19.06.1985
Efri deild: 104. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6851 í B-deild Alþingistíðinda. (6156)

455. mál, nýsköpun í atvinnulífi

Frsm. 3. minni hl. (Sigríður Dúna Kristmundsdóttir):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. 3. minni hl. fjh.- og viðskn. Það er svohljóðandi, með leyfi forseta:

„Með vísan til nál. 3. minni hl. fjh.- og viðskn. um frv. til l. um Byggðastofnun leggur undirrituð til að frv. þessu verði vísað til ríkisstj.“

Til þess að þetta megi nú skiljast vil ég, með leyfi forseta, lesa nál. sem 3. minni hl. fjh.- og viðskn., sem er sú sem hér stendur, hefur lagt fram um frv. til l. um Byggðastofnun, en þannig hefur farið að þessi tvö mál eru bæði á dagskrá á þessum fundi. (Gripið fram í: Er Byggðastofnun til umræðu?) Ég er að útskýra það að nál. 3. minni hl. fjh.- og viðskn. um það mál sem nú er til umræðu vísar til nál. um frv. til l. um Byggðastofnun, sem kemur væntanlega hér á dagskrá næst á eftir, þannig að þetta hefur víxlast. Því vil ég lesa nál. 3. minni hl. fjh.- og viðskn. um frv. til l. um Byggðastofnun og gera þá grein fyrir áliti 3. minni hl. á því máli í leiðinni. Nál. er svohljóðandi:

„Frv. verður best skoðað í samhengi við frv. til l. um Framkvæmdasjóð Íslands og frv. til l. um þátttöku ríkisins í hlutafélagi til að örva nýsköpun í atvinnulífi. saman fela þessi frv. það í sér að verkefnum Framkvæmdastofnunar ríkisins er skipt á þrjá staði og úr verða Byggðastofnun, Framkvæmdasjóður Íslands og svonefnt hlutafélag til að örva nýsköpun í atvinnulífi. Þar sem hér er um þrjár stofnanir að ræða í stað einnar fela þessi frv. í sér umtalsverða aukningu á því bákni sem þegar er fyrir hendi á þessu stjórnarsviði og virðast því til þess fallin að magna upp ágalla þess í stað þess að draga úr þeim.

Að auki má ljóst vera að ýmsir ágallar eru á þeim nýju stofnunum sem hér um ræðir. Þannig mun hin nýja Byggðastofnun hafa í för með sér aukna miðstýringu byggðamála og hið sama gildir um þau mál er heyra eiga undir hinn nýja Framkvæmdasjóð Íslands. Þeim skal nú stýrt af fulltrúum ráðherra og Seðlabanka. Þar sem stjórn núverandi Framkvæmdastofnunar ríkisins er þó kosin af Alþingi er hér einnig um aukna miðstýringu að ræða. Slíkri miðstýringu eru Kvennalistakonur eindregið mótfallnar enda segir í stefnuskrá Kvennalistans: „Við teljum nauðsynlegt að dregið verði stórlega úr miðstýringu íslensks samfélags. Síaukin miðstýring færir völd og ábyrgð á æ færri hendur .... Við viljum valddreifingu sem felur í sér að fjármála- og stjórnunarvald færist frá miðstýrðum ríkisstofnunum út til fólksins í landinu....“

Hvað varðar hið nýja hlutafélag, sem ætlað er að örva nýsköpun í atvinnulífinu, þá fylgir því engin stefnumótun í atvinnumálum sem væntanlega er þó undirstaða þess að hlutafélagið geti í raun stuðlað að nýsköpun í atvinnulífinu og beitt sínu takmarkaða fjármagni í þá veru.

Þessi frumvörp eru því ekki líkleg til að bæta um betur í íslensku efnahagslífi og þar sem þessi mál þurfa bersýnilega nánari umfjöllunar við leggur undirrituð til að þessu frv. (og þá er átt við frv. til l. um Byggðastofnun) verði vísað til ríkisstj.“

Í nál. um það frv. sem hér er til umr. stendur síðan eins og áður sagði:

„Með vísan til nál. 3. minni hl. fjh.- og viðskn. um frv. til l. um Byggðastofnun (nál. sem ég hef rétt lokið við að lesa upp) leggur undirrituð til að frv. þessu (þ. e. frv. til l. um þátttöku ríkisins í hlutafélagi til að örva nýsköpun í atvinnulífi) verði vísað til ríkisstj.“