19.06.1985
Efri deild: 104. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6858 í B-deild Alþingistíðinda. (6169)

456. mál, Byggðastofnun

Frsm. 2. minni hl. (Ragnar Arnalds):

Virðulegi forseti. Við fluttum við þessa umr. tveir hv. þm., Björn Dagbjartsson og ég, till. um að velja þessari ágætu stofnun stað á vísum stað. Nú hefur 1. flm. till. dregið aðild sína að till. til baka en það hafði ég ekki hugsað mér að gera. Ég legg það því í vald forseta að dæma um það hvort till. er ekki enn til umræðu, ég hefði nú kannske haldið að svo væri. En ef það er álit virðulegs forseta að ég verði að flytja tillöguna á nýjan leik, þá er það auðvitað í lagi að gera það við 3. umr. En ég hefði nú haldið, svona fljótt á litið, að það þyrfti samþykki beggja flm. til að afturkalla aðildina að till.