18.06.1985
Neðri deild: 102. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6795 í B-deild Alþingistíðinda. (6074)

423. mál, viðskiptabankar

Ellert B. Schram:

Herra forseti. Alþm. er ekki bannað skv. lögum að taka að sér bankastjórastöður. Hins vegar hafa myndast um það óskráð lög að slíkt fari ekki saman. Að því er varðar setu í bankaráðum finnst mér að það sama eigi að gilda, það sé óeðlilegt að setja ákvæði í lög þar sem alþm. er meinuð seta í bankaráðum. Hins vegar skírskota ég til pólitísks siðgæðis í þeim efnum og held að við eigum að halda okkur við það, þannig að um þetta myndist einnig óskráð lög en þess þurfi ekki með að setja slíkt í lagabálka. Þess vegna segi ég nei.