08.11.1984
Sameinað þing: 17. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 888 í B-deild Alþingistíðinda. (612)

55. mál, vantraust á ríkisstjórnina

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Umræðan fer þannig fram að hver þingflokkur fær til umráða 30 mínútur, sem skiptast í tvær umferðir, 15–20 mínútur í þeirri fyrri og 10–15 mínútur í þeirri seinni. Röð flokkanna verður þessi: Alþb., Framsfl., Alþfl., BJ, Sjálfstfl., SK. Ræðumenn verða fyrir Alþb. í fyrri umferð: Svavar Gestsson, 3. þm. Reykv., og Helgi Seljan, 2. þm. Austurl., og í þeirri síðari Guðmundur J. Guðmundsson, 7. þm. Reykv. — Fyrir Framsfl. talar Steingrímur Hermannsson forsrh. í fyrri umferð og Alexander Stefánsson félmrh. í þeirri seinni. Ræðumenn Alþfl. verða Kjartan Jóhannsson, 3. þm. Reykn., í fyrri umferð og Jón Baldvin Hannibalsson, 5. þm. Reykv., í síðari umferð. Af hálfu Bandalags jafnaðarmanna talar Guðmundur Einarsson, 4. landsk. þm., í fyrri umferð og Stefán Benediktsson, 8. þm. Reykv., í þeirri seinni. Fyrir Sjálfstfl. talar Albert Guðmundsson fjmrh. í fyrri umferð og Sverrir Hermannsson iðnrh. í þeirri síðari. Af hálfu Samtaka um kvennalista talar Kristín Halldórsdóttir, 7. landsk. þm., og Málmfríður Sigurðardóttir, 3. landsk. þm., í fyrri umferð en í þeirri síðari Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, 11. þm. Reykv.

Hefst nú umr. og tekur fyrstur til máls 1. flm., Svavar Gestsson, hv. 3. þm. Reykv., og talar af hálfu Alþb.