19.06.1985
Efri deild: 104. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6843 í B-deild Alþingistíðinda. (6149)
275. mál, almannavarnir
Frsm. (Haraldur Ólafsson):
Virðulegi forseti. Það mál sem hér liggur fyrir er frv. til l. um almannavarnir. Allshn. hefur fjallað um málið og er sammála um að mæla með samþykkt þess með breytingu sem tillaga er flutt um á sérstöku þskj. Brtt. hljóðar svo með leyfi forseta:
Við 1. gr. 2. málsl. 2. efnismgr. orðist svo:
Í ráðinu eiga sæti forstjóri Landhelgisgæslunnar, landlæknir, lögreglustjórinn í Reykjavík, póst- og símamálastjóri og vegamálastjóri.“
Nefndin leggur því til að niður falli ákvæði um að fulltrúar tiltekinna félagasamtaka, sem annast björgunarstörf, skipi til skiptis fulltrúa í ráðið. Þetta er til komið vegna eindreginna mótmæla og óska nokkurra þeirra aðila sem þar eiga hlut að máli.
Ég vil taka fram að allir nm. voru sammála nál. en nöfn tveggja þeirra hafa fallið niður, þeirra hv. þm. Helga Seljans og Valdimars Indriðasonar.