19.06.1985
Efri deild: 104. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6887 í B-deild Alþingistíðinda. (6184)
491. mál, framleiðsla og sala á búvörum o.fl.
Frsm. 1. minni hl. (Helgi Seljan):
Virðulegi forseti. Ég skil vel afstöðu hæstv. forseta og virði hana að sjálfsögðu. En þetta er allt önnur málsmeðferð hér í kvöld en ég átti von á og um var talað í landbn. í morgun.
Hér hefur t. d. hv. 11. landsk. þm. hafið efnislega umræðu um vinnubrögð sem ég gæti haft langt mál um. Hæstv. síðasta ríkisstjórn brá á það ráð að setja þrjá menn í nefnd til að samræma sjónarmið sem fram höfðu komið í tveimur stefnumörkunartillögum í landbúnaði, sem báðar höfðu legið fyrir þinginu áður, önnur flutt af þáv. hæstv. landbrh., Steingrími Hermannssyni, hin flutt af öllum þm. Sjálfstfl. með hv. þm. Pálma Jónssyni sem er 1. flm. Til þess var þessi nefnd sett á laggirnar að reyna að samræma þessi sjónarmið. Og hún notaði enga 25 mánuði til að vinna þetta verk eins og hv. þm. sagði hér áðan. Þessi nefnd vann tiltölulega fljótt og vel miðað við það verkefni sem henni var fengið í hendur og miðað við þau að mörgu misjöfnu sjónarmið sem þarna voru þegar komin fram og hún skilaði sínu áliti til ráðh. Ráðh. hafði þessi mál lengi til meðferðar hjá sér, hjá sinni ríkisstj. og hjá ýmsum þeim aðilum sem hann leitaði til til þess að fá ráðleggingar um það hvernig þessu skyldi hagað.
Ég kann því illa að hv. 11. landsk. þm. skuli enn einu sinni nota hér tækifærið til að ráðast á hv. þm. Pálma Jónsson, fyrrv. landbrh., með þessum hætti því að hann er ekki hér til andsvara. En það er greinilegt að bæði hv. 5. þm. Vesturl. og hv. 11. landsk. þm. hafa haft með sér nóg lesefni til þess að þylja yfir mönnum hér í kvöld. Og ég hefði svo sannarlega gert það einnig ef ég hefði vitað að þau vinnubrögð yrðu hér viðhöfð en málinu ekki flýtt á svipaðan máta og um var talað.
Hér hefur hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson gefið út mjög merkilega yfirlýsingu. Frv. verður breytt í haust, segir hv. þm. Þá verða framsóknarmenn beygðir, segir hv. þm. óbeint með þessum orðum. Það verður fróðlegt að vita hvað hv. þm. Davíð Aðalsteinsson segir um þessa yfirlýsingu hv. þm. Eyjólfs Konráðs Jónssonar, um það að fyrirhugað sé að beygja þá framsóknarmenn í haust og breyta frv., þessu frv. sem verður að böðla í gegnum þingið hvað sem það kostar nú á þessum vordögum og má ekki bíða haustsins að afgreiða.
En svo kemur bara allt í einu hv. þm. Eyjólfur Konráð upp og segir: Frv. verður sko breytt í haust. Það skal sko verða gert. Og ég veit að þar fylgir sá hugur máli að ég efast ekkert um að það muni verða gert. Og þá hafa þeir framsóknarmenn kannske haft rétt fyrir sér sem hafa verið að læða því að mönnum að undanförnu að þeir skyldu nú hafa sig hæga og samþykkja þetta frv. vegna þess að annars kölluðu þeir yfir sig annað miklu verra þegar þeir væru sestir á valdastóla, sjálfstæðismenn og Jón Baldvin Hannibalsson og félagar, því að þá fyrst færi nú að syrta í álinn fyrir íslenskri bændastétt. Það sé eins gott að halda sig á mottunni núna, mótmæla ekki þessu frv. heldur vera rólegir og láta það ganga í gegn til þess að annað verra komi ekki.
