19.06.1985
Efri deild: 103. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6836 í B-deild Alþingistíðinda. (6137)

533. mál, breytt nýting útvarpshúss

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Ég er annar af tveimur flm. þessarar till. og ég tel mig þekkja nokkuð til þeirra mála sem hér um ræðir af tveimur ástæðum. Ég starfaði við umrædda stofnun frá því í byrjun árs 1967 þar til seint á árinu 1978, á tólfta ár, og frá árinu 1978 hef ég átt sæti í útvarpsráði þannig að ég hef haft aðstöðu til að fylgjast með og mynda mér skoðanir á því sem hér um ræðir.

Ég hef alla tíð verið þeirrar skoðunar að sjónvarpið ætti ekki að flytja í þessa nýbyggingu og vegna orða síðasta ræðumanns, sem var að ræða forsögu þessa máls, vil ég minna á að þessi bygging í núverandi mynd var eingöngu ætluð hljóðvarpinu. Hins vegar mætti það gagnrýni hjá stjórnmálamönnum m. a., og á það var bent, sjálfsagt með nokkrum rétti, að þetta hús væri ákaflega vel við vöxt, að ekki sé nú dýpra í árinni tekið, fyrir starfsemi hljóðvarpsins eins og sjónvarpið gæti sem best verið þar líka. Til þess að freista þess að hafa frið um málið hygg ég að forvígismenn Ríkisútvarpsins hafi fallist á að troða sjónvarpinu þarna inn líka. Þetta hús var upphaflega hannað sem útvarpshús, ekki sjónvarpshús, þannig að ég held að við sitjum nú uppi með byggingu sem er í rauninni hvorki útvarps- né sjónvarpshús, hús sem er eins konar kynblendingur eða bastarður, því miður.

Hv. 5. þm. Vesturl. vék að því í ræðu sinni áðan að það væri viss hagkvæmni í því fólgin að hafa þessar stofnanir undir sama þaki. Það er rétt. Það felst nokkur hagkvæmni að því. Ég held hins vegar að hún skipti engum sköpum í þessu máli, hún sé tiltölulega lítil miðað við margar aðrar stofnanir.

Í öðru lagi vék hann að því að ýmis tækjabúnaður sjónvarpsins kynni að vera úr sér genginn og gamall og þurfa endurnýjunar við. Það er líka örugglega rétt um einhvern hluta tækjakostsins vegna þess að með þeirri notkun sem á þessum tækjum er og hefur verið í sjónvarpinu endast þessi tæki ekki mjög lengi. Mér er það minnisstætt frá mínum starfsárum þarna að myndavélalampar, sem eru mjög dýrir, voru notaðir u. þ. b. þrisvar sinnum lengur en þótti hæfa í sjónvarpsstöðvum erlendis í sparnaðarskyni og kom það auðvitað niður á gæðum framleiðslunnar þannig að myndgæðin voru lakari. Sjónvarpið hefur jafnan búið við heldur slakan tækjakost m. a. vegna þess að því er gert að greiða fulla tolla og aðflutningsgjöld af þeim tækjum sem það kaupir meðan einkafyrirtæki í sömu grein þurfa ekki að greiða slíka tolla. Þetta er auðvitað óviðunandi ranglæti gagnvart þessari miklu menningarstofnun.

Ég hef alla tíð haldið því fram og er alveg sannfærður um að það er rétt að kostnaðurinn við að flytja sjónvarpið, og þá er ég ekki að tala um að flytja tækin sjálf, er að mjög miklum hluta fólginn í þeim lögnum, þeim kílómetrum og aftur kílómetrum af leiðslum, sem eru undir gólfum í sjónvarpshúsinu þar sem víðast hvar eru tvöföld gólf, og miklum leiðslum sem eiga að rúmast og munu væntanlega rúmast vel í hinum rúmgóða leiðslukjallara nýja hússins. Það er sú fjárfesting sem liggur í lögnunum í sjónvarpshúsinu við Laugaveg 176 sem ónýtist þegar og ef flutt verður. Það er hægt að skipta um öll tæki. Það þarf ekki að skipta um lagnirnar. En tækin eru á mismunandi aldri þannig að það þarf ekki að skipta um nema lítinn hluta af þeim vegna flutninganna einna, einhvern hluta sjálfsagt. Sum tækin eru orðin úr sér gengin. Tæki sjónvarpsins hafa nýst ákaflega vel og sætt óvægilega mikilli notkun oft og tíðum.

Sjónvarpið býr við býsna góðan húsakost. Aðalstúdíóið hefur þó þann galla að þar er of lágt undir loft. Sá galli hefur verið til staðar frá upphafi en menn hafa bjargast samt þau tæpu 20 ár sem sjónvarpið er búið að starfa. Rýmið í aðalupptökusalnum sjálfum er ekki svo slæmt. Það þyrfti að byggja annað stúdíó og til þess er rými, t. d. vestan og suðvestan við núverandi byggingu, uppi í Klapparholtinu. Þá eru viðbyggingarmöguleikar við sjálft húsið vegna þess að það er í rauninni ekki nema hálfbyggt. Öðrum megin er það fimm hæðir, en austurendinn er tvær hæðir. Þar á í rauninni eftir að byggja þrjár hæðir. Ef menn skoða þetta hús frá Laugaveginum sjá þeir mætavel að það er hálfbyggt.

