19.06.1985
Neðri deild: 103. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6818 í B-deild Alþingistíðinda. (6123)

129. mál, umferðarlög

Frsm. minni hl. (Stefán Guðmundsson):

Herra forseti. Ég tala hér fyrir nál. um frv. til l. um breyt. á lögum nr. 55/1981, um breytingu á umferðarlögum nr. 40/1968. Frv. er komið í þessa deild frá Ed. þar sem það var samþykkt samhljóða. Ég bið menn að taka eftir því. Þess vegna endurtek ég að frv. er komið héðan frá Ed. þar sem það var samþykkt samhljóða.

Ég tala hérna fyrir áliti minni hl. allshn. sem leggur til að frv. verði samþykkt.

Nefndin hefur athugað þetta frv. og kallað á sinn fund Guðjón Magnússon landlækni. Magnús Einarsson aðstoðaryfirlögregluþjón og Arngrím Ísberg fulltrúa lögreglustjóra. Þessir aðilar voru samþykkir meginefni frv.

Í grg. með frv. segir svo m. a.:

„Fullreynt má nú telja að ekki verði unnt með áróðri og fræðslustarfsemi einni að auka beltanotkun meira en orðið er ... Er þessi reynsla fullkomlega í samræmi við það sem gerst hefur í öðrum löndum. ... og því er brýnt að nú þegar verði vanræksla á notkun öryggisbelta látin varða viðurlögum.“

Umferðarráð er þess hvetjandi að frv. verði samþykkt. Á vegum þess var tekin saman skýrsla um banaslys í umferðinni á árunum 1972 til ársloka 1983. Þar kemur m. a. fram að á þessum tólf árum hafa 165 ökumenn og farþegar í bifreiðum látist. Í skýrslunni er það mat lagt á að notkun öryggisbelta hefði að líkindum getað forðað um 104 þessara manna frá dauða. Þar af eru 15 frá 1. okt. 1981 fram til ársloka 1983, þ. e. eftir að lög um skyldunotkun öryggisbelta tóku gildi.

Þeir aðilar, er hvað mest vinna að þessum málum. telja að með samþykkt frv. megi koma í veg fyrir fjölmörg slys á ári hverju.

Minni hl. n. er samþykkur þessu máli og leggur því til að frv. verði samþykkt, en minni hl. n. skipa Gunnar G. Schram, Guðrún Helgadóttir og Stefán Guðmundsson.

Ég ætla ekki að orðlengja þetta hér vegna þess að samkomulag hefur náðst um að hraða afgreiðslu ákveðinna mála, en ég hefði getað sagt mörg orð um þetta merkilega mál sem ekki hefur hér náð afgreiðslu fyrr. Ég hvet menn til að hugsa vel til þeirra sem verið hefur leitað umsagna hjá um þetta mál áður en þeir afgreiða það í dag.