19.06.1985
Neðri deild: 103. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6821 í B-deild Alþingistíðinda. (6126)

129. mál, umferðarlög

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Ég undirrita nál. meiri hl. með fyrirvara og vil gera grein fyrir þeim fyrirvara í örfáum orðum.

„Hver sá er situr í framsæti bifreiðar, sem búin er öryggisbelti, skal nota það við akstur á vegum“, segir í umferðarlögum, 64. gr. Þetta ákvæði kom inn í umferðarlöggjöfina með lögum nr. 55 frá 1981. Jafnframt segir í 6. gr. þeirra laga að eigi skuli refsa fyrir brot gegn 64. gr. fyrr en lokið er heildarendurskoðun umferðarlaga. Þetta ákvæði kom inn í frv. við meðferð þess á Alþingi 1981.

Umferðarlaganefnd sú sem skipuð var af dómsmrh. í september 1980 til að vinna að heildarendurskoðun umferðarlaga lauk störfum á liðnum vetri, í janúarmánuði. Stjfrv. um þetta efni var lagt fram í febrúar s. l. Það er þingmál nr. 314 sem nú er til meðferðar í allshn. Ed. Er mér kunnugt um að það frv. hefur verið sent fjölmörgum aðilum til umsagnar, bæði frá umferðarlaganefnd og einnig þingnefnd. Í X. kafla þess frv., er fjallar um notkun öryggisbúnaðar, er 73. gr. sem hefur að geyma mjög hliðstæð ákvæði um öryggisbelti og 64. gr. gildandi laga. En í hinu nýja frv. er að vísu gert ráð fyrir að refsað verði fyrir brot á þessum ákvæðum eftir gildistöku laganna.

Mér er fyllilega ljóst að mörg og sterk rök má færa fyrir því að refsa fyrir brot af þessu tagi. Og sennilega er erfitt eða illmögulegt að halda uppi og framfylgja slíkum ákvæðum án refsiviðurlaga, því miður. Má í því sambandi vitna til reynslu annarra þjóða og nefna mörg dæmi. Og hér er vissulega um mikið alvörumál að ræða.

Í frv. því sem hér er til umr., þ. e. þingmáli nr. 129, er gert ráð fyrir að frv. öðlist þegar gildi sem lög ef samþykkt verður. Nú er spurningin hvort skynsamlegra er að slík ákvæði taki gildi á þessu vori eða sumri eða hvort affarasælla yrði að líta á hið nýja umferðarlagafrv. í heild. En vafalaust verður það frv. tekið til rækilegrar meðferðar í byrjun næsta þings á komandi hausti.

Í ýmsum grannlöndum okkar hefur refsilöggjöf af þessu tagi tekið gildi í áföngum. Nægir þar að nefna Noreg. Þar í landi giltu lagaákvæði án refsinga um nokkurra ára skeið, að vísu án þess að viðunandi árangur næðist að dómi Norðmanna. En þeir fengu sinn reynslutíma, sinn reynsluskóla. Íslendingar hafa einnig fengið sinn reynslutíma. En er hann nægur eða nýttur svo sem vera ætti?

Allir eru sammála um að umferðarmenningu hér á landi megi bæta og þurfi að bæta til mikilla muna. Varla verður því marki náð nema með samstilltu átaki fjölmargra aðila. Löggjöfin og framkvæmd hennar verður helst að geta skírskotað til réttarvitundar almennings. Hún þarf að finna hljómgrunn hjá þjóðinni allri, a. m. k. hjá meginþorra landsmanna.

Nú skulum við segja að frv. þetta á þskj. 133 verði samþykkt og það er að sjálfsögðu vilji meiri hl. hv. alþm. sem ræður því. Þá hlýtur óðar en líður, „nú þegar“ segir í frv., að koma að því að lögin verði framkvæmd því að útilokað og alveg fráleitt er að setja slíkt refsiákvæði í umferðarlöggjöfina án þess að framfylgja því mjög ákveðið. Það þýðir m. a. að lögreglumenn verða að horfa inn í sérhvern bíl sem fram hjá ekur, hratt eða hægt, til þess að líta eftir því hvort umræddum ákvæðum sé hlýtt. Lögreglumenn mega ekki líta undan ef þeim sýnist eitthvað athugavert því að eitt verður yfir alla að ganga og allir verða að vera jafnir fyrir lögunum.