Það er nú merkilega skemmtileg saga í sambandi við þann tveggja hæða part þar sem steypujárnin standa upp úr og steypuplatan er hrá. Þar er jafnan allstór tjörn meginhluta ársins. Það er líklegast eina flata þakið á Íslandi sem lekur ekki nokkurn skapaðan hlut af því að það var aldrei hugsað sem þak. Það átti að byggja þarna ofan á. Það mun að vísu einhvern tíma hafa lekið. Það voru gerðar einhverjar ráðstafanir og ég hygg að það sé allt í lagi núna, en þarna standa steypujárnin upp úr og þarna er tjörn meginhluta ársins og lekur ekki samt. Á sama tíma sér maður það á einbýlishúsum eins og í Fossvogshverfi, þar sem menn voru skikkaðir til að hafa flöt þök, að þar er verið að byggja hús núna utan um hvert húsið á fætur öðru og ofan á þannig að risin eru þar að ryðja sér til rúms. Þetta veit ég að hv. þm. þekkja sem eru staðkunnugir á þeim slóðum. en þetta var nú útúrdúr, virðulegi forseti.

Ég held að sjónvarpið sé ákaflega vel sett þar sem það er og það hefur stækkunarmöguleika þar og vaxtarmöguleika. Ég er alveg sannfærður um að kostnaðurinn við að flytja sjónvarpið mun éta upp verulegan hluta af því sem menn ætla að fáist fyrir húseignina á Laugavegi 176 sem á að selja og andvirðið að ganga upp í byggingarkostnað nýja hússins. Ég hef oftlega beðið um að fá um það tölur hvert menn áætla söluverð eignarinnar og hver kostnaðurinn verði við flutninginn. Mér hefur ekki tekist að fá þær, en það getur vel verið að þær komi einhvern tíma.

Menn skulu líka leiða hugann að því að verðmæti húseignarinnar að Laugavegi 176 er ekki síst fólgið í þeim leiðslum og lögnum sem þar eru til staðar. Sú fjárfesting nýtist engum nema þeim sem ætlar að stofnsetja nýja sjónvarpsstöð. Auðvitað væri upplagt fyrir aðila sem ætla sér að stofnsetja sjónvarpsstöð að kaupa þetta hús með öllum lögnum og einhverju af tækjum. Ég get í svipinn ekki hugsað mér nema einn aðila sem ætlar sér út í sjónvarpsrekstur og þyrfti varla að opna veskið sitt til að kaupa þetta hús. Það gæti vel verið að það sé komið inn í myndina núna vegna þess að þessi fjárfesting nýtist engum öðrum. Þeir sem ætla að nýta þetta hús fyrir venjulegar skrifstofur verða að byrja á því að rífa allt þetta út og henda því. Það er ónýtt, afskrifað. En ef menn ætla sér að reka þarna sjónvarp er afar auðvelt að byrja á morgun. Menn skulu hafa í huga hversu flókinn og margslunginn tækjabúnaður þarna er til staðar. Mér er kunnugt um það — eða var a. m. k. og ég veit ekki til þess að það hafi breyst en það á kannske ekki að vera nein ákvörðunarforsenda í málinu — að þeir sem starfa hjá sjónvarpinu hefðu helst kosið að starfa áfram á sama stað. Ég er ekki viss um að það sé sjálfgefið að þeir fái allir betri starfsaðstöðu í hinu nýja húsi, en það er auðvitað viss hagræðing að því að hafa starfsemi útvarps og sjónvarps á sama stað.

En ég hvet hv. þm. til að skoða nýja útvarpshúsið. Ég sé þá fyrir mér, hv. þm. Eyjólf Konráð Jónsson og fyrrv. ráðh. Lúðvík Jósepsson, þegar þeir gengu um bygginguna einhvern tíma á sunnudagsmorgni og stikuðu fram og til baka og mældu. Ég get séð það ljóslifandi fyrir mér. Ég er ekki hissa á viðbrögðum þeirra vegna þess að satt best að segja er þetta hús feiknaleg bygging sem leynir á sér. Húsinu er þannig fyrir komið í landslaginu að það leynir mjög á sér.

Ég hef átt þess kost að skoða útvarps- og sjónvarpsstöðvar í einum 7–8 löndum, sem er kannske ekki mjög víða, en ég hef held ég hvergi séð jafnmikið í lagt. Ég hef séð ný sjónvarpshús, bæði í Finnlandi og Svíþjóð, sem voru afar smekklega gerð en ég er sannfærður um að hafa ekki verið mjög dýrar byggingar. Útvarp getur verið í húsi sem er nánast hvernig sem er í laginu, en sjónvarp þarf mikið gólfflatarrými, bæði fyrir leikmyndagerð og fyrir stúdíó.

