18.06.1985
Neðri deild: 101. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6785 í B-deild Alþingistíðinda. (6053)
423. mál, viðskiptabankar
Frsm. 2. minni hl. (Guðmundur Einarsson):
Herra forseti. Þetta er nú kannske hvorki staður né stund fyrir langar sögulegar útlistanir og til að fara í handritasafn Framsfl. Striplingatal hv. þm. styður líka þá skoðun mína að það sé kannske mál að linni og þinginu ætti reyndar að ljúka um næstu helgi eins og menn hafa verið að tala um. Mér heyrist málflutningurinn allur þannig gerður að það sé full ástæða til.
Vegna þess að hv. þm. gerði að umræðuefni jafnaðarmennsku bæði hérlendis og erlendis ætlaði ég að segja honum að hann geti sett það í sögusafn Framsfl. að í löndum í kringum okkur, á Vesturlöndum þar sem jafnaðarmenn hafa haft mikil áhrif, t. d. í Bandaríkjunum og í Bretlandi, ég segi í Bandaríkjunum vegna þess að þar hefur oft og tíðum svo áratugum skiptir ríkt miklu meiri jafnaðarmennska en menn hafa nokkru sinni séð hér, í Bretlandi og ýmsum öðrum löndum Evrópu, svo sem í Skandinavíu, er það alls ekkert inntak jafnaðarstefnu að fá að hola mönnum í bankaráð og að halda í það dauðahaldi að stjórnmálaflokkar hafi bein yfirráð og bein afskipti af peninga- og lánastofnunum landsins. Það sem menn leggja þar ríkasta áherslu á er að þingin setji þær almennar reglur fyrir fólk og fénað í þessum löndum sem tryggi í fyrsta lagi eftirlit með því að peningastofnunum sé eðlilega stjórnað, að þær séu opnar fyrir eftirliti embættismanna, þingmanna og almennings og að þær sinni öllum jafnt. Þetta er atriði sem hefur sérstaklega verið í umræðu núna á seinni árum með tilkomu nýrrar tækni. Það er enginn jafnaðarmannaflokkur svo vitlaus að gera það að inntaki stefnu sinnar á þessum tímum breytinganna að það sé alfa og omega að þeir ráði yfir peninga- og lánastofnunum. Þvert á móti. Eins og ég sagði áðan eru menn sammála um að það er hreingerning í pólitík að losa hinar almennu peninga- og lánastofnanir undan flokkspólitískum óþrifum. Stjórnmálamenn þurfa og eiga og mega hafa afskipti af peningamálum, eins og hv. þm. vék að, inni á þingi. Þar eiga þeir að taka stefnumarkandi ákvarðanir um það hvernig fé er varið í helstu málaflokka. Það er pólitík að taka afstöðu til þess t. d. hvernig menn vilja verja peningum í skólamál, í ýmsa opinbera þjónustu og ýmislegt sem getur komið öllum landsmönnum að gagni, setja almennar reglur. En að þeir geri tilkall til þess að sitja einhvers staðar í bankaráði og ákveða hvort Pétur eða Páll á að fá víxil eða lítið lán, það er alls ekki inntak jafnaðarstefnunnar.
Ég held að við verðum að láta staðar numið hvað þessa umræðu varðar. Það er augljóst að söguherra Framsfl. þarf að fletta upp á nýtt í jafnaðarstefnu sinni. Hins vegar sýnir þetta okkur óumdeilanlega að það er hið mesta óráð að reyna að kýla þetta mál hér í gegn næstum því á næturþeli. Þau mál sem verið er að fjalla um um þessar mundir, landbúnaðarmál, bankamál og ýmislegt fleira, eru stórmál í íslenskri pólitík. Og ég er viss um það að hér úti um allan þingsal sitja menn sem hefðu viljað segja miklu meira, gera grein fyrir miklu fleiri skoðunum en hafa komið hér fram. Það er á ábyrgð hæstv. ríkisstj. að hér eru mál keyrð í gegn án þess að menn fái að viðra skoðanir sínar, án þess að menn fái að láta koma fram öll þau sjónarmið sem óumflýjanlega hljóta að vera uppi í stórum málum eins og peninga- og lánapólitík og landbúnaðarpólitík. Ég minni á það að landbúnaðarmálið, þó vont sé. felur í sér mikla breytingu. Það var kýlt hér í gegnum Nd. á einum stuttum eftirmiðdagsfundi. Ég er viss um að þar hefðu fleiri viljað láta heyra í sér en gerðu. Það er kannske ágætt að það detta beinagrindur fram úr skápum núna þegar við tölum um viðskiptabankana. Hér datt ein og vafalaust eru fleiri sem hefðu átt fullt erindi til þess að detta.