Þetta er að sjálfsögðu stóraukið álag á lögregluna, á löggæslu og dómgæslu og auk þess erfitt verk, viðkvæmt og vandasamt. Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur t. d. á hverju hausti við gerð fjárlaga óskað eftir fjölgun starfsmanna. Þeim beiðnum hefur lítt verið sinnt og er þá vægilega til orða tekið. Umferðarráð og aðrir sem vinna að bættri umferðarmenningu hér á landi hafa úr litlu fé að spila. Þó er vitað og almennt viðurkennt að markviss áróður geti haft mikil og heillavænleg áhrif. Nægir að nefna þann jákvæða áróður sem viðhafður var þegar skipt var frá vinstri umferð til hægri hér á landi. Og enn fremur má nefna hið svokallaða umferðarár, hið norræna umferðaröryggisár 1983, sem vissulega hafði góð áhrif um öll Norðurlönd.

En allur áróður, sem bera á einhvern árangur, hlýtur að kosta mikið fé. Og varla verður annað sagt en því fé sem varið er til að bæta umferðarmenningu á Íslandi sé vel varið. Það sem ég tel fyrst og fremst á skorta í íslenskri umferð er að vegfarendur sýni næga háttvísi og varúð. Ég hef ævinlega haft miklar mætur á þeirri hugsun sem býr að baki 37. gr. umferðarlaganna þar sem þeirri meginreglu er lýst að öllum vegfarendum sé skylt að sýna varúð í umferð, gæta þess að trufla ekki né tefja að óþörfu aðra vegfarendur og valda eigi þeim eða öðrum, sem búa eða staddir eru við umferðarleið, hættu eða óþægindum. Þessi grein er tegld úr sama efniviði og heilræði það sem oft hefur verið haldið á loft: Brosið í umferðinni.

Enginn er einn í heiminum. Margir eru samferða á fjölförnum vegum. Hvergi er nágrennið viðkvæmara og raunar hættulegra. Sérhver vegfarandi hlýtur að taka tillit til samferðarmanna sinna ef vel á að fara. Annars er voðinn vís.

Umferðarslysin eru ægileg mörg hver og draga langan slóða á eftir sér, langa drögu óhamingju, þjáninga og útgjalda. Það ber því að gera allt sem í mannlegu valdi stendur til þess að draga úr slysum í umferðinni og bæta hana á allan hátt. Um það hygg ég að allir séu sammála. Og margir eru reiðubúnir að leggja mikið á sig til þess að svo geti orðið.

Öryggisbeltin og rétt notkun þeirra eru aðeins einn þáttur sem orðið gæti til góðs í bættri umferðarmenningu og öryggismálum hér á landi. Nú hygg ég og hallast að því að við ættum að flýta okkur frekar hægt í þessu máli, við ættum að brjóta umferðarmálin til mergjar í vor og sumar. Tökum frv. til nýrra umferðarlaga föstum tökum strax í byrjun haustþings. Herðum áróður fyrir góðri umferðarmenningu. Öflum fjár í því skyni. Leiðbeinum vegfarendum í umferðinni. Samþykkjum hið allra fyrsta á næsta þingi nýja umferðarlöggjöf sem tekur á öllum helstu meginvandamálum sem við er að glíma á vegum landsins. Nýtum okkur þær vonir og bjartsýni, dáð og dug sem setning nýrrar heildarlöggjafar um umferðarmál ætti að geta blásið okkur í brjóst til þess að stórbæta íslenska umferðarmenningu og stórauka öryggi og þar með hamingju allra vegfarenda hér á landi.