Það má vel vera að þessi till. sé nokkuð seint fram komin og það sé erfitt við að snúa, en þessi skoðun mín á þessu máli er ekki ný. Ég hef marglýst þessari skoðun í útvarpsráði, en hún hefur ekki átt þar hljómgrunn nema mjög takmarkað. Og ég hef verið alveg ófeiminn að láta þar í ljós mína gagnrýni á þessari ráðstöfun vegna þess að ég held að við sitjum kannske uppi með hús sem er hvorki gott útvarpshús né gott sjónvarpshús. Það er sorglegt þegar mikið er í lagt eins og hér hefur verið gert. Nú vinna þarna menn nánast nótt og dag. Ég sá síðast á þjóðhátíðardaginn að þá unnu flokkar manna að því að lagfæra lóðina í kringum þetta hús. Það er sem sagt ekkert til sparað.

Auðvitað á það fólk sem vinnur við útvarp og sjónvarp að hafa góða starfsaðstöðu. Um það er ekki deilt. En það verður líka að horfa til kostnaðar. Ég er alveg sannfærður um að það hefði mátt leysa þessi mál á miklu mun ódýrari hátt með fullum sóma. Ég er líka þeirrar skoðunar að það hafi verið röng ákvörðun á sínum tíma að flytja sjónvarpið í þessa byggingu. Og ég held að sú ákvörðun sé mjög dýr. Þegar við erum að tala um að verja auknu fé til innlendrar dagskrárgerðar ættum við að reyna að vera hagsýn í þessum efnum vegna þess að það eru ekki umbúðirnar sem skipta öllu máli, heldur innihaldið fyrst og fremst.

Það mætti auðvitað margt um þetta segja. Ég er raunar þeirrar skoðunar að þessar stóru ríkisstofnanir eins og eru á Norðurlöndunum hafi vissa annmarka. Ég hef séð það, í Svíþjóð einkanlega, í Danmörku líka í nokkrum mæli, að þessar stofnanir hafa tilhneigingu til að hlaða mjög utan á sig. Það hefur ekki gerst hér. Gæði framleiðslunnar virðast því ekki vaxa í réttu hlutfalli við umfang starfseminnar. Þessi stóru ríkisfyrirtæki eru því kannske að sumu leyti á Norðurlöndunum — ég er ekki að segja hér — orðin tímaskekkja. sú þekking og kunnátta sem þarf til að gera dagskrár, bæði fyrir útvarp og sjónvarp, var áður innilokuð í þessum stofnunum. Hún er það ekki lengur. Hún er komin út um allt þjóðfélagið. Það er urmull af fyrirtækjum sem vinna við þetta, ýmist við að gera auglýsingar eða — í vaxandi mæli — að gera þætti og dagskrár. Ég held að vaxtarbroddur innlendrar dagskrárgerðar sé í mjög ríkum mæli hjá þessum litlu fyrirtækjum listamanna og tæknimanna úti í þjóðfélaginu. Hann er a. m. k. ekki síður þar en hjá ríkisstofnunum. Ég er alveg sannfærður um að í auknum mæli verður farið út á þær brautir að fela þessum aðilum dagskrárgerð og ég er alveg sannfærður um að það mun skila árangri. Ég er stoltur af því að hafa átt, held ég, tillöguna í útvarpsráði um fyrsta sjónvarpsþáttinn eða sjónvarpsmyndina sem var ákveðið að bjóða út. Það var mynd um hjólreiðar. Ég held að í auknum mæli verði farið inn á þessar brautir. Krafan um mörg stúdíó eins og var uppi um tíma, sérstakt fréttastúdíó og fleira fyrir sjónvarpið, er því kannske ekki eins gild og áður var.

Þegar ég starfaði þarna í kringum 1970 var það mikið baráttumál þeirra sem unnu að fréttum að fá sérstakt fréttastúdíó. Þróunin varð hins vegar sú hvarvetna erlendis að fréttastúdíó urðu úr sögunni vegna þess að kostnaðurinn við að búa til stúdíó með þremur myndavélum, sem er við skulum segja 80 fermetrar að flatarmáli, er litlu minni en að búa til stúdíó sem er 150 eða 200 fermetrar að flatarmáli. Það er alveg sami grundvallarbúnaðurinn sem þarf. Það er aðeins fermetrafjöldinn í stúdíóinu sem munar og hann er tiltölulega lítilvægur í þessu sambandi.

Ég ætla ekki, virðulegi forseti, að hafa um þetta fleiri orð, en ég held að það sé rétt að þessi athugun fari fram. Það getur vel verið að hún leiði í ljós að þarna sé of seint í rassinn gripið og ekkert sé hægt að gera í þessu máli, en það kemur þá í ljós. Væntanlega verður hægt líka í þessari athugun að afla upplýsinga um það sem ég hef hér verið að tala um, þ. e. hve mikið fæst fyrir húsið að Laugavegi 176 og hve mikið kostar að flytja. Þetta verða menn að meta, sérstaklega þegar verið er að tala um að efla innlenda dagskrárgerð og þáttagerð sem allir eru sammála um. Við höfum ekki efni á því að sólunda fé með þeim hætti sem ég óttast sumpart að þessi flutningur hafi í för með sér.