19.06.1985
Efri deild: 104. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6853 í B-deild Alþingistíðinda. (6162)

456. mál, Byggðastofnun

Björn Dagbjartsson:

Herra forseti. Ég veit ekki hvort það er eftir prótokollinum að segja það sem ég ætla að segja hér að hv. þm. Ragnari Arnalds fjarstöddum. Hann er nefnilega flm. með mér að þeirri brtt. sem hér liggur fyrir um að staðsetja skuli Byggðastofnun á Akureyri. Mér þótti að vísu ærið mikið hafa þynnst till. eftir að sú brtt. við þessa brtt. kom fram sem hv. þm. Vesturl. tveir fluttu og raunar efaðist ég þá mjög um það hvort það mundi ekki veikja stöðu Akureyrar í þessu máli að láta þá till. ná fram að ganga.

Nú er aftur svo komið að mjög tekur að styttast í þinghaldi og ekki vil ég stefna málinu í voða vegna þessa. Það er nú raunar svo, eins og fram hefur komið hjá hv. síðasta ræðumanni og eins og hæstv. forsrh. í þessari umr., að stjórn stofnunarinnar væri að sjálfsögðu heimilt og raunar skylt að ákveða henni stað þar sem hagkvæmt þætti. En með tilliti til þess að hætt er við að Nd. muni ekki breyta sinni afstöðu og hún hefur þegar fellt till. um staðsetningu stofnunarinnar á Akureyri, þá sé ég mig neyddan til að draga þessa till. til baka fremur en að hætta málinu að svo komnu.