08.11.1984
Sameinað þing: 17. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 892 í B-deild Alþingistíðinda. (614)
55. mál, vantraust á ríkisstjórnina
Helgi Seljan:
Herra forseti. Góðir hlustendur. Nú eru 17 mánuðir síðan tjaldið var dregið frá þjóðlífssviðinu og 10 þjóðfrægir söngvarar gengu prúðbúnir inn á sviðið og hófu stórfenglegan söng í hetjuóperunni miklu, sem ýmist gengur undir nafninu efnahagsundrið undursamlega eða gátan mikla gengur upp. Mikilfenglegur var kórinn í upphafi, sem hófst svo, lækkun verðbólgu lausn allra meina. Og blíðróma bakraddir ómuðu: Erfið er tíð og allir skulu fórna og enn lægra:
Ógnvaldurinn eini,
öllu veldur meini,
launin ljót og há.
Og þegar lófatakið kvað við hófst kynngimagnað kórlag:
Reiðum upp hjör
og rýrum kjör.
Verðbólguþrúguð þjóðin tók enn undir því að hún vildi allt til vinna að sjá bjarta tíð með blóm í haga. Óperan mikla héli sinn gang sem vera bar, en oft var textinn torkennilegur. Vinum sínum skal maður í raun reynast ef ríkir eru. Og í beinu framhaldi af því: Ég leitaði litla mannsins sem loksins í Stigahlíð fannst. Og 11. aðalsöngvarinn bættist í hópinn og skipaði sér við hlið hetjutenórsins með björtum barítón og saman sungu þeir:
Í sáttmálaleik er saman gott að una,
í svart/hvítu er best að greina tilveruna.
En að því búnu var honum vísað út af sviðinu. Og kórinn söng frelsissönginn við lag Friedmans:
Frelsið er vídeóvætt,
vextir og álagning frjáls,
en kaupið skal fast í fjötrum.
Og þegar alvaran utan frá barst inn á sviðið var ítrekað sungið:
Frelsi gróðans fyrst og síðast
helsi á þá sem múðra og mögla.
Alveg sér í lagi var aðdáunarvert hversu framsóknarkvartettinn tileinkaði sér tóngæði og innileik í textaflutningi. Gáleysishjal á viðsjárverðri tíð eða hvað? En fólkið í landinu hefur séð í gegnum sápuóperuna, fundið afleiðingar hennar á eigin heimilisreikningum og nú springa sápukúlurnar á sviðinu hver af annarri. Alvaran er vissulega ærin og ógnvekjandi fyrir verðmætasköpunina í landinu, fyrir byggðina í landinu, fyrir vinnandi fólk. Við höfum drýgt dáð, undrið mikla er okkar, er hrokafullt andsvarið sem fólkið hefur fengið. Með því að heimta hærri laun eruð þið að eyðileggja allt. Við erum að flytja og færa til og fólkið á að fylgja fjármagninu. Verið þið ekki að strita og streða í fáránlegu fiskislori, verið þið ekki að hokra með kindur og kýr, verið ekki að ástunda þessa iðjusemi í framleiðslunni. Þangað liggja ekki farvegir fjármagnsins, hljómar söngur frjálshyggjunnar.
Beint og óbeint eru vinnuframlag og verðmætasköpun fólksins lítilsvirt með þessum hætti, með þessari ótvíræðu einstefnu á einkagróðanum, þar sem það ýkjukennda verðmætamat ræður ríkjum að vídeóleigan skapi meiri þjóðararð en fiskiskipið, pylsusjoppan sé þjóðhagslega arðbærari en bújörðin. Svo brenglar fjármagnshyggjan og brjálar allt. Byggðaröskunin er eðlileg afleiðing, gott ef ekki æskileg. Við höfum afrekað, er sagt með stolti og stærilæti. Fólkið í landinu, bændur, sjómenn, launafólk í fiskinum og iðnaðinum, í þjónustustörfum samneyslunnar, þetta fólk hefur unnið afrek, það hefur fórnað, enda voru því gefin glæst loforð ef þolinmæði og biðlund yrðu sýnd. En þegar þolinmæðin var loks á þrotum af því að árangurinn var hvergi finnanlegur í lífskjörum, aðstöðu og aðbúnaði var svarið aðeins eitt. Engir peningar til, komið þið með peningana. Hrokinn og hortugheitin leyndu sér hvergi og viðbrögðin verkfallsdagana segja allt sem þarf. Og hverjir skyldu votta traust söngvurum sápuóperunnar miklu? Er það máske öryrkinn sem fékk ríkulegan skerf skerðingar á sínar tæpu tryggingabætur, öryrkinn, sem oft þarf að leita læknis og fékk þar á sig 170% hækkun á s.l. vori, og þarf á lyfjum að halda sem hækkuðu um 140% á s.l. vori? Er það máske einstæða foreldrið, sem aðeins hefur fyrir l5rýnustu nauðþurftum, sem hækkað hafa ótæpilega, einstæða foreldrið, sem þurfti að fá bankalán fyrir fyrirframleigunni, sem sífellt hækkar von úr viti og þarf að borga okurvexti af lánum sínum? Er það-máske bónuskonan í frystihúsinu á landsbyggðinni þar sem óttinn og öryggisleysið liggur í lofti og þó að unnið sé daglangt eftir afkastahvetjandi kerfinu góða er afraksturinn lítið annað en langvarandi vinnusjúkdómar? Ekki skín henni neinn ljómi af lystihöllum verslunar og viðskipta í Reykjavík sem þó voru og eru reistar fyrir hennar fé. Er það máske húsbyggjandinn eða húskaupandinn sem fékk loforðin fögru um gull og græna skóga, löngu háu lánin hans Alexanders sem allir þekkja, eða hvað? Er það máske landsbyggðarfólkið sem sér fjármagnið hverfa úr byggðunum frá grunngreinunum beint í braskið hér syðra? Eða er það máske kennarastéttin eftir hina ótvíræðu traustsyfirlýsingu frá fjmrh.? Sú stétt hefur a.m.k. að sögn ekki mikið annað við að vera en votta stjórnarherrum virðingu og traust.
