19.06.1985
Neðri deild: 104. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6896 í B-deild Alþingistíðinda. (6203)
404. mál, Fiskveiðasjóður Íslands
Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Ánægjulegt er að „allir vildu Lilju kveðið hafa“, allir vilja lána í fiskeldið svo að ekki ætti að skorta fjármagn.
Að sjálfsögðu er með þessari till. á engan máta verið að draga úr heimild stofnlánadeildar til að lána í fiskeldi, alls ekki, en ástæðan fyrir því að ég vísaði í frv. sem liggur fyrir Ed. er sú að stjórnarflokkarnir samþykktu þau frumvörp sem fela í sér að öllum sjóðum verði heimilt að lána í það sem stjórnir viðkomandi sjóða ákveða. Að sjálfsögðu, þar sem þau frumvörp fara ekki í gegnum þingið, er það á engan máta bindandi, en lýsir þó þeirri stefnu sem ríkti þegar þau voru samin.
Í sambandi við Fiskveiðasjóð er ekki síst um það að ræða að Fiskveiðasjóður geti yfirtekið lán sem fiskeldisfyrirtæki geta fengið erlendis og endurlánað, geti m. ö. o. gengið í ábyrgð fyrir slíkri lántöku. Það er fyrst og fremst það sem skortir. Mér þykir gott ef t. d. stofnlánadeildin treystir sér til þess að ganga í slíkar ábyrgðir og það er vitanlega ekkert á móti því að stofnlánadeildin geri það. Ég er sannfærður um að fiskeldisfyrirtækin, sem búið er að stofnsetja og eru að undirbúa sínar framkvæmdir, mundu með ánægju þiggja slíka milligöngu stofnlánadeildar.
Hitt er svo staðreynd að Fiskveiðasjóður er með langtum sterkari eiginfjárstöðu og því er ekki ólíklegt að hann sé betur í stakk búinn til að ganga í umræddar ábyrgðir.
En ég vil undirstrika að hér hefur alls ekki verið um það að ræða að taka heimild frá stofnlánadeildinni á neinn máta, heldur aðeins að ef stjórn Fiskveiðasjóðs treystir sér til að hafa slíka milligöngu sem hér er um að ræða, og í sumum tilfellum getur verið um að ræða ekki bara tugi heldur jafnvel hundruð millj. eða a. m. k. yfir 100 millj. milligöngu, sé sú heimild fyrir hendi.