennan banka niður — leggja þennan banka niður vegna þess að það voru menn með svipaðar hugmyndir og hv. 4. landsk. þm., gamlar hugmyndir frá 1902, sem lögðu til að bankinn yrði lagður niður. En í Ed. var brtt. frá landshöfðingjanum samþykkt og bankinn fékk að halda áfram að starfa.
Hver var nú ástæðan fyrir því að menn vildu leggja bankann niður? Jú, það var draumurinn um hlutafélagsbankann, sem hv. 4. landsk. þm. var að tala um, hlutafélagsbankann sem fullnægði öllum þessum skilyrðum, að stjórnmálamennirnir hefðu þar engin áhrif og engin völd. Það væru hinir sterku fjármálamenn sem mörkuðu stefnuna og sæju um að þjóðin tapaði ekki.
Íslandsbanki er stofnaður 7. júní 1902 með einkarétti til seðlaútgáfu í 30 ár. Við skulum örlítið víkja að því hvaða upphæðir er verið að tala um þegar hann er stofnaður, hvort þá er verið að tala um 10 þús. kr. eða eitthvað meira. Ég vil, með leyfi forseta, lesa hér úr Stjórnartíðindum fyrir Ísland á bls. 382 þar sem greint er frá lögum um heimild til að stofna hlutafélagsbanka á Íslandi. Ég les 2. gr. þessara laga:
„Hlutafé bankans skal eigi nema minna en 2 millj. kr. og eigi vera meira en 3 millj. króna. Stofnendur bankans skulu skyldir að útvega með ákvæðisverði þá hlutaupphæð er Íslendingar hafa ekki skrifað sig fyrir samkvæmt 1. gr.“
Þarna var fjármagnið, þarna var hlutafélagsformið, þarna var það kerfi sem hv. 4. landsk. þm. er að tala um að sé hið eina rétta í dag. Hvað er þetta gamall flokkur, þessi nýi flokkur sem hv. 4. landsk. þm. hefur álpast inn í? Hann er í það minnsta frá 1902, það fer ekki á milli mála. En er hægt að koma sér undan því að ræða það hvernig lokaútkoman varð hjá þessum banka sem átti að tryggja það að nægilegt fjármagn væri fyrir atvinnulífið í landinu, átti að tryggja það að þjóðin tapaði ekki á bankarekstri? Það verður enn að halda áfram með söguna, herra forseti.
Ég vil lesa hér upp úr lagasafninu frá 1930. Það er örlitið farið að lækka risið á hlutafjárbankanum með stóru upphæðirnar og fjármálaséníin sem stjórnuðu. Það er III. kafli um Íslandsbanka, 11. gr.:
„Ríkissjóður leggur Íslandsbanka 3 millj. kr. sem forgangshlutafé og greiðist fé þetta af núverandi skuld Íslandsbanka við ríkissjóð.“
Hver kannast við töluna 3 millj. áður í upplestrinum? Var það ekki hið upprunalega hlutafé sem átti að hámarki að vera 3 millj.? Ég held áfram lestrinum, með leyfi forseta:
„Hlutafjárframlag ríkissjóðs, það er ræðir um í 11. gr., er bundið eftirfarandi skilyrðum: a) Að lagt verði fram a. m. k. 1.5 millj. kr. forgangshlutafé með hlutafjársöfnun innanlands af öðrum en aðallánardrottnum bankans.“
Sem sagt, það er óheimilt að breyta skuldunum í inneignunum í hlutafé. Ég les áfram, með leyfi forseta: „Samþykki fjmrh. þarf til þess að þetta forgangs hlutafé megi fara fram úr 2 millj. kr. b) Að hagkvæmir samningar fáist við aðallánardrottna Íslandsbanka erlendis um greiðslu núverandi skulda bankans til þeirra, þannig að eigi minna en 4.5 millj. af þeim skuldum verði annaðhvort forgangshlutafé í bankanum eða gangi næst forgangshlutafé um áhættu. Af þessari upphæð fari þó forgangshlutafé ekki fram úr 11/4 millj. kr.
13. gr. Núverandi hlutafé Íslandsbanka skal afskrifað sem tapað og hlutabréfin fyrir því felld úr gildi.“
Veit hv. 4. landsk. þm. ekki hve margir Íslendingar töpuðu á þessu ævintýri. hve innistæður margra Íslendinga voru rústaðar og gerðar að engu? Veit hann ekki að ríkissjóður mátti ganga í ábyrgðir til þess að greiða upp erlendu skuldirnar?
Síðan 1902 hafa ekki margir þorað að standa hér upp og segja: „Við eigum að leggja niður Landsbanka Íslands.“ Þó virðist hv. 4. landsk. þm. reiðubúinn til að leggja það til að Landsbankinn verði lagður niður því að auðvitað er sá banki lagður niður sem breytt er úr ríkisbanka í hlutafélagsbanka. Það er annar banki.
Ég hygg að það væri fróðlegt fyrir hv. 4. landsk. að lesa afmælisritið sem Útvegsbankinn gaf út þar sem Ólafur Björnsson greinir frá örlögum Íslandsbanka. Að vísu er þar reynt að bera í bætifláka fyrir bankann og talað um að íslensk stjórnvöld hafi ekki verið honum nægilega vinveitt. En bestar upplýsingar um stöðuna voru nú samt á hvaða verði hlutabréfin voru skráð í kóngsins Kaupmannahöfn. Mig undrar það þegar menn eru slegnir slíkri blindu að þeir koma hér upp og halda því fram að til að tryggja hagsmun Íslendinga, almennings í landinu, eigi þjóðin að selja stærsta og verðmesta banka landsins, afhenda hann fjármagnseigendum. Er þetta jafnaðarmannaflokkur eða skyldi það hafa atvikast þannig að nafnið passar ekki við stefnuna sem flokkurinn hefur tekið upp, stefnuna frá 1902? Ég kannast ekki við að þeir sem þar skrifuðu undir nál. hafi verið jafnaðarmenn.
Auðvitað geta menn sagt að á kvöldfundi sem þessum sé sjálfsagt að stjórnarsinnar þegi og svari ekki þeirri vitleysu sem kemur fram í ræðum manna af því að það sé búið að gera samkomulag á samkomulag ofan. En er það ekki líka ábyrgðarhlutur að gera enga grein fyrir sögulegum staðreyndum þessara mála (HBl: Þær verða að liggja ljóst fyrir.) þegar það kemur í ljós að fulltrúi nýja flokksins er fulltrúi skoðana frá 1902 í Nd.? Það er enginn af gömlu flokkunum svo gamall. Þarna er í það minnsta 15 ára skekkja. Ég hygg að þeir hjá nýja flokknum þurfi að fara að kemba gráu hárin og fara að athuga hvort þeir hafi álpast til að taka upp hugmyndir sem eru miklu eldri en gömlu flokkarnir eru að burðast með.
Ég hygg að Bandalag jafnaðarmanna þurfi annað tveggja að gera, að yfirgefa nafnið, því það er ekki í samræmi við kenningar jafnaðarmanna á Vesturlöndum eins og þær almennt blasa við, eða breyta um stefnu — eða að taka þá ákvörðun, sem forráðamenn Íslandsbanka tóku, að gefast upp og hætta vegna þess að stefnan var komin með þá í blindgötu og viðurkenna pólitískt gjaldþrot þeirra nýju kenninga sem hér var verið að boða en reynast vera frá 1902.