19.06.1985
Neðri deild: 104. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6892 í B-deild Alþingistíðinda. (6198)
404. mál, Fiskveiðasjóður Íslands
Frsm. meiri hl. (Stefán Guðmundsson):
Herra forseti. Ég tala hér fyrir frv. til l. um viðauka við lög nr. 44 25. maí 1976, um Fiskveiðasjóð Íslands. Þetta mál hefur komið frá Ed. og sjútvn. Ed. skrifaði undir nál. þar og mælir með því sammála að það verði afgreitt óbreytt.
Svo var það einnig hjá meiri hl. í sjútvn. Nd. Meiri hl. sjútvn. flytur enn fremur brtt. við frv. sem er þannig:
„Á eftir 2. gr. frv. komi ný grein er verði 3. gr. og breytist röð annarra greina til samræmis við það. Greinin orðist svo:
Fiskveiðasjóði Íslands er heimilt að veita lán eða ábyrgðir vegna stofnframkvæmda við fiskeldisstöðvar með veði í fasteignum eða gegn ábyrgðum sem stjórn Fiskveiðasjóðs metur fullnægjandi og er hún í þeim efnum óbundin af ákvæðum 11. og 12. gr. laga nr. 44/1976.“
Undir þetta nál. skrifa Stefán Guðmundsson, Garðar Sigurðsson, Gunnar G. Schram, Halldór Blöndal og Ingvar Gíslason.
Sjútvrh. kom á fund nefndarinnar og fór þess á leit við hana að hún flytti þessa brtt. Ég ætla að lesa þann rökstuðning sem þessum orðum fylgdi. Hér er sem sé lagt til að Fiskveiðasjóði Íslands sé heimilað að veita eða ábyrgjast stofnlán til fiskeldisstöðva. Gert er ráð fyrir að ábyrgðir þessar og lántökur séu innan þeirra marka sem fjárfestingar- og lánsfjáráætlun fyrir árið 1985 setur. Með þessu ákvæði er því ekki stefnt að því að auka frekar á erlendar lántökur en þegar er gert ráð fyrir. Í 12. gr. laga nr. 44/1976, um Fiskveiðasjóð Íslands, er skilyrðislaus krafa um að lán sem veitt eru gegn veði í öðrum eignum eða skipum megi hæst nema 60% af matsverði. Nauðsynlegt þykir að stjórn sjóðsins hafi vegna ábyrgðar eða lána til fiskeldisstöðva frjálsar hendur um mat á ábyrgðum og veði í hvert sinn. Gert er ráð fyrir að stofnlán til fiskeldisstöðva geti numið allt að 75% af kostnaði innlendra aðila.
Þetta er meginefni þeirrar brtt. sem nefndin varð sammála um að flytja, eins og ég hef hér áður sagt. með þeim fyrirvara að hv. þm. Guðmundur Einarsson mun gera grein fyrir sinni afstöðu til málsins. En meiri hl. leggur ákveðið til að þetta verði samþykkt.