Það er sannarlega auglýst eftir trausti fólksins í landinu. En frá hinum breiða fjölda horft, þá má finna þá sem þakka og votta vegsemd og traust. Þeir sem fengu sinn hlut ríkulega sem aðrir fórnuðu, þeir fjármagnseigendur sem fengu hinar einu sönnu skattalækkanir á síðasta þingi, okrararnir sem græða á tá og fingri og eru í samkeppni við ríkisstj. um það hvorir megi sín betur í að féfletta þá sem í vanda eiga, stórlaxarnir í verslun og viðskiptum sem fengu álagninguna sína alfrjálsa og fá nú að taka lán í útlöndum á lágum vöxtum, þeir hljóta að hneigja sig og þakka. Stigahlíðarfólkið í víðustu merkingu, sem fær nú allar utanlandsreisurnar sínar án gjaldtöku til samfélagsins, fólkið sem sleppur við allar kvaðir um þátt í hinum sameiginlega rekstri þjóðarbúsins. Og ekki má gleyma garminum honum Katli. Þeir sem með frelsishjal á vörum tala fyrir frjálsu útvarpi, stundum kennt við þjóðina alla, þeir munu vissulega lýsa einlægri aðdáun og fyllsta trausti á þá sem telja lögbrot þeirra æðra lögmál.
Vonandi hefur nú launafólkið á Íslandi kennt söngvurum sápuóperunnar sína lexíu, en af þeim er einskis góðs að vænta. Hér þarf einfaldlega að snúa snarlega af braut. Aftur þarf að hefja í öndvegi þá atvinnustefnu sem byggir á auðlindum sjávar og lands í innlendri eign. Fjármunina þarf að færa til á ný frá afætum ýmiss konar, sem nú blómstra, til þeirra grunngreina, sem allt byggist á, og fólksins sem þar vinnur. Það eru vissulega til fjármunir í þessu þjóðfélagi en þeir hafa aldrei verið í eins ríkum mæli á röngum stöðum og í dag. Þeir fjármunir blasa hvarvetna við á höfuðborgarsvæðinu og gnæfa við himin. Frjálshyggja ær fer um báknið ógurlega, samneysluna okkar, sem hefur fært okkur aukið öryggi, velferð og jöfnuð. En frjálshyggjan á annað bákn, sem hún vill enn frekar þenja út á kostnað hins, á kostnað almennings. Það bákn er þannig uppbyggt að hinn sterki og meiri háttar skal einn fá frelsi. Hinir eiga að taka við molunum sem falla af frelsisborði viðskiptanna. Hið nýja, eflda bákn skal byggja á siðlausri og blindri gróðafíkninni einni saman. Byggingariðjan við það bákn er í fullum gangi og byggingarnefndin leggur sína fullu blessun þar yfir, enda sjálf ríkisstjórn Íslands.
Félagshyggjufólk þarf vissulega að vera vel á verði. Það þarf að snúast af alefli og fullri alvöru gegn þessum eyðandi öflum sem nú ætla að brjóta niður þjóðskipulag jafnaðar og velferðar. Launafólk hefur nú sýnt samtakamátt sinn, það mikla afl sem það á. Ekki síður hér þarf það að taka í taumana. Frelsi fjöldans felst nefnilega ekki í því að líða auglýsingaútvarp gróðaaðila. Það felst heldur ekki í því að fá bjórkrár og búlur á hverju götuhorni. Það felst enn síður í frelsi fárra til að hirða arðinn af annarra striti. Það fæst ekki undir merkjum grimmdar samkeppni þar sem auðsvonin er öllu ofar sett. Og talandi um frelsi fjöldans, frelsi þjóðar felst ekki í því að selja land sitt til afnota fyrir erlenda byssubófa til að kynda undir vígbúnaðarbrjálæðið og vá dauðans. Frelsi þjóðar felst heldur ekki í því að veita erlendum auðhringum aðgang að auðlindum okkar, gefa þeim aðgang að ódýrri orku og enn ódýrara vinnuafli eins og draumar ýmissa eru um.
Góðir Íslendingar. Margur verður af aurum api. Apar frjálshyggjunnar hafa í raun ráðið atlögunni að launafólki að undanförnu. Apar frjálshyggjunnar sveifla sér nú í gróðatrjánum og á þá skín sól stjórnarherranna í stórri velþóknun. Íslensk þjóð hlýtur að höggva þessi tré og fá þeim, sem þar sveifla sér nú, önnur og þjóðnýtari verkefni ef unnt er. Velferðarþjóðfélagið þarf að þróast enn frekar í jafnréttis- og jafnaðarátt. Sem ein stór fjölskylda ber okkur að þjappa okkur saman, virða rétt hvers annars, hjálpa hverju öðru. Ríkisstj., sem reiðir sig á apana í frumskógi frjálshyggjunnar, á ekki erindi við íslenska þjóð. — Góðar stundir.