19.06.1985
Efri deild: 104. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6844 í B-deild Alþingistíðinda. (6152)
455. mál, nýsköpun í atvinnulífi
Frsm. meiri hl. (Eyjólfur Konráð Jónsson):
Hæstv. forseti. Hv. fjh.- og viðskn. hefur fjallað um þetta mál og leggur meiri hl. til að frv. verði samþykkt eins og það kom frá hv. Nd. Þetta frv. er að mínu mati æði merkilegt og hygg ég að samkomulag hefði e. t. v. getað orðið um það í meginefnum hér í þinginu ef þetta væri ekki einn liður í lagasmíð sem stjórnarandstæðingar hafa ekki talið vera í einu og öllu rétta. Mér leyfist kannske að rifja það upp að það mun hafa verið á þinginu 1971 að fullt samkomulag náðist um það milli allra flokka og allra þm., ég held ég muni það rétt, að heimila stofnun félags sem heitir Fjárfestingarfélag Íslands og hafði ríkið þar litla hlutdeild í. Hins vegar voru samþykki skattfríðindi fyrir það félag um nokkurt árabil, að það hefði hliðstæð réttindi eins og ýmsir bankar og sjóðir í ríkisins eigu eða einkabankar. Menn voru sem sagt í þinginu sammála um að gera tilraun til þess að stofna slíkt fjárfestingar- og framkvæmdafélag, félag sem hefði það hlutverk að vera frumkvöðull, að taka þátt í stofnun, vera eignaraðili, helst minnihlutaaðili, í félögum sem menn væru að berjast við að koma á fót. Það félag lagði líka út í nokkuð sem heitir leigukaup og var fyrsti aðilinn á Íslandi sem það gerði. Tilgangur þess félags var nánast sá sami eins og greindur er hér í athugasemdum við þetta frv., þar sem segir með leyfi forseta:
„Tilgangur félagsins er að örva nýsköpun í íslensku atvinnulífi og efla arðsama atvinnustarfsemi.
Í samræmi við þann tilgang skal félaginu m. a. heimilt:
1. Að láta gera og fjármagna eða taka þátt í gerð og fjármögnun forkannana og hagkvæmnisathugana.
2. Að eiga frumkvæði að og/eða taka þátt í stofnun, endurskipulagningu og sameiningu fyrirtækja.
3. Að kaupa hlutabréf og/eða skuldabréf atvinnufyrirtækja.
4. Að útvega eða veita áhættulán eða ábyrgðir vegna stofnunar, rekstrar og þróunar fyrirtækja.
5. Að taka þátt í og/eða styrkja hagnýtar rannsóknir í nýjungum í atvinnulífi og tilraunir með þær og aðstoða við öflun og sölu á réttindum til hagnýtingar þeirra.
6. Að hafa frumkvæði að samvinnu innlendra og erlendra fyrirtækja í markaðsmálum, vöruþróun og á tæknisviði.
7. Að taka lán til eigin þarfa og til endurlána.“
Slík fjárfestingarfélög eru auðvitað ekkert nýtt af nálinni. Þau hafa verið til í hinum frjálsa heimi um mjög langt skeið og gegnt mikilvægu hlutverki. Venjulega hefur það auðvitað verið einkaframtak sem að þessum félögum hefur staðið en ekki ríkisvald, en þó eru mörg dæmi um það að ríkið hafi tekið þátt í slíkum félögum til þess að örva atvinnulíf. É minnist þess t. d. að slík félög voru mjög algeng hjá Ísraelsmönnum fyrst eftir að þeir endurheimtu sitt land og ríkið var m. a. s. aðalstofnandi margra þeirra. Síðan voru þau seld einstaklingum og einkafyrirtækjum þegar þau voru komin á legg, þegar tók að skapast þar auðlegð eftir þá erfiðleika sem af því stöfuðu auðvitað að þeir fluttu þjóðflutningum.
Þetta gerðist líka í mjög ríkum mæli við þýska undrið svokallaða þegar Þjóðverjar endurreistu sinn fjárhag á örskömmum tíma. Þá tók ríkið þátt í því að örva einstaklinga til þátttöku í almenningshlutafélögum og öflugum samtökum. Lífeyrissjóður verkamanna og ýmis samtök tóku þátt í slíkri starfsemi og þetta var auðvitað liður — og kannske meginliðurinn í þýska undrinu. Því miður geri ég mér ekki vonir um að þetta frv., sem að lögum verður væntanlega, muni verða til þess að hér gerist einhver undur á næstu misserum í efnahags- og atvinnumálum. En ég er ekki í nokkrum vafa um það að það er rétt spor að reyna þetta.
Úr því að ég nefndi Fjárfestingarfélag Íslands þá vita menn að það er ekki öflugt félag þó að það hafi þó nokkuð fjölskrúðuga starfsemi. En það var auðvitað vegna þess að fjármagn var af skornum skammti, peningum var safnað saman frá einkabönkum, sem voru ekki sterkir og eru ekki enn, og frá einstaklingum og ríkið eða Framkvæmdasjóður lagði líka nokkurn hlut í þetta félag. Þó hygg ég að það hefði getað verið talsvert öflugt nú ef það hefði ekki einmitt byrjað þessi starfsemi sem ég nefndi áðan, þ. e. leigukaup. Það gerði fjögurra, fimm ára samninga við menn sem voru að kaupa vélar og tæki um að félagið greiddi allt andvirðið og síðan gætu menn greitt mánaðarlega af þessum tækjum þangað til þeir eignuðust þau. En einmitt í kjölfar þessarar starfsemi byrjaði verðbólgan í algleymingi og allir þessir samningar voru óverðtryggðir svo að félagið tapaði þá miklu af eigum sínum. En ég held að þetta sé ekki mál sem neinn þyrfti að berjast gegn, þetta getur aldrei orðið nema til góðs, en eins og ég sagði þá er þetta liður í heildaraðgerðum sem stjórnarandstaðan hefur kosið að verða á móti, a. m. k. flestu í þessari nýsköpun.
Ég endurtek að ég held að þetta sé rétt spor í áttina en það þarf auðvitað miklu, miklu meira til þess að hér verði raunveruleg nýsköpun í atvinnulífi þjóðarinnar. Það þurfa mörg fleiri öfl og stofnanir, fyrst og fremst auðvitað einkafjármagn og félagasamtök. að koma til til þess að við öðlumst þá nýsköpun og umbreytingar í þjóðfélaginu á næstu misserum sem þjóðin þarfnast. En meiri hl. leggur til að þetta frv. verði samþykki.