En nú upplýsir hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson að það þurfi engan Jón Baldvin til — og þó veit ég ekki nema það hafi falist í orðum hans að hluta til. Hv. 11. landsk. þm., sem hefur unnið manna mest í þessum málum, veit náttúrlega um þessar hræringar, sem þarna eiga sér stað og getur upplýst okkur um þau faðmlög sem hann ætlar sér að taka upp við hv. þm. Jón Baldvin til þess að breyta þessu eftir orðum hv. þm. Eyjólfs Konráðs. — Hann hristir höfuðið, hlakkar greinilega ekki til faðmlaganna, en það veit ég að margir í hans hóp gera.
Það er talað mikið um að allt sé öruggt og tryggt í sambandi við staðgreiðslur til bænda. Og síðast var hér lesið úr álitsgerð einhverra lögfræðinga sem ég efast ekkert um að hafi unnið sitt verk samviskusamlega — á hvaða taxta veit ég ekki. Það er hins vegar deginum ljósara, sem kom fram hér í máli hv. þm. Eyjólfs Konráðs, að á sex ára afmæli mjög ákveðinnar samþykktar Alþingis um beinar greiðslur til bænda hafi ekkert verið gert, hverjir sem að höfðu komið. (Gripið fram í: Lítið.) Lítið. Hann hefur einhverja von með sinn hæstv. ráðh. núna. En þetta er staðreynd sem liggur fyrir. Og ég bendi á það að einmitt í morgun, síðast í morgun lýsti formaður Stéttarsambands bænda því yfir að hann sæi ekki að enn væri tryggt fjármagn til að standa við þessa frvgr., hann sæi ekki lausn þar í sjónmáli hjá þeirri nefnd sem um þetta mál er að fjalla. Þar kom líka glögglega fram efi þegar formaður Stéttarsambandsins sagði: Við vitum hvað við höfum en ekki hvað við hreppum. Orðrétt eftir haft. Það var ekkert sérlega bjart hljóð í þeim ágæta manni í morgun. Hann talaði um snöggsoðið frv. Og vissulega er það snöggsoðið, enda eðlilegt að hv. þm. Eyjólf Konráð langi til að breyta og bæta og það muni verða gert strax í haust.
Ein af þeim ástæðum sem tilgreindar eru og hv. þm. Egill Jónsson drap glögglega á áðan er sú að við getum ekki farið að laga okkar búvöruframleiðslu að þessu á þann hátt sem þyrfti og það þyrfti endilega að samþykkja frv. þess vegna. Ég vil aðeins benda á það að á fundi stjórnar Stofnlánadeildar landbúnaðarins var verið að ganga frá því í hvað lán færu á þessu ári. Þar var ákveðið að til loðdýraræktar færi samtals, og er þá miðað við þær 50 millj. sem komu úr Framkvæmdasjóði, 110 millj., 110 millj. í þá grein. En til allra bygginga, endurbótabygginga og allra nýframkvæmda á öðrum sviðum 70 millj., eða m. ö. o. 40 millj. meira í loðdýraræktina en til allra nýframkvæmda bænda annarra. Svo koma menn hér upp með heilagsandasvip og segja: Til þess að gera þetta þurfum við að samþykkja eitthvert ákveðið frv. af því að við höfum samið það.
Auðvitað er þetta spurning um það í hvað fjármagninu er veitt. Og af því að hæstv. forseti Sþ. situr hér þá bendi ég á það líka að við vorum um daginn að samþykkja, og ég stóð að því heils hugar, breytingar á jarðræktarlögum þar sem t. d. var gengið til móts við hans ágætu tillögur um aukinn stuðning við votheysverkun. Það þurfti ekkert frv. um þetta efni til þess að taka skynsamlega á þar, auðvitað ekki.
