19.06.1985
Efri deild: 104. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6852 í B-deild Alþingistíðinda. (6161)
456. mál, Byggðastofnun
Frsm. 1. minni hl. (Eiður Guðnason):
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 1327 um frv. til l. um Byggðastofnun. Þetta frv. verður auðvitað að skoða í samhengi við fylgifrv. þess, frv. til 1. um Framkvæmdasjóð Íslands. Þessi tvö frumvörp fela það eitt í sér að Framkvæmdastofnun sem nú er verði skipt í tvennt og fyrirtækið fái tvær stjórnir og líklega tvö sett af forstjórum, ef þannig má taka til orða. Önnur skipulagsbreyting er nánast engin skv. þessu frv. Það er því ljóst að með þessari breytingu á að framlengja galla núverandi kerfis og heldur þó að auka báknið en minnka það.
Við erum þeirrar skoðunar, Alþfl.-menn, að byggðaþróunarmál og byggðaáætlanir séu raunar best komin í höndum þeirra sem bera ábyrgð á framkvæmd málanna og þeirra sem gerst þekkja til hlutanna á hverjum stað. Þess vegna teljum við eðlilegt að færa þessi verkefni út í héruðin til lýðræðislega kjörinna fylkisstjórna eða hliðstæðra stjórnkerfiseininga. Þetta frv. gerir ekki ráð fyrir neinni slíkri valddreifingu og stefnir ekki til neinna þeirra framfara sem gera það að verkum að unnt sé að ljá því atkvæði. Samþykkt þess er eingöngu afsökun fyrir því að takast ekki á við það verkefni sem verður að vinna í raunverulegri skipulagsbreytingu og valddreifingu. Því legg ég til að frv. verði fellt.