19.06.1985
Efri deild: 104. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6847 í B-deild Alþingistíðinda. (6154)
455. mál, nýsköpun í atvinnulífi
Frsm. 2. minni hl. (Ragnar Arnalds):
Virðulegi forseti. Fjh.- og viðskn. hefur haft til athugunar þetta frv. um þátttöku ríkisins í hlutafélagi til að örva nýsköpun í atvinnulífi og um heimildir annarra aðila til þátttöku í félaginu. Það er skoðun mín að þessi þingmál þrjú sem hér eru til umræðu um þessar mundir og fjalla öll um það áform stjórnarflokkanna að skipta Framkvæmdastofnun ríkisins upp í þrjár stofnanir séu fyrst og fremst til marks um mikla sýndarmennsku.
Það er eftirtektarvert, ef lögin um Framkvæmdastofnun ríkisins eru skoðuð, að Framkvæmdasjóður hefur allar þær heimildir sem þessu nýja félagi er ætlað að fá og í raun má segja að lögin beri það með sér að Framkvæmdasjóði er ætlað nákvæmlega sama hlutverk og hinu nýja félagi. Í stuttu máli má segja að Framkvæmdastofnunin lifi góðu lífi í afkomendum sínum eftir að hún hefur verið tekin af lífi með samþykki þessara frv. Þessar dótturstofnanir hennar, sem eiga að taka við af henni, hafa sameiginlega allt það hlutverk og allar þær heimildir sem gamla stofnunin hafði.
En vegna þess að þessari uppstokkun á starfsemi Framkvæmdastofnunar fylgja margvíslegir ókostir er það tillaga mín í nál. á þskj. 1343 að þessu frv. sé vísað frá með svofelldri rökstuddri dagskrá:
„Þar sem frv. þetta er liður í breytingu sem miðar að því einu að skipta Framkvæmdastofnun ríkisins upp í þrjár stofnanir með auknu forstjóraveldi, aukinni miðstýringu og auknum tilkostnaði og þar sem nýskipan þessi virðist ekki hafa neina sérstaka kosti í för með sér en hins vegar ýmsa augljósa ágalla frá núverandi skipan mála telur deildin ástæðulaust að fjalla frekar um frv. og tekur fyrir næsta mál á dagskrá.“
Í nál. sem ég hef skilað kemur fram hvaða ókostir þetta einkum eru. Það er ljóst að miðstýring verður miklu meiri eftir samþykkt þessara frv. og ólýðræðislegir stjórnarhættir eru teknir upp í stað þeirra stjórnarhátta sem fyrir voru og fólu það í sér að Alþingi kaus Framkvæmdasjóði lýðræðislega stjórn. Nú er hins vegar ætlunin að ráðh. fari alfarið með skipun þessarar stjórnar og á það reyndar bæði við um Framkvæmdasjóð og þróunarfélagið. Þessir voldugu sjóðir eru sem sagt alfarið settir á ábyrgð ráðh. án nokkurs eftirlits eða íhlutunarréttar Alþingis.
Enginn vafi er á því að þessari breytingu, að kljúfa Framkvæmdastofnun í þrjá parta, mun fylgja stóraukinn kostnaður og verulega mikil skriffinnska.
Þá er rétt að benda á að í lögunum um Framkvæmdastofnun ríkisins er gert ráð fyrir því að birtar séu opinberlega upplýsingar um allar lánveitingar Byggðasjóðs og Framkvæmdasjóðs en í þessum nýju frumvörpum eru engin slík ákvæði. Ég hef því leyft mér að flytja brtt. við frv. á sérstöku þskj. og verður hún borin upp ef rökstudda dagskráin er felld. Þar er einmitt gert ráð fyrir því að þessu félagi sé skylt að birta opinberlega upplýsingar um allar lánveitingar sínar, sínar styrkveitingar og hlutafjárframlög.