Mér þótti vænt um það líka að hv. 11. landsk. þm. kom hér með upplýsingar um hver salan væri á landbúnaðarvörum á þessu ári miðað við árið í fyrra. Mér þykir sérstaklega vænt um það vegna þess að þegar ég ræddi þetta mál við 1. umr. og minnti á það aftur núna hafði ég Morgunblaðið mér til afsökunar í því efni, en það skýrði frá þessu með stríðsletri, að sala á búvörum hefði stórkostlega dregist saman og horfði til stórvandræða, og hafði það eftir áreiðanlegum heimildum.
Það var upplýst hjá okkur á fundinum í morgun að maímánuður hefði breytt nokkru hér um. Og auðvitað vita allir ástæðuna fyrir því. Menn reyndu auðvitað hvað þeir gátu að kaupa kjötvörur í maímánuði af þeirri einföldu ástæðu að menn bjuggust við gífurlegri hækkun á búvörum um mánaðamótin, í raun og veru miklu meiri hækkun en varð, vegna þeirrar ákvörðunar að greiða niður áburðinn og sömuleiðis að verja 40 millj. kr. alveg sérstaklega til þess að búvöruhækkunin yrði ekki eins mikil. En þetta vissi fólk vitanlega ekki í maímánuði og reyndi þess vegna, þrátt fyrir rýra kaupgetu sína, að kaupa kjöt í ríkara mæli en það hefði gert. Ég er hræddur um það að þó að menn geti kannske sagt í dag að staðan sé sæmileg, þá verði ekki framhald þar á.
Ég veit ekki, virðulegur forseti, af því ég hef nú setið í þessum stól, hvort ég á að vera að lengja þetta mikið þó að ég ætti kannske að fylgja fordæmi hv. 11. landsk. þm. og tala í hálftíma aftur þegar ég svara. Það er eiginlega ekki nema sanngjarnt að gera það. En það er sem sagt ljóst fyrir mér að bændasamtökin í landinu eru í heild sinni og bændur í landinu ósáttir við þetta frv. Neytendur eru ósáttir við þetta frv. Menn segja að þeir viti hvað þeir hafi en ekki hvað þeir hreppi út úr þessu máli. Gyllingin er þunn, var sagt nú fyrir skömmu. Gyllingin varðandi þetta frv., hún er þunn sannast sagna, þegar ekkert liggur enn fyrir, eins og kom fram frá formanni Stéttarsambands bænda í morgun, ekkert liggur enn fyrir um það að tryggt sé fjármagn til þess að staðið verði við lagafyrirmæli um staðgreiðslur til bænda. Svo þingreyndir erum við báðir, hv. 11. landsk. og ég, að við vitum því miður að við svona lagaákvæði, hversu sem þau eru túlkuð af lögfræðingum, er ekki staðið nema mönnum sýnist svo. Nægir að benda þar á ótal lög um framlög til hinna einstöku sjóða og hinna ágætustu verka sem eru hér skorin niður með lánsfjárlögum vetur eftir vetur. Þar er gott dæmi um það og þetta þekkjum við báðir.
Þetta er alveg ljóst. Og nú á lokasprettinum verður þess sem betur fer vart að bæði hv. 5. þm. Vesturl. og hv. 11. landsk. þm. finna til iðrunar, því að öðruvísi tek ég ekki langhunda þeirra hér í kvöld en sem bein iðrunarmerki. Og alveg sérstaklega eftir þetta veit ég að þessi iðrun verður mikil hjá hv. 5. þm. Vesturl. Davíð Aðalsteinssyni. Ettir að hann er búinn að heyra um leyndar fyrirætlanir þeirra sjálfstæðismanna um að gera starf hans að þessu frv. að engu nú þegar í haust er eðlilegt að hann muni sárlega iðrast þessara gerða sinna. En hv. 11. landsk. þm., hann hlakkar til faðmlaganna við Jón Baldvin og verði honum